About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

„Kærleikur er leikur þar sem allir taka þátt“

2024-10-17T12:51:46+00:0016. október 2024|

Ég hafði aldrei heyrt um Sviðslistakórinn Viðlag fyrr en í gær þegar ég sá sýningu hans Við erum hér í Tjarnarbíó – ef ég hefði heyrt um hann fyrr hefði ég sótt um inngöngu. Þetta er alveg áreiðanlega hressasti hópurinn á svæðinu um þessar mundir, minnir oft á leikhópinn Hugleik á hans fjölmennustu og fjörugustu [...]

Kona vill skilja

2024-10-12T14:43:07+00:0012. október 2024|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins Óskaland eftir bandaríska leikskáldið Bess Wohl í lipurri þýðingu Ingunnar Snædal. Hilmir Snær Guðnason leikstýrði en Börkur Jónsson gerði áferðarfallega en gelda leikmyndina sem reyndist vera góð mynd af lífi fólksins í húsinu. Búningar Urðar Hákonardóttur voru vel við hæfi, einkum var snjallt að klæða utanaðkomandi [...]

Holl messa

2024-10-07T10:37:28+00:007. október 2024|

Leikritið Nauðbeygð messa nýrra tíma eftir Einar Baldvin Brimar var sýnt hjá Afturámóti í Háskólabíó í sumar og hefur nú, sem betur fer, fengið framhaldslíf í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Leikstjóri er Vignir Rafn Valþórsson, Brjánn Hróbjartsson hannar einfalda leikmyndina og Sara Sól Sigurðardóttir sér um skrautlegt búningasafnið. Aðalpersóna verksins, Kláus Alfreðsson (Jakob van Ousterhout) liggur [...]

Sannur Vesturbæingur?

2024-10-06T10:19:26+00:006. október 2024|

Uppistand hlýtur að vera um það bil streitufyllsta starf sem til er. Mig hryllir við tilhugsuninni einni um að standa ein á sviði í tvo tíma og tala. Þetta hefur þó verið aðalatvinna Jakobs Birgis (að eigin sögn) síðan hann var um tvítugt eða í sex ár, og hann frumsýndi nýlega nýtt uppistand, Vaxtarverki, í [...]

„Ég fer í fríið“

2024-10-06T13:13:48+00:005. október 2024|

Fyrsta frumsýning haustsins á stóra sviði Þjóðleikhússins var í gærkvöldi á ærslaleiknum Eltum veðrið eftir leikhópinn og Kjartan Darra Kristjánsson. Leikstjórn er einnig í höndum Kjartans Darra og leikhópsins en frábært tjaldsvæðið á sviðinu gerði Ilmur Stefánsdóttir. Þórhildur Sunna Jóhannsdóttir klæddi útilegufólkið í býsna dæmigerða búninga, allt eftir persónugerð og efnahag, nema hvað eitt parið [...]

Ferðalag um harmaheima

2024-09-22T20:36:45+00:0022. september 2024|

Fyrir ári hóf Birnir Jón Sigurðsson leikárið í Tjarnarbíó með sínu bráðskemmtilega verki Sund sem raunar fær framhaldslíf í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Og í gærkvöldi hófst nýtt leikár í Borgarleikhúsinu með nýju verki eftir hann, Sýslumanni Dauðans sem sýnt er á Nýja sviði. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Mirek Kaczmarek hannar dularfullt og lengst af [...]

Töfrar og vísindi / vísindi og töfrar

2024-09-15T16:51:17+00:0015. september 2024|

Nýjustu töfrar og vísindi heitir glæný sýning Lalla töframanns (eða Lárusar Blöndal Guðjónssonar) sem var frumsýnd í Tjarnarbíó í dag, og hún lofar að hún fái börn til að hugsa. Lalli byrjar á að hita upp, fyrst sjálfan sig með nokkrum laufléttum töfrabrögðum þar sem einn hlutur verður skyndilega allt annar hlutur – til dæmis [...]

Vill einhver elska 29 ára gamla konu í hjólastól?

2024-09-13T09:24:11+00:0013. september 2024|

Taktu flugið ,beibí! eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur var frumsýnt í Kassa Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir leikstýrir verkinu og hún hannaði líka snjalla leikmyndina utan um eina húsgagnið á sviðinu: hjólastól söguhetjunnar. Skemmtilegir og listrænir búningar eru verk Filippíu I. Elísdóttur; lýsingin sem oft tók mið af eða stýrði jafnvel stemningunni er hönnuð af Ástu [...]

Enn heillar Elly

2024-09-07T12:27:10+00:007. september 2024|

Frá fyrstu mínútu situr maður með bjálfalegt bros á andlitinu; við og við verður brosið að hlátri og svo á næstu mínútu deyr hláturinn kannski og augun fyllast af tárum, kökkur lokar hálsinum og maður grætur. Svona djúp áhrif hefur örlagasaga Ellyjar enn og aftur. Söng- og leikverkið um Elly Vilhjálms, Elly, var frumsýnt á [...]

Elskaðu náunga þinn

2024-08-11T16:46:58+00:0011. ágúst 2024|

Geim/vélmenna/stuðsöngleikurinn Vitfús Blú eftir Egil Andrason var frumsýndur í gærkvöldi hjá Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundar eru Hafsteinn Níelsson og Kolbrún Óskarsdóttir. Tónlistin er líka eftir Egil og hana flytur sex manna hljómsveit á sviðinu af gífurlegu fjöri. Árið er 3033. Þrjú þúsund ár eru liðin frá krossfestingu Jesú sonar Maríu og vélmennin hafa í raun [...]