Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

„Jörðin öll virðist titra af tónlist“

2024-05-16T15:23:08+00:0011. maí 2024|

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir nú á Nýja sviði Borgarleikhússins söngleikinn Oklahoma eftir þá Richard Rogers (tónlist) og Oscar Hammerstein II (leikgerð og söngtextar). Handritið er byggt á leiktexta Óskars Ingimarssonar og söngtextum Egils Bjarnasonar en lagað að núgildandi enskri útgáfu. Að þýðingu við aðlögun komu Kolbrún Halldórsdóttir og Þór Breiðfjörð, í samráði við Orra [...]

Að fá að vera með, eiga líf og fá ást

2023-02-15T14:11:54+00:0010. febrúar 2023|

Eva Rún Snorradóttir skáld og leikstjóri brýtur á margan hátt blað í leiklistarsögu okkar með sýningunni Góða ferð inn í gömul sár sem var frumsýnd um síðustu helgi á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ég man að ég hlustaði á hana á kynningarfundi í leikhúsinu fyrir mörgum mánuðum, þar reyndi hún að lýsa þessu verki fyrir gestum [...]

Fangar stórborganna þrá hafið

2021-09-17T14:43:39+00:0017. september 2021|

Fátt veit ég skemmtilegra en að horfa á brakandi ferskt íslenskt leikrit sem talar skýrt og skemmtilega beint inn í samtímann. Þannig verk frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins: Þéttingu hryggðar eftir Halldór Laxness Halldórsson eða Dóra DNA. Leikstjóri var Una Þorleifsdóttir. Eva Signý Berger gerði fráhrindandi og fremur ólíklega leikmynd en [...]

Besta veisla í heimi?

2021-05-19T11:35:25+00:0016. maí 2021|

Öll eigum við frá blautu barnsbeini og fram á þennan dag minningar um veislur, góðar og slæmar og allt þar á milli. Það er jafnmikill unaður að vakna morguninn eftir virkilega vel heppnaða veislu, hvort sem er á manns eigin vegum eða annarra, og það er ööömurlegt að vakna eftir misheppnaða veislu og neyðast til [...]

Kraftaverkin gerast víst

2021-02-24T09:46:08+00:0022. febrúar 2021|

Það er ansi stór hugmynd að taka inn, ekki síst fyrir krakka, að Litla svið Borgarleikhússins með öllu sem í því er og okkur áhorfendum líka sé í rauninni inni í höfði ellefu ára stúlku, en með þá hugmynd leikur hópurinn 10 fingur sér í verkinu Stúlkan sem stöðvaði heiminn. Verkið er samið af hópnum [...]

Hring eftir hring

2021-01-11T16:48:56+00:009. janúar 2021|

Þó að litla svið Borgarleikhússins væri ekki setið nema til hálfs eða svo vegna Covidsins minnti kliðurinn samt meira en lítið á fuglabjarg áður en ljósin slokknuðu. Það átti vel við því í vændum var frumsýning á nýrri óperu eða tónleikhúsi fyrir börn, Fuglabjarginu eftir Birni Jón Sigurðsson (handrit), Ingibjörgu Ýr Skarphéðinsdóttur og Ragnheiði Erlu [...]

Það sem dalurinn geymir

2020-10-08T14:02:34+00:005. október 2020|

Eins og í verðlaunaverkinu Club Romantica í fyrra stígur Friðgeir Einarsson fram í eigin nafni í Útlendingnum – Morðgátu, sem var frumsýnd á Litla sviði Borgarleikhússins sl. föstudagskvöld, og leiðir okkur inn í eigin sögu. Hann þarf að flytja til Bergen í Noregi vegna þess að konan hans hefur fundið nám við sitt hæfi í [...]

Rita gengur aftur

2020-09-22T12:13:49+00:0019. september 2020|

Leikritið Oleanna eftir David Mamet sem var frumsýnt í gærkvöldi á Nýja sviði Borgarleikhússins í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur er ekki nýtt verk, það var frumsýnt í Bandaríkjunum árið 1992 og er því bráðum þrítugt. Þó að það beri aldurinn í vel af því að þetta er vel samið leikrit þá geri ég ráð fyrir að [...]

Nífaldur Bubbi Morthens

2020-03-17T17:07:50+00:0014. mars 2020|

Tvennt gerir mér einkum erfitt fyrir að skrifa um söngleikinn 9 líf eftir Bubba Morthens og Ólaf Egil Egilsson sem var frumsýndur á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Ólafs Egils. Annað er hve margir hafa þegar tjáð sig í svo löngu og litríku máli um sýninguna á Facebook að það verður vandi að [...]

Fimm fræknir á hraðnámskeiði í skattsvikum

2020-03-17T17:17:21+00:0013. mars 2020|

Það fór fram merkileg kennslustund í salnum á þriðju hæð Borgarleikhússins í gærkvöldi. Þar freistuðu félagarnir fimm í leikhópnum Ást og karókí þess að kenna áhorfendum að svíkja undan skatti með því að koma peningunum sínum fyrir í skattaskjóli. Afleitt efni í leiksýningu? Annað kom á daginn! Sýningin Skattsvik Development Group hefst á símtali um [...]