Þú ert hér://Tag: Birgitta Birgisdóttir

Tveggja kvenna reiptog

2026-10-16T14:28:22+00:007. september 2026|

Tjarnarbíó sýnir nú með styrk frá Viva Holding leikritið Breadcrumbs eftir bandaríska leikskáldið Jennifer Haley. Sýningin er á ensku en íslenskum texta er varpað upp á skjá fyrir ofan leikmyndina. Leikstjóri er Juliette Louste sem einnig sér um sviðshreyfingar og ljósahönnun ásamt Owen Hindley. Stephanie Mayer-Staley hannaði leikmyndina sem er nokkuð glúrin – tjöld sem [...]

Þrjár prinsessur

2023-03-20T10:17:45+00:0019. mars 2023|

Síðastliðinn föstudag var leikritið Prinsessuleikarnir eftir Elfriede Jelinek frumsýnt í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur. Raunar voru það ekki nema þrír fimmtu hlutar af verki Jelinek sem rötuðu á Nýja sviðið. Verkið, sem heitir Prinzessendramaen á frummálinu og byggir á skáldsögu höfundarins, Dauðinn og stúlkan, fjallar um fimm prinsessur, Mjallhvíti, Þyrnirós, Jackie Kennedy, Díönu og [...]

Allir alltaf í boltanum

2023-03-07T11:32:05+00:003. mars 2023|

Enn einn smellurinn var frumsýndur í Tjarnarbíó í gærkvöldi, nú af leikhópnum Alltaf í boltanum, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar eftir Ólaf Ásgeirsson og Svein Ólaf Gunnarsson. Leikararnir fimm eru allir karlar en á bak við eru konurnar: Viktoría Blöndal leikstýrir af sönnum krafti, Sólbjört Vera Ómarsdóttir sér um sviðsmynd þar sem goðið sir Alex Ferguson trónir [...]

Ást, hatur, þrá, ofbeldi

2022-03-23T13:15:59+00:0013. mars 2022|

Napolí-fjórleikur Elenu Ferrante opnar lesanda sýn inn í líf tveggja stúlkna sem eru fæddar undir lok seinna stríðs í fátækrahverfi í Napolí á suður Ítalíu og um leið á umhverfi þeirra, „hverfið“, borgina og smám saman landið allt, söguna, pólitíkina og ekki síst kvennapólitíkina, eftir því sem þær stöllur vaxa úr grasi. Þessari sýn reyna [...]

Skáldskapur á að vera sannar myndir af lífinu

2021-09-18T18:05:22+00:0018. september 2021|

Ólafur Egill Egilsson leikstjóri tekur fyrir hvert íkonið af öðru. Fyrst var það Elly, næst Bubbi og í gærkvöldi var frumsýnd í Kassanum rannsókn hans á lífi Ástu Sigurðardóttur, rithöfundar og myndlistarkonu. Ólafur er ekki að brjóta þessar helgimyndir en hann leggur sig fram um að vera heiðarlegur gagnvart þeim og þá kemur auðvitað í [...]

Ævintýri í flundarlegum kafbát

2021-03-25T10:12:23+00:0021. mars 2021|

Barnasýningin Kafbátur eftir Gunnar Eiríksson sem var frumsýnd í Kúlu Þjóðleikhússins í gær (ég sá aðra sýningu sem var í dag) er listaverk hvar sem á hana er litið. Sagan er fjörug með fallegum boðskap, þýðing Bergsveins Birgissonar einkar liðleg, leikurinn góður og sviðið hans Finns Arnars Arnarsonar geggjað snilldarverk! Þetta er dystópía eins og [...]

Erum við búin að fá nóg?

2020-02-24T13:50:47+00:0022. febrúar 2020|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu leikritið Útsendingu sem Lee Hall vann upp úr handriti Paddys Chayefsky að kvikmyndinni Network frá 1976. Leikstjóri Útsendingar er Guðjón Davíð Karlsson, Kristján Þórður Hrafnsson þýðir en Egill Eðvarðsson á heiðurinn af viðamikilli og glæsilegri leikmyndinni sem sýnir okkur króka og kima sjónvarpsstöðvar auk einkaheimila. Helga I. Stefánsdóttir [...]

Ævintýri Djöfulsins í Moskvu

2019-12-27T16:36:07+00:0027. desember 2019|

Rithöfundar eru öfundsverðir, sérstaklega skáldsagnahöfundar. Þeir geta búið til nýjan veruleika og haft hann algerlega eins og þeim sýnist, látið hvað sem er gerast og notið þess. Þetta nýtti rússneska sagnaskáldið Mikhaíl Búlgakov sér rækilega í Meistaranum og Margarítu, en leikgerð Niklas Rådström af þeirri sögu var frumsýnd á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi undir [...]

Norðanstúlka kemur suður

2019-11-15T11:51:16+00:0015. nóvember 2019|

Ég hef alltaf haldið upp á Atómstöðina, kannski vegna þess að ég var norðanstúlka eins og Ugla og mér var strítt svolítið á því í skólanum mínum fyrir sunnan. Þetta er skemmtilega galin saga í stíl, Halldór Laxness leikur sér að því að sjá höfuðborgina með augum lítt reyndrar rúmlega tvítugrar stúlku norðan úr afdal [...]

Hvað er að vera faðir?

2019-09-24T13:40:14+00:0020. september 2019|

Það er erfitt að fara ekki af stað með miklar væntingar þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir leikrit sem ber sama nafn og skáldsaga eftir margverðlaunaðan rithöfund sem hefur gert garðinn frægan víða um lönd. Leikritið Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur) eftir Auði Övu Ólafsdóttur er að vísu ekki leikgerð verðlaunaskáldsögunnar með þessu heiti enda [...]