Þú ert hér://Tag: Gaflaraleikhúsið

Stúlkan og skáldið

2019-05-16T17:28:30+00:0029. júní 2015|

Czar dawnych lat / Ljómi liðinna daga - Beata Malczewska Í gærkvöldi var gestaleikur frá Póllandi Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Þar sagði ein þekktasta gamanleikkona Pólverja, Beata Malczewska, áheyrendum langa og tragíkomíska ástarsögu undir heitinu Ljómi liðinna daga, og skreytti hana með söngvum. Sagan er gamalkunnug en þó alltaf ný. Hún segir frá feitlaginni [...]

Ubbi Bubbi kóngur

2019-05-17T15:50:39+00:0012. apríl 2015|

Jæja, aldrei fór það svo að maður fengi ekki að sjá leikritið um Ubba kóng áður en yfir lyki. Þetta ríflega aldargamla leikrit franska symbólistans Alfreds Jarry hefur verið „household word“ á Íslandi síðan Davíð Oddsson komst fyrst til valda á Íslandi en Davíð lék Ubba eða kónginn sem þá hét Bubbi í frægri uppsetningu [...]

Matarlist í Hafnarfirði

2019-05-20T16:45:49+00:001. mars 2015|

Gaflaraleikhúsið heldur uppi heiðri grínsins þessi misserin og ekki er hann slakur farsinn sem Gunnar Helgason og Felix Bergsson hafa kokkað saman og kalla Bakaraofninn. Ég er með svo miklar harðsperrur í kjálkunum eftir hlátursköstin að ég get ekki ennþá talað með góðu móti. Gott að geta látið nægja að skrifa. Þeir fengu sem sagt [...]

„Þú ert aldrei nógu góð“

2019-05-22T11:42:01+00:0031. janúar 2015|

Það er alveg einstök lífsreynsla – sem við höfum nú átt þrisvar sinnum – að sitja í troðfullum tvöhundruð manna sal með unglingum og ungmennum og hlæja og gráta með þeim að frumsömdum leikverkum jafnaldra þeirra á sviðinu. Í gærkvöldi sáum við nýjasta afreksverkið í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði, Konubörn, sem sex dásamlegar rétt rúmlega tvítugar [...]

Id, ego, superego

2019-05-22T13:42:59+00:008. nóvember 2014|

Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði er að gera skemmtilega tilraun með sérstakri Ungmennadeild við húsið. Hygg ég að einhverju hafi ráðið um þá ákvörðun hvað Unglingurinn þeirra Arnórs Björnssonar og Óla Gunnars Gunnarssonar gekk vel í fyrra. Höfundarnir voru þá 14 og 15 ára. Í fyrstu sýningu hinnar nýju deildar, Heili, hjarta, typpi, eru það litlu eldri [...]

Ó, þér unglingafjöld …

2019-06-12T13:32:36+00:0028. október 2013|

Þeir eru snillingar, unglingsdrengirnir tveir sem sýna nú sína eigin ritsmíð, leikverkið Unglinginn, í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Arnór Björnsson er 15 ára og Óli Gunnar Gunnarsson 14 svo þeir vita nákvæmlega hvað þeir eru að tala um þegar þeir lýsa lífi unglingsins bæði þversum og langsum. Svo er það móðir annars unglingsins, leikkonan Björk Jakobsdóttir, [...]

Grímur sem leika

2019-06-18T12:29:34+00:0027. janúar 2013|

Látbragðsleiknum Hjartaspöðum sem Skýjasmiðjan sýnir í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði hefur verið tekið mjög hlýlega. Aðstandendum hefur líklega ekki dottið í hug að orðalaust klukkutímaverk um vistmenn og starfsfólk á elliheimili myndi freista margra, alltént voru einungis áætlaðar fjórar sýningar í byrjun. En viðbrögð gagnrýnenda hafa verið einróma lof, aðrir gestir hafa lagt sitt af mörkum [...]

Að lifa lengi á lyginni

2019-06-19T10:25:42+00:0012. nóvember 2012|

Sögurnar af Múnkhásen barón hafa skemmt fólki alveg síðan á 18. öld þegar hann sjálfur var á dögum, fyrst í hans eigin frásögn, svo í endursögnum, misjafnlega trúum frumsögunum, í bókum ýmissa höfunda og loks í útvarpi og kvikmyndum. Það er ákaflega vel til fundið af Gaflaraleikhúsinu að rifja upp þessar sögur í fjölskyldusýningu sinni [...]

Vogur vinnur, vínið tapar

2019-06-19T11:09:04+00:0020. október 2012|

Það skemmtilegasta við að blogga um leikhús er hvað maður fær að sjá fjölbreytta flóru. Uppgötva hvað fólk getur verið að fást við ótrúlega ólíka hluti eiginlega á sömu þúfunni. Kvöldið eftir há-fagurfræðilega upplifun í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fylgdumst við hjónin með meinfyndinni og dónalegri konu á fimmtugsaldri frá Hafnarfirði upplifa tráma lífs síns og [...]