Þú ert hér://Tag: Garðar Borgþórsson

Gullæði

2025-10-03T17:57:42+00:003. október 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi einleikinn Þetta er gjöf eftir Kolbrúnu Björt Sigfúsdóttur fyrir viku síðan en aðstæður ollu því að ég sá það ekki fyrr en í gærkvöldi. Kolbrún leikstýrir verki sínu sjálf og þýðir það ásamt móður sinni, Friðriku Benónýsdóttur, því að leikritið er skrifað á ensku og var upprunalega sýnt í Skotlandi. Leikmynd og búninga [...]

Böl barnleysisins

2024-12-29T15:50:52+00:0027. desember 2024|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi leikverkið Yermu sem Simon Stone byggir á samnefndu leikriti Federico Garcia Lorca frá 1934. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir; glæsileg leikmyndin er verk Barkar Jónssonar; Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir sá um búninga en Garðar Borgþórsson um lýsingu. Mikið reyndi á þýðingu Júlíu Margrétar Einarsdóttur í hröðum, orðmörgum samtölum en hún hljómaði alltaf eðlilega [...]

Að missa vitið að mismiklu leyti

2022-02-06T14:32:17+00:005. febrúar 2022|

Það var sæluvíma yfir gestum Borgarleikhússins í gærkvöldi þegar frumsýnt var í báðum minni sölunum, dansverk á Nýja sviði, leikrit á Litla sviði; fólki fannst greinilega sem það hefði endurheimt dýrmætan hluta af lífi sínu. Þó voru allir með grímu og ekkert var í boði að drekka annað en kolsýrt te! Sýningin á Litla sviðinu [...]

Fangar stórborganna þrá hafið

2021-09-17T14:43:39+00:0017. september 2021|

Fátt veit ég skemmtilegra en að horfa á brakandi ferskt íslenskt leikrit sem talar skýrt og skemmtilega beint inn í samtímann. Þannig verk frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins: Þéttingu hryggðar eftir Halldór Laxness Halldórsson eða Dóra DNA. Leikstjóri var Una Þorleifsdóttir. Eva Signý Berger gerði fráhrindandi og fremur ólíklega leikmynd en [...]

Rita gengur aftur

2020-09-22T12:13:49+00:0019. september 2020|

Leikritið Oleanna eftir David Mamet sem var frumsýnt í gærkvöldi á Nýja sviði Borgarleikhússins í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur er ekki nýtt verk, það var frumsýnt í Bandaríkjunum árið 1992 og er því bráðum þrítugt. Þó að það beri aldurinn í vel af því að þetta er vel samið leikrit þá geri ég ráð fyrir að [...]

Feður, synir og dætur

2020-01-18T18:13:05+00:0018. janúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson, Helgi Þór rofnar, á Nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Stefáns Jónssonar. Eins og Tyrfingur vísaði í grískar goðsögur um Fedru og Hyppólýtus í síðasta verki sínu, Kartöfluætunum, vísar hann hér í goðsögurnar um Kassöndru og fleiri grískar hetjur, lætur örlög guða og mikilmenna endurspeglast í [...]

Hann og Hún og sorgin

2019-11-16T11:58:35+00:0016. nóvember 2019|

Leikritið Eitur eftir hollenska leikskáldið Lot Vekemans, sem nú er sýnt á litla sviði Borgarleikhússins í þjálli og hrynfagurri þýðingu Rögnu Sigurðardóttur, fjallar um ólíkar aðferðir til að vinna úr sorg eftir barnsmissi. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir og naumhyggjulega en afar viðeigandi leikmyndina gerir Börkur Jónsson. Hún (Nína Dögg Filippusdóttir) og Hann (Hilmir Snær Guðnason) [...]

Einar klaufabárður

2019-05-03T16:02:45+00:0026. nóvember 2016|

Allir kannast við það að senda barn til að ná í eitthvað og bíða svo von úr viti af því barnið finnur eitthvað allt annað til að gera og gleymir sér gersamlega. Stundum er þetta prýðileg leið til að fá stundarfrið fyrir barninu án þess að það gruni að maður sé að reyna að losna [...]

Ég man … ég man … ég man

2019-05-08T17:48:54+00:0025. janúar 2016|

Kannski var það kvefið – en ég held að ég hafi aldrei skælt eins mikið á leiksýningu og í gærkvöldi. Það var Flóð á litla svið Borgarleikhússins sem hafði þessi áhrif, heimildaverkið um snjóflóðið á Flateyri fyrir rétt rúmum tuttugu árum, eftir Björn Thors og Hrafnhildi Hagalín sem Björn leikstýrir. Samt var umbúnaðurinn einfaldur hjá [...]

Við og Afríka – Afríka og við

2019-05-17T13:26:50+00:0024. apríl 2015|

„Það virðist ekki vera til nein fær leið til að sýna hörmulegar afleiðingar eyðni í Afríku á sviði,“ segir þýska leikskáldið Roland Schimmelpfennig í grein á netinu. „Ég er samt viss um að hún er til og ég reyndi að finna hana.“ Leið hans, Peggy Pickit sér andlit Guðs, var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins [...]