Við eigum alltaf Fjallabak
Það var ekki seinna vænna fyrir mig að sjá Fjallabak í Borgarleikhúsinu því að nú eru aðeins tvær auglýstar sýningar eftir, en verkið var frumsýnt fyrir fimm vikum á Nýja sviði hússins. Leikskáldið Ashley Robinson byggir leikritið á þekktri smásögu eftir Annie Proulx sem einnig var efni ennþá frægari kvikmyndar fyrir tuttugu árum, Brokeback Mountain. [...]