Þú ert hér://Tag: Mál og menning

Hvað var ég að lesa?

2023-02-16T09:50:03+00:0016. febrúar 2023|

Eiríkur Örn Norðdahl og Elías Rúni: Frankensleikir – eða hinn nýi Aurgelmir. Mál og menning, 2022. 94 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2023.   Ég skal viðurkenna að ég varð nær forviða þegar ég frétti af þessari bók. Jólasaga úr penna Eiríks Arnar Norðdahl? Barnabók sem hefst á því að tilvist jólasveina er [...]

„Hvað er bók annað en mismunandi stafir á blaði?“

2022-11-21T13:53:18+00:0022. nóvember 2022|

Adolf Smári Unnarsson: Auðlesin. Mál og menning, 2022. 235 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2022 Auðlesin (2022) Auðlesin er önnur skáldsaga Adolfs Smára Unnarssonar en sú fyrri, Um lífsspeki ABBA og Tolteka (eða líf mitt sem Olof Palme), kom út árið 2017 og sagði frá lífi ungs manns í Reykjavík [...]

Þegar allar dyr hafa lokast, þá brýtur kona vegg

2022-11-21T13:49:54+00:0022. nóvember 2022|

Margrét Tryggvadóttir. Sterk. Reykjavík: Mál og menning 2021. 280 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2022 Sterk (2021) Á síðasta ári hlaut skáldsagan Sterk eftir Margréti Tryggvadóttur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur. Hún hefur síðan aflað sér fleiri viðurkenninga, vakið athygli og umræðu og skyldi engan undra. Bókin fjallar um flókin málefni sem [...]

Af menningarástandi

2022-05-10T10:06:28+00:0012. maí 2022|

Eiríkur Örn Norðdahl: Einlægur Önd - ævisaga. Mál og menning, 2021. 283 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2022.   I „Ég get aldrei komið aftur á billann, ég er alveg viss um það. Eins og ég hafði nú gaman af því.“ (Dúddi rótari, Með allt á hreinu)   Hvernig er sambandi skáldskapar [...]

Miskunnarlaus bjartsýni

2022-02-18T11:33:25+00:0024. febrúar 2022|

Fríða Ísberg: Merking. Mál og menning, 2021. 266 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2022.   Við erum stödd í Reykjavík í nálægri framtíð, líklega í kringum árið 2050, og það ríkir órói í íslensku samfélagi. Fram undan eru kosningar um lög er kveða á um að skylda eigi alla þegna landsins í [...]

Undir djúpunum

2022-02-24T14:21:53+00:0024. febrúar 2022|

Ingólfur Eiríksson: Stóra bókin um sjálfsvorkunn. Mál og menning, 2021, 284 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2022.     Skáldsaga Ingólfs Eiríkssonar hefst á markvissri tilvitnun í ljóðabók Hauks Ingvarssonar Vistarverur (2018). Ljóðið hljóðar svo:   einhvern tímann ætla ég að kafa niður að flakinu rannsaka káeturnar beina mjóum ljósgeisla út í myrkur [...]

Ferðasögur og rússneski heimurinn

2021-11-15T22:24:27+00:0015. nóvember 2021|

Valur Gunnarsson. Bjarmalönd. Rússland, Úkraína og nágrenni í nútíð, fortíð og framtíð. Mál og menning, 2021. 432 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2021   „Saga mannlegrar sálar, hversu ómerkileg sem hún kann að vera, er ekki síður forvitnileg og holl lesning en saga heillar þjóðar“. Mikhail Lermontov, Hetja vorra tíma   Maður [...]

Með augum Gratíönu

2021-08-19T09:23:32+00:0019. ágúst 2021|

Benný Sif Ísleifsdóttir. Hansdætur. Mál og menning 2020, 342 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 2021 Í upphafskafla skáldsögunnar Hansdætra bregður höfundur upp mynd af fjölskyldu sem er að flytja úr sjóblautum kjallara í Bótarbugt, fátækrahverfi sem stendur í fjöruborðinu á litlu sjávarþorpi, í betra húsnæði ofar í þorpinu. Fjölskyldan samanstendur af Evlalíu, [...]

Harmleikur vinstrihreyfingarinnar

2021-02-18T09:42:44+00:0018. febrúar 2021|

Kjartan Ólafsson: Draumar og veruleiki. Stjórnmál í endursýn. Um Kommúnistaflokkinn og Sósíalistaflokkinn. Mál og menning, 2020. 570 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2021 Þessi bók er afrek og mikilsverð viðbót við sögu íslenskrar vinstrihreyfingar á 20. öld. Hún er mikilvæg ekki bara vegna þess að hún er umfangsmikil, hátt í sex hundruð [...]

Hvað merkir þetta auma líf? 

2021-02-17T14:41:29+00:0018. febrúar 2021|

Halldór Armand. Bróðir. Mál og menning, 2020. 292 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2021 Bróðir er fjórða skáldsaga Halldórs Armands Ásgeirssonar sem merkir bækur sínar höfundarnafninu Halldór Armand. Umfjöllunarefni hans hafa verið samtíminn, en í fyrri bókum sínum, báðum sögunum í Vince Vaughn í skýjunum og í skáldsögunum Drón og Aftur og [...]