Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Siglingarleiðir frásagnarinnar

2019-06-14T16:13:50+00:002. október 2013|

Álfrún Gunnlaugsdóttir. Siglingin um síkin. Mál og menning, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2013 „og ég gat komið því að, að ég drægi í efa kenningu hans um að öllu væri hægt að breyta í sögu, að í meðförum manneskjunnar yrði allt sem gerðist að sögu og þar af leiðandi líf manns [...]

Hugarburður skálds

2019-06-21T10:52:51+00:0012. júní 2013|

Auður Jónsdóttir. Ósjálfrátt. Mál og menning, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2013. „Hvernig byrjar maður skáldsögu?“ spyr sögumaður í upphafi fimmta kafla Ósjálfrátt og bendir þar með á einn gildasta þáttinn í frásögn bókarinnar sem eru hugleiðingar um tilurð skáldskaparins og hlutskipti þess sem velur sér skriftir að lífsstarfi. Ósjálfrátt er einum [...]

Af hinum fáheyrðu göldrum skáldskaparins

2019-06-21T11:35:56+00:0012. mars 2013|

Einar Kárason. Skáld. Mál og menning, 2012, 235 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2013. I Með útgáfu á Skáldi, síðustu bókinni í þríleiknum um Sturlungaöldina, bindur Einar Kárason endahnút á verk sem teygir anga sína út fyrir heim skáldskaparins og inn á svið íslenskra fræða þar sem Einar endurvekur hina sígildu spurningu [...]

Hryllilegar hremmingar á hálendinu

2019-06-21T17:48:54+00:0012. desember 2012|

Steinar Bragi. Hálendið. Mál og menning, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2012 Lítill hópur ungs fólks – tvö pör – fer í ferð upp á hálendið með það að markmiði að skynja náttúruna, efla vináttuna, eða bara flýja kreppuna um stund. Þau eru illa undir ferðina búin, tæknin sem á að tryggja [...]

Vetrarmynd úr lífi skálds

2019-06-21T11:48:59+00:0012. desember 2012|

Haukur Ingvarsson. Nóvember 1976. Mál og menning, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2012 Sjónvarpið hefur ekki verið söguefni í íslenskum skáldsögum svo heitið geti. Eina dæmið sem kemur upp í hugann er úr Svartri messu Jóhannesar Helga sem er sprottin beint upp úr hatrömmum deilum samtíðarinnar um sjónvarpsútsendingar bandaríska hersins á Miðnesheiði [...]

Landnámsmaður og útlagi

2019-06-23T23:11:09+00:0016. október 2012|

Jón Yngvi Jóhannsson. Landnám: Ævisaga Gunnars Gunnarssonar. Mál og menning, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2012 „Hver er þá margumtöluð „staða Gunnars Gunnarssonar“ í íslenskum bókmenntum?“ spyr Jón Yngvi Jóhannsson undir lok hinnar ríflega 500 blaðsíðna bókar sinnar um ævi Gunnars og verk hans. Segja má að bók Jóns Yngva sé öðru [...]

Sögusagnir

2019-06-23T23:54:30+00:0019. júní 2012|

Ragna Sigurðardóttir. Bónusstelpan. Mál og menning, 2011. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2012 Bónusstelpan (2011) er önnur skáldsaga Rögnu Sigurðardóttur á tveimur árum sem fjallar öðrum þræði um íslenskan myndlistarheim. Sú fyrri, Hið fullkomna landslag (2009), gerðist innan veggja Listasafns Íslands og tæpti meðal annars á áhrifum auðmanna á stefnu safnsins, furðulegri stöðu [...]

„… að raða heimsmyndinni saman …“

2019-10-17T14:07:57+00:001. desember 2011|

Kristín Steinsdóttir. Ljósa. Mál og menning, Reykjavík, 2010. [1] Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2011 Á saurblöðunum í Ljósu eru ýmisskonar línur þvers og kruss og samanflæktar. Þetta óreglulega munstur erfatasnið en fólki sem er óvant saumaskapgæti reynst þrautin þyngri að leysa úr flækjunni því á sníðaörkum tíðkast að nýta plássið og hafa [...]

Gerðarmál – eða För Gerðar

2019-10-21T15:02:51+00:007. júní 2011|

Gerður Kristný. Blóðhófnir. Mál og menning 2010. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2011. Í ljóðabókinni Blóðhófnir sækir Gerður Kristný sér efnivið til eddukvæðabálksins Skírnismála og af fagmennsku og með feminísku sjónarhorni smíðar hún áhrifaríkt listaverk sem á skilið allt það lof sem á það hefur verið borið og færði henni Íslensku bókmenntaverðlaunin. Blóðhófnir [...]

Karlsvagninn

2020-01-24T14:54:27+00:0029. september 2010|

Kristín Marja Baldursdóttir. Karlsvagninn. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2010. Tvennt dynur yfir geðlækninn Gunni á einum sólarhring; það er brotist inn til hennar og þjófarnir láta greipar sópa á meðan hún sefur. „Ómissandi“ hlutum eins og farsíma og tölvum er rænt. Daginn eftir þegar Gunnur er að tygja [...]