About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

Jóhanna er víða

2024-08-02T11:25:10+00:002. ágúst 2024|

Grindvíski leikhópurinn Gral frumsýndi í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó leikverkið Ég er ekki Jóhanna af Örk eftir Berg Þór Ingólfsson. Katrín Guðbjartsdóttir leikstýrir en Áróra Bergsdóttir og Emilía Bergsdóttir hafa skapað mjög sannfærandi stúdíó handa persónum verksins. Fjölnir Gíslason hannaði lýsinguna sem var yfirleitt einföld en stóð sig vel þegar á reyndi. Hún (Urður [...]

Hver er náungi minn?

2024-08-02T11:46:38+00:0019. júlí 2024|

Anna Karenina, söguhetja Tolstojs í samnefndri skáldsögu, er líklega frægasta (bókmennta)persónan sem deyr með því að henda sér fyrir járnbrautarlest, en það hafa margir farið að dæmi hennar, bæði í bókmenntum og raunveruleikanum. Í gærkvöldi var frumsýnt hjá Afturámóti í Háskólabíó nýtt leikverk eftir Adolf Smára Unnarsson, Undir, sem snýst um slíkt tilvik. Magnús Thorlacius [...]

Piltur og stúlka endurvakin

2024-08-02T11:49:54+00:0028. júní 2024|

Hólmfríður Hafliðadóttir frumsýndi í gærkvöldi einleik sinn Þegar við erum ein í nýja sviðslistahúsinu Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundur hennar er Melkorka Gunborg Briansdóttir sem einnig leikstýrir. Magnús Thorlacius er dramatúrg, Iðunn Gígja Kristjánsdóttir gerir leikmyndina sem er einföld en virkar vel og tónskáldið er Iðunn Einarsdóttir. Verkið fjallar um ástarsamband tveggja ungmenna en Hólmfríður leikur [...]

Tveggja leiksýninga kvöld

2024-06-26T21:14:41+00:0026. júní 2024|

Dúndurfréttir: Nýtt sviðslistahús hefur verið stofnsett í Reykjavík, Afturámóti. Það hefur aðsetur í Háskólabíó og þar í sal 2 sá ég tvö stutt leikverk í gærkvöldi. Hið fyrra, Hansel og Gretel eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur hafði ég séð áður á Ungleik í Tjarnarbíó í fyrra, hið síðara var Svar við bréfi Petru eftir Gígju Hilmarsdóttur [...]

Heimsókn í Hundraðekruskóg

2024-06-21T11:52:51+00:0020. júní 2024|

Leikhópurinn Lotta er sestur að í Ævintýraskóginum í Elliðaárdal – nema hvað nú heitir hann Hundraðekruskógurinn og titilpersóna nýja söngleiksins er enginn annar en sjálfur Bangsímon. Höfundur og leikstjóri er Anna Bergljót Thorarensen sem líka semur ágæta söngtexta ásamt Baldri Ragnarssyni en höfundar fjörugra laga eru Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Danshöfundur er Sif Elíasdóttir Bachmann [...]

Loftfimleikar og loftslagsvá

2024-06-21T14:05:04+00:0017. júní 2024|

Sviðslistahópurinn Common Nonsense tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík með verkinu Las Vegan eftir Ilmi Stefánsdóttur sem þau sýndu í portinu í Hafnarhúsi. Þetta mikla leiksvæði lögðu þau undir sig með flygil á öðrum endanum sem Davíð Þór Jónsson leikur á og loftfimleikatæki og tól á hinum endanum sem leikendur og sérstakir fimleikamenn (Justyna Micota [...]

Fótboltinn og lífið

2024-06-21T11:49:43+00:0016. júní 2024|

Óperan Skjóta eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur var frumsýnd fyrir skömmu í Ásmundarsal og ég sá hana í gær. Þetta er heimspekilegt verk sem teflir saman á frumlegan hátt fótboltaleik og baráttunni við loftslagsvá. Sigrún Gyða semur bæði texta og tónlist en Baldur Hjörleifsson er með henni í músíkinni; innsetningin utan um verkið er líka eftir [...]

Yeki bood yeki nabood

2024-06-10T13:34:16+00:008. júní 2024|

Eitt sviðslistaverkið á Listahátíð í Reykjavík í ár er einfaldlega kennt við höfundinn, íranska leikskáldið Nassim, og flokkast frekar sem viðburður eða leikhúsupplifun en leikrit. Höfundurinn heitir fullu nafni Nassim Soleimanpour og á við þann vanda að stríða að þótt verk hans séu leikin um víða veröld eru þau aldrei leikin í heimalandi hans. Hann [...]

Raunveruleikinn er stærsta ævintýrið

2024-05-16T15:27:10+00:0012. maí 2024|

Nýlega fékk ég það verkefni að lesa yfir próförk að skáldsögunni Benjamín dúfu eftir Friðrik Erlingsson sem er verið að endurútgefa. Þá rifjaðist upp fyrir mér – þó að ég hefði í rauninni aldrei gleymt því – hvað þetta er ótrúlega góð bók, vel samin, spennandi og makalaust áhrifamikil. Hún var svo fersk í huga [...]

„Jörðin öll virðist titra af tónlist“

2024-05-16T15:23:08+00:0011. maí 2024|

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz sýnir nú á Nýja sviði Borgarleikhússins söngleikinn Oklahoma eftir þá Richard Rogers (tónlist) og Oscar Hammerstein II (leikgerð og söngtextar). Handritið er byggt á leiktexta Óskars Ingimarssonar og söngtextum Egils Bjarnasonar en lagað að núgildandi enskri útgáfu. Að þýðingu við aðlögun komu Kolbrún Halldórsdóttir og Þór Breiðfjörð, í samráði við Orra [...]