Þú ert hér://Tag: Elín S. Gísladóttir

Ferðalag um harmaheima

2024-09-22T20:36:45+00:0022. september 2024|

Fyrir ári hóf Birnir Jón Sigurðsson leikárið í Tjarnarbíó með sínu bráðskemmtilega verki Sund sem raunar fær framhaldslíf í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Og í gærkvöldi hófst nýtt leikár í Borgarleikhúsinu með nýju verki eftir hann, Sýslumanni Dauðans sem sýnt er á Nýja sviði. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Mirek Kaczmarek hannar dularfullt og lengst af [...]

Kvöldstund með Heiðari snyrti

2024-01-26T10:47:50+00:0020. janúar 2024|

  „Þú gætir kallað umsögnina þína Veislu undir grjótvegg,“ sagði fylgdarmaður minn þegar við vorum sest inn í Litla sal Borgarleikhússins í gærkvöldi og virtum fyrir okkur glæsilega sviðsmynd Barkar Jónssonar, háa, grófa og margbrotna Drápuhlíðargrjótvegginn sem húsbóndinn á heimilinu, Ingi (Sigurður Þór Óskarsson), skreytir með rauðum ljósaklösum meðan gestir á Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson [...]

Sannleikurinn er sagna verstur

2022-05-17T10:19:41+00:0010. apríl 2022|

Leikfélag Reykjavíkur og CommonNonsense frumsýndu í gær samtímafarsann Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson á Nýja sviði Borgarleikhússins. Breiða pallastofu með hringstiga innst upp á efri hæðir skapar Ilmur Stefánsdóttir og hún sér líka um í bland dálítið fríkaða búninga og leikgervi (með Elínu S. Gísladóttur); til dæmis þekkti ég ekki Þórunni Örnu Kristjánsdóttur fyrr en [...]

Njála fyrir alla, konur og kalla

2021-11-06T16:42:00+00:006. nóvember 2021|

Þeir eru alveg ótrúlegir, þeir Hundar tveir í óskilum, Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson. Eftir alla þjóðarsöguna í tveim sýningum og sögu kvenfólksins í landinu í einni færa þeir okkur Njálu – en á hundavaði, skiljanlega. Þeir segjast í viðtali vera að fara með hana aftur heim því upphaflega hafi hún verið mælt af munni [...]

Þroskasaga spýtustráks

2020-02-24T13:40:46+00:0023. febrúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í dag á Litla sviði Borgarleikhússins leikgerð Ágústu Skúladóttur, Karls Ágústs Úlfssonar og leikhópsins á Ævintýrum spýtustráksins Gosa. Þessi lífseiga saga Ítalans Carlos Collodi, sem kom fyrst út sem framhaldssaga í ítölsku barnablaði á árunum 1881–82, er í eðli sínu afar vel útfærð siðræn uppeldisfræði, svo skýr og opinská að það má [...]

„Við viljum sjá heiminn brenna“

2019-04-29T14:02:59+00:0029. apríl 2019|

Ærslaleikurinn Bæng! eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg var frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudagskvöldið í prýðilegri þýðingu Hafliða Arngrímssonar, og ég sá aðra sýningu í gærkvöldi. Það sem ég hef áður séð eftir Marius hefur vissulega verið ærslakennt og fyndið en líka absúrd og vakið hugmyndir og hugrenningatengsl í allar áttir. En Bæng! [...]

Njála OK

2019-05-10T13:46:25+00:0031. desember 2015|

Eiginlega er sýning Leikfélags Reykjavíkur á Njálu, sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, eins og Njála sjálf: löng og dramatísk, viðburðarík og djúp, ofbeldisfull, blóðug, hæðin og fyndin, spennandi og þó langdregin og leiðinleg á köflum. Jafnvel tímaskekkjurnar, þegar persónur bregða fyrir sig nýlegum enskuslettum eða bresta út í amerískum dægurlagasöng eða [...]