Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Óvíð ummyndaður

2020-01-24T14:08:26+00:0029. september 2010|

Óvíd (Publius Ovidius Naso). Ummyndanir (Metamorphoses). Kristján Árnason íslenskaði og ritaði inngang. Mál og menning, 2010. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2010. Allt breytist, ekkert eyðist. Andinn reikar, kemur þaðan og hingað og fer héðan þangað og sest að í hvaða líkama sem hann kýs sér, og úr dýrsham hverfur hann í líkama [...]

Jón Leifs – hinn ókleifi drangur í íslensku tónlistarlandslagi

2020-01-24T11:44:29+00:0029. september 2010|

Árni Heimir Ingólfsson. Jón Leifs: Líf í tónum – ævisaga. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2010. Jón Leifs: Líf í tónum – ævisaga I. Bókin Jón Leifs: Líf í tónum – ævisaga er langt frá því að vera fyrsta tilraunin til að gera ævi Jóns Leifs skil. [...]

Auður

2020-01-27T14:59:43+00:002. júní 2010|

Vilborg Davíðsdóttir. Auður: Skáldsaga. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2010. Það ber að taka fram í upphafi máls að sú bók sem hér verður gerð að umtalsefni er skáldsaga og nýtur allra réttinda í því efni. Hún er ekki sagnfræðirit en leitast við að nota skáldaleyfin til þess að [...]

Ekki er allt sem sýnist

2020-01-27T13:49:25+00:002. júní 2010|

Ragna Sigurðardóttir. Hið fullkomna landslag. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2010. Framan á kápu: Mynd af herbergi, á gólfinu standa trönur með málverki af kræklóttu birki, fjalli og himni. Undir hlífðarkápunni: Einungis landslagsmyndin; trönurnar og umgjörðin urðu eftir fyrir utan. Inni í bókinni: Listræn blekking af ýmsu tagi en [...]

Þjóðarbrot

2020-03-06T13:25:46+00:0022. febrúar 2010|

Eiríkur Örn Norðdahl: Gæska. Mál og menning, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2010. Í nýjustu skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahl, Gæsku, blandast margháttaðar formtilraunir þematískum átökum við samtímann. Stílbrögðin reyna á þanþol bókmenntagreinarinnar og vekja um leið athygli á miðlunaraðferð verksins. Jafnvel mætti ganga svo langt að segja að skáldsagan hlutgeri tungumálið; hún [...]

Heimsmynd í upplausn

2020-03-09T09:46:28+00:0018. nóvember 2009|

Íslenska sakamálasagan, fjölmenningarsamfélagið og Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur Auður Jónsdóttir. Vetrarsól. Mál og menning, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2009. Hugtakið „póstmódernismi“ felur í senn í sér sýn á samfélagsgerðina og viðhorf til fagurfræðilegra umbyltinga nýliðinna áratuga. Í höfuðriti sínu, Póstmóderníska ástandinu, gerir franski heimspekingurinn Jean-Francois Lyotard hvort tveggja að umfjöllunarefni en [...]

Sturlunga Einars Kárasonar

2020-03-11T10:28:02+00:0010. júní 2009|

Einar Kárason. Ofsi. Mál og menning, Reykjavík. 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009.   Frásögnin af Flugumýrarbrennu í Íslendingasögu Sturlu Þórðarsonar er vafalaust ein áhrifamesta frásögn Sturlungu. Sturla undirbýr lýsinguna af brennunni af útsjónarsemi og listfengi hins mikla sögumanns. Hann raðar upp svipmyndum af sáttargjörð sinni og Gissurar Þorvaldssonar, fyrirboðum og beyg [...]

Harmljóð um missi og glötuð tækifæri

2020-03-11T15:22:33+00:0015. febrúar 2009|

Álfrún Gunnlaugsdóttir. Rán. Mál og menning, 2008 Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2009. Nýjasta skáldsaga Álfrúnar Gunnlaugsdóttur segir frá ferðalagi hinnar íslensku Ránar frá heimili sínu í Sviss til Íslands með viðkomu í Barselóna, þar sem hún lagði stund á nám á sínum yngri árum. Reyndar er þetta ekki allskostar rétt því þótt [...]