Þú ert hér://Tag: Björn Stefánsson

Skáldsaga verður kvikmynd verður leiksýning

2019-05-03T15:44:54+00:0031. desember 2016|

Fimmta leikgerðin af Sölku Völku Halldórs Laxness var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Ég hafði séð þær fjórar sem á undan fóru en þær eru misjafnlega minnisstæðar. Raunar man ég langbest eftir þeirri fyrstu, frá 1982, sem Stefán Baldursson leikstýrði. Guðrún S. Gísladóttir er ógleymanleg í titilhlutverkinu og ég get ennþá kallað lokasenuna [...]

Það er einn hnöttur og hann er blár

2019-05-06T16:20:19+00:0024. september 2016|

„Ég skil bara ekki hvernig þetta er hægt,“ sagði sessunautur minn, séra Ragnheiður, að lokinni frumsýningu á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, Berg Þór Ingólfsson leikstjóra, Kristjönu Stefánsdóttur tónskáld og Chantelle Carey danshöfund á stóra sviði Borgarleikhússins. Hún átti við frammistöðu barnanna í sýningunni, hvernig þau, svona ung, gátu leikið, sungið, dansað, farið flikk [...]

Njála OK

2019-05-10T13:46:25+00:0031. desember 2015|

Eiginlega er sýning Leikfélags Reykjavíkur á Njálu, sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, eins og Njála sjálf: löng og dramatísk, viðburðarík og djúp, ofbeldisfull, blóðug, hæðin og fyndin, spennandi og þó langdregin og leiðinleg á köflum. Jafnvel tímaskekkjurnar, þegar persónur bregða fyrir sig nýlegum enskuslettum eða bresta út í amerískum dægurlagasöng eða [...]

Kynslóðirnar kljást

2019-05-16T14:03:13+00:0017. október 2015|

Það var sérkennilegt að koma heim úr leikhúsinu í gærkvöldi. Mér leið eins og ég hefði verið á sólarhrings djammi. Framan hefði verið tiltölulega venjulegt, svo hefði orðið uppbrot, smáskandall sem síðan hefði jafnað sig. Smám saman hefði drykkjan tekið yfirhöndina með tilheyrandi söng og dillandi skemmtun, hávaða, þreytu, ergelsi og átökum uns partýið fjaraði [...]

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Að geta eða geta ekki

2019-06-04T07:53:00+00:0011. apríl 2014|

Leikritið Útundan eftir Alison Farina McGlynn, sem var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum Háaloftsins, er í stíl róttæku áranna þegar bókmenntir áttu að hafa beinan samfélagslegan tilgang. Og McGlynn er ekkert að leyna því; verkið hennar er um barnleysi og hún sýnir það vandamál frá furðumörgum sjónarhornum á ekki lengri sýningu. Leikstjóri er [...]