Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Fuglar vonarinnar

2019-05-16T11:46:33+00:0019. febrúar 2019|

Einar Kárason. Stormfuglar. Mál og menning, 2018. 124 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Stormfuglar, stutt skáldsaga eftir Einar Kárason, segir frá baráttu skipshafnar á íslenskum togara í fárviðri um vetur á Nýfundnalandsmiðum. Sagan er byggð á atburðum er urðu í febrúar 1959 þegar fjöldi skipa lenti í erfiðleikum á þeim slóðum. [...]

Hvolpavit

2019-05-16T11:47:53+00:0019. febrúar 2019|

Hundakæti: Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881–1884. Þorsteinn Vilhjálmsson annaðist útgáfu. Mál og menning, 2018. 224 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Árið 1993 sýndi Ríkissjónvarpið umdeilda sjónvarpsþætti Baldurs Hermannssonar, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Ef til vill væri réttara að kalla þættina alræmda, svo hörð viðbrögð vöktu þeir í þjóðfélaginu. Markmið höfundarins var allsherjar uppgjör [...]

Risavaxið áramótaskaup á alþjóðlegum skala og stórviðvörun

2019-05-16T11:47:27+00:0019. febrúar 2019|

Þórarinn Leifsson. Kaldakol. Mál og menning, 2017. 280 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2019 Dystópíur eða ólandssögur hafa ekki verið fyrirferðarmiklar í íslenskum bókmenntum en eru þó kannski fleiri en margir ætla. Slíkar sögur hafa gjarnan komið í kippum, litlum kippum reyndar, tvær til þrjár, í kjölfar þess að ákveðnir þættir festu [...]

Vertu sýnilegur!

2019-05-16T11:51:50+00:0027. nóvember 2018|

Kristín Helga Gunnarsdóttir. Vertu ósýnilegur – Flóttasaga Ishmaels. Mál og menning 2017. 235 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2018 Ég hef verið spurð að því nokkrum sinnum hvort innflytjendur hafi skrifað áhugaverðar barna- og unglingabókmenntir á Íslandi? Eða hvort hér hafi verið skrifaðar áhugaverðar bækur fyrir börn þar sem innflytjendur séu í [...]

Nostalgískar svipmyndir

2019-05-16T11:54:00+00:0011. september 2018|

Gerður Kristný. Smartís. Mál og menning, 2017. 125 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2018 Unglingsárin eru flókinn og þversagnakenndur tími; fæst höfum við þá náð tökum eða skilningi á eigin upplifunum og viðbrögðum en erum í sífelldri leit að okkur sjálfum og hlutverki okkar í samfélaginu. Tilfinningarnar eru á yfirsnúningi og þetta [...]

Reikað um skóg minninganna

2019-05-16T11:55:57+00:0031. maí 2018|

Einar Már Guðmundsson. Passamyndir. Mál og menning, 2017. 276 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2018 Í þessari nýjustu sögu Einars Más nýtir hann, eins og oft áður, efni úr eigin ævi í skáldskap sinn, atburði og persónur. Þessar sögur má vel lesa sem sagnfræðilegar eða öllu heldur menningarsögulegar heimildir. Heimildargildi þeirra felst [...]

Þegar Þjóðverjar hernámu Ísland

2019-05-16T11:57:39+00:0020. febrúar 2018|

Valur Gunnarsson. Örninn og Fálkinn. Skáldsaga. Mál og menning, 2017. 438 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2018 Einfaldað sagt má halda því fram að sagnfræði fjalli um það sem gerðist, skáldskapur um það sem gerðist ekki. Á mörkum þessara sviða þrífst andveruleg söguritun, sagan um það sem hefði gerst ef eitthvað eitt [...]

Innviðir skáldskaparins

2019-05-22T17:13:49+00:006. september 2017|

Álfrún Gunnlaugsdóttir. Fórnarleikar. Mál og menning, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2017 Hús ættarinnar tekur miklum breytingum í skáldsögu Álfrúnar Gunnlaugsdóttur, Fórnarleikar. Sagan segir frá fjórum kynslóðum sem búa í þessu húsi, einhversstaðar nærri miðbæ Reykjavíkur, samskiptum þeirra, minningum, arfleifð og átökum. Framvindan er nokkuð línuleg og byggist á öru flökti milli [...]

Andartök: ígildiheims sem var heill

2019-05-23T11:44:22+00:006. september 2017|

Þorsteinn frá Hamri. Núna. Mál og menning, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2017 Núna er 21. ljóðabók Þorsteins frá Hamri á rúmrar hálfrar aldar skáldferli. Þó að allar þær bækur beri greinileg höfundareinkenni og myndi ákveðna samfellu hefur hver og ein eitthvað nýtt og ferskt fram að færa, og þessi er engin [...]

Áfangaskýrsla

2019-05-23T13:30:23+00:0019. júní 2017|

Andri Snær Magnason. Sofðu ást mín. Mál og menning, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2017 I Jólavertíðin 2016 var gjöful á smásagnasviðinu. Auk örverkabóka frá Sigurlaugu Þrastardóttur, Gyrði Elíassyni og Kött Grá Pje voru að minnsta kosti fimm veigamikil smásagnasöfn á allsnægtaborði flóðsins: Allt fer eftir Steinar Braga, Þættir af séra Þórarinum [...]