Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Sjaldan er ein báran stök

2021-02-18T09:41:29+00:0018. febrúar 2021|

Gunnar Þór Bjarnason. Spænska veikin. Mál og menning, 2020. 315 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2021   Það verður seint sagt að árið 1918 hafi farið mjúkum höndum um Íslendinga. Það hófst með svo miklum frosthörkum að venjulega er talað um frostaveturinn mikla. Í október lét Katla svo til sín taka með [...]

Þeir héldu ræður á latínu

2020-11-17T23:32:02+00:0017. nóvember 2020|

Árni Snævarr. Maðurinn sem Ísland elskaði: Paul Gaimard og Íslandsferðir hans 1835–1836. Mál og menning 2019. 497 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2020   Leiðangrar Gaimards til Íslands 1835 og 1836 skipa slíkan sess í Íslandssögunni að það var slæm eyða að ekki skyldi fyrir löngu vera búið að semja ýtarlegt fræðirit [...]

Skrímsli verður (ekki) til

2020-02-18T09:34:21+00:0018. febrúar 2020|

Sjón. Korngult hár, grá augu. JPV útgáfa, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020. Titillinn Korngult hár, grá augu kallar umsvifalaust fram mynd af norrænni manneskju, ljósri yfirlitum. Það að hárið sé korngult en ekki bara ljóst býr til tengingar við sveitasælu, jafnvel sakleysi. Bókarkápan sýnir sömuleiðis ungan, brosandi dreng, myndin þó pixluð [...]

Sköpunarsagan

2020-02-18T09:34:11+00:0018. febrúar 2020|

Auður Jónsdóttir. Tilfinningabyltingin. Mál og menning, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020.  „Allt í einu langaði hana svo að kyssa og vera lifandi eins og sjórinn.“[1] Hjónabandssögur eru ekki óalgengir merkimiðar á skáldsögum þessa dagana. Það er ekki langt síðan að Dagar höfnunar Elenu Ferrante, Saga af hjónabandi Geirs Gulliksen og jafnvel [...]

Samhengisleysi

2020-02-18T09:33:56+00:0018. febrúar 2020|

Bergur Ebbi. Skjáskot. Mál og menning, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020. Í harmleikjum Shakespeares taka áhorfendur gjarnan eftir því að aðalpersónan er horfin af sviðnu í fjórða þætti; aðrar persónur verksins, og um leið minni háttar, eru þá í forgrunninum um stundarsakir og atburðir taka á sig einhverja lykkju. Þeir sem [...]

Allt í einni sögu en þó fyrst og fremst hún sjálf eða … að komast í skjól frá veröldinni og brjótast út úr því

2019-11-13T16:23:52+00:0019. nóvember 2019|

Ófeigur Sigurðsson. Heklugjá. Mál og menning 2018. 413 bls. Heklugjá Ófeigs Sigurðssonar er mikil bók að vöxtum og ber undirtitilinn „Leiðarvísir að eldinum“, sem ásamt kápumyndinni af símynstruðum hvirfli í miseldrauðum litum, gefur tilvonandi lesanda til kynna að hér sé fjallað um náttúruöfl, um frumefnið eldinn sem eyðir og skapar í sömu svipan, að minnsta [...]

Undir vetrarakri

2019-11-13T15:55:31+00:0019. nóvember 2019|

Ragna Sigurðardóttir. Vetrargulrætur. Mál og menning, 2019. 254 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2019 Ragna Sigurðardóttir hóf rithöfundarferil sinn með smásagnasafninu Stefnumót árið 1987 og hefur síðan einnig gefið út ljóð og skáldsögur. Nýjasta smásagnasafn hennar, Vetrargulrætur, hefur að geyma fimm langar smásögur sem tengjast á margvíslegan hátt. Myndlistin er þar áberandi [...]

Tímanna tákn?

2019-10-10T18:23:47+00:003. október 2019|

Eiríkur Örn Norðdahl. Hans Blær. Mál og menning, 2018. 335 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2019 „Veruleikinn krefst stöðugt nýrra hugtaka, nýrra hugmynda, það verður að færa hann í orð,“ segir í upphafskafla skáldsögu Eiríks Arnar Norðdahls, Hans Blær.[1] Halda má fram að þessi orð séu nokkurs konar stefnuyfirlýsing höfundar sem gilda [...]

Hikikomori

2019-10-10T17:55:21+00:0027. september 2019|

Bergur Ebbi. Stofuhiti. Ritgerð um samtímann. Mál og menning, 2017.   Bergi Ebba brennur á vörum ein spurning og hún sækir svo fast að honum að til að reyna að fá eitthvert svar við henni skrifar hann heila bók, og spurningin er sú hvernig hann eigi að skilgreina sig í þeim nútíma sem nú grúfir [...]

Dularfulla húsið og myrkrið í mannssálinni

2019-05-16T11:44:42+00:0016. apríl 2019|

Hildur Knútsdóttir: Ljónið. JPV útgáfa, 2018. 410 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2019 Það barst hár dynkur innan úr skápnum. Þær hrukku báðar við. Þegar Elísabet opnaði skápdyrnar lá græni ullarkjóllinn á gólfinu. „Oh, þetta er alltaf að gerast,“ sagði Elísabet um leið og hún beygði sig niður til að hengja kjólinn [...]