Maðurinn er alltaf einn
Það er orðið talsvert langt síðan Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi verkið X eftir Alistair McDowall á Nýja sviði en atvikin hafa hagað því þannig að ég sá það ekki fyrr en í gær. Jón Atli Jónasson hefur gert á því ágæta þýðingu; hæfilega geimskipslega leikmynd og búninga hannaði Sigríður Sunna Reynisdóttir en ágeng lýsingin er verk ... Lesa meira
Líf með silfurskottu
Gunnar Smári Jóhannesson frumsýndi í gærkvöldi einleik sinn Félagsskapur með sjálfum mér í Tjarnarbíó undir stjórn Tómasar Helga Baldurssonar. Stílhreint leiksviðið sem nýtti rýmið á óvenjulegan hátt hannaði Auður Katrín Víðisdóttir en Íris Rós Ragnhildar sá um tónheiminn sem var óáreitinn. Lýsingin var viðamikil og flókin, breyttist eftir því hvar persónan var stödd í frásögnum ... Lesa meira
Nýtt blóð (og aðrir vessar) í sviðslistum
Ég var svo heppin að ná að sjá útskriftarsýningar tveggja nemenda á sviðshöfundabraut LHÍ núna kringum páskana; bæði lofa góðu um framtíðina. Það fyrra var Mergur eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, tónverk frekar en leikverk þó að vissulega byggi hver þátttakandi til sína persónu eftir föngum. Þeir fengu dálítinn tíma til að móta persónu sína því ... Lesa meira
Sorgarsaga af snillingi
Það var troðið á söguloftinu hjá Einari Kárasyni í gærkvöldi á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Sögumaður okkar gat ekki gengið alveg frjálslega um gólf eins og hann er vanur vegna þrengslanna. En hann lét þau ekki á sig fá, sagði bara sína sögu, íhugull, nákvæmur, skýr og áheyrilegur. Ég var nokkuð spennt að vita hvernig hann ... Lesa meira
Kónguló sem spinnur inn í tómið
Viðtal Silju Aðalsteinsdóttur við Matthías Johannessen Úr Tímariti Máls og menningar, 3. hefti 1996 Matthías Johannessen um 1958 þegar Borgin hló kom út Matthías Johannessen skáld og ritstjóri er fæddur í Reykjavík 3. janúar 1930. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1950 og hóf nám í íslenskum fræðum ... Lesa meira
Svikuli tenórinn og snjalli sópraninn
Þau eru gífurlega skemmtileg og líka feikna flink unga fólkið í Sviðslistahópnum Óði sem nú færir okkur í þriðja sinn gamanóperur í Þjóðleikhúskjallaranum. Í þetta sinn er það ópera sem aldrei hefur sést hér áður á sviði, Póst-Jón eða Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam (1803–1856). Enn er það sópraninn í hópnum, ... Lesa meira
Ljóð úr Heyrnarlausu lýðveldi
Eftir Ilya Kaminsky Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2024 Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson þýddi Eftirlitsstöðvar Á götunum setja hermennirnir upp heyrnareftirlitsstöðvar og negla tilkynningar á staura og dyr: HEYRNARLEYSI ER SMITANDI SJÚKDÓMUR. YKKUR TIL VARNAR ÞARF AÐ SETJA ALLA ÞEGNA Á MENGUÐUM SVÆÐUM Í SÓTTKVÍ INNAN 24 KLUKKUSTUNDA! ... Lesa meira
Dauði Thors Vilhjálmssonar
Eftir Guðberg Bergsson Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2024. Guðmundur Andri Thorsson þýddi Nokkrum vikum eða ef til vill nokkrum mánuðum fyrir andlát sitt lét Thor Vilhjálmsson gamlan draum sinn rætast: að fara frá Íslandi að vorlagi og halda í pílagrímsferð og ganga Jakobsveginn í fótspor dýrlingsins heilags Jakobs. Í anda ... Lesa meira
Stefnumót í Kópavogi
Sá dásamlegi listamaður og leikari Árni Pétur Guðjónsson fær leikfélaga við hæfi í sýningunni … og hvað með það sem var frumsýnd í Leikhúsinu í Kópavogi (Funalind 2) í gærkvöldi. Þetta er samsköpunarverkefni, samið af Rúnari Guðbrandssyni leikstjóra, Árna Pétri sjálfum og leikfélaganum, Sigurði Edgar Andersen, dansara og boylesque-listamanni. Arnar Ingvarsson sér um ljós og ... Lesa meira