Þú ert hér://Tag: Landnámssetrið

Síðasta aftakan

2020-01-13T10:37:39+00:0013. janúar 2020|

Fáeinir atburðir í sögunni eru svo dramatískir og/eða dularfullir að Íslendingar geta ekki hætt að hugsa um þá. Strax koma í hugann fjölskylduharmleikurinn í Skálholti og hvarf Reynistaðabræðra. Eitt enn er svo morðbrennan á Illugastöðum á Vatnsnesi árið 1828 sem ótal ritverk, stór og smá, söngvar, kvikmyndir og leikverk, hafa verið gerð um og sér [...]

Ný Njála í Borgarnesi

2019-03-12T15:03:58+00:003. mars 2019|

Bjarni Harðarson frumsýndi sína Njálu á Söguloftinu í Landnámssetrinu Borgarnesi í gærkvöldi. Það var – mörgum að óvörum – mikil skemmtun, raunar má segja að frumsýningargestir hafi hlegið linnulítið allan tímann. Er Njála þá svona fyndin? spyrjið þið kannski. Nei, hún er sama harmsagan og hún hefur alltaf verið, málið er að Bjarni var að [...]

Grettir í Borgarnesi

2019-03-15T12:25:45+00:004. mars 2018|

Þetta var Borgarneshelgin mikla og væri hægt að fjölyrða um hve glæsilega staðurinn tók sig út í björtu góuveðrinu. Í gær og í dag var ég í einkar ánægjulegum æfingabúðum með kórnum mínum, Senjórítunum, á Hótel Borgarnesi (kom raddlaus til baka), en áður en að þeim kom fórum við hjónin í Landnámssetrið á föstudagskvöldið og [...]

Galdrakarl á Sögulofti

2019-05-03T14:28:07+00:0022. janúar 2017|

Geir Konráð Theodórsson skemmtir sér þessar vikurnar við að segja gestum á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi sögur af svarta galdri á Íslandi. Þeir eru þrír feðgarnir sem standa að sýningunni því Theodór Kristinn Þórðarson, faðir Geirs, leikstýrir honum og bróðirinn Eiríkur Þór sér um uppsetninguna. Uppsetningin er afar einföld eins og jafnan á þessu leiksviði. [...]

Úr örbirgð til auðæva – og aftur til baka – og baka

2019-05-06T16:28:05+00:0024. september 2016|

Söguloftið á Landnámssetrinu í Borgarnesi hefur hýst marga góða sagnamenn og löngu kominn tími til að rifja upp sögu mannsins sem byggði á sínum tíma húsið sem landnámssýningin, Eglusýningin og Söguloftið eru í, Thors Jensen. Thor var rúmlega tvítugur þegar hann tók við verslunarrekstri í Borgarnesi og tók rækilega til hendinni þau ár sem hann [...]

Stórmenni á Söguloftinu

2019-05-17T16:12:27+00:003. apríl 2015|

Steinunn Jóhannesdóttir frumsýndi verk sitt um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi í gærkvöldi við húsfylli. Þar segir hún frá þeim hjónum, lífi þeirra hvors um sig áður en þau hittast, fundum þeirra og lífi saman og tekur frásögnin rúmlega tvo tíma með hléi. Steinunn flytur mál sitt blaðalaust, talar [...]

Skálmöld á Sögulofti

2019-05-20T17:03:21+00:007. mars 2015|

Mynd: Hari Kjartan Ragnarsson, einn af aðstandendum Landnámsseturs í Borgarnesi, sagði eftir frumsýninguna á Skálmöld í gærkvöldi að Einar Kárason væri eins konar húsköttur þeirra á Söguloftinu, hann væri búinn að vera með svo margar sýningar þar. Og miðað við nýju sýninguna er ekkert undarlegt við vinsældir Einars á staðnum. Hann er fantagóður [...]

Hverju reiddust goðin?

2019-08-23T14:55:17+00:0026. september 2011|

Þriðja leiksýningin á þessari menningarhelgi (við sáum þar að auki rúmönsku bíómyndina Á útleið á RIFF, afar áhrifamikið drama) var líka þriðja uppistandið en vel undirbyggt og fræðandi að þessu sinni. Þetta var ný sýning í Landnámssetrinu í Borgarnesi, Blótgoðar eftir Þór Tulinius í flutningi hans sjálfs undir stjórn Peters Engkvist. Í Blótgoðum segir Þór [...]