Þú ert hér://2015

„Einræn krútt við hnattrænt tjútt“

2019-05-17T15:56:07+00:0011. apríl 2015|

Nú hefur Stúdentaleikhúsið hreiðrað um sig í nýju leikhúsrými að Strandgötu 75 í Hafnarfirði, ekki langt frá Gaflaraleikhúsinu. Þarna var bílaverkstæði en krakkarnir hafa aldeilis tekið til hendinni. Allt er hvítskúrað, snyrtilega málað, teppalagt og búið skemmtilegu samsafni af húsgögnum og leikmunum úr bílskúrum foreldranna. Þar frumsýndu þau svo í gær leikverkið MIG eftir sjálf ... Lesa meira

Vandinn að leika við áhorfendur

2019-05-17T16:16:54+00:0010. apríl 2015|

Spindrift Theatre hefur lagt undir sig Tjarnarbíó í rúma viku fyrir sýningu sína Carroll berserkur sem Bergdís Júlía Jóhannsdóttir leikstýrir, og þegar ég segi „leggja undir sig“ eru það ekki bara orðin tóm. Mig hefði aldrei grunað að það væru svona margar ólíkar vistarverur í því litla húsi. Þetta er svonefnt þátttökuleikhús sem ég hef ... Lesa meira

Stórmenni á Söguloftinu

2019-05-17T16:12:27+00:003. apríl 2015|

Steinunn Jóhannesdóttir frumsýndi verk sitt um Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur á Söguloftinu í Landnámssetrinu í Borgarnesi í gærkvöldi við húsfylli. Þar segir hún frá þeim hjónum, lífi þeirra hvors um sig áður en þau hittast, fundum þeirra og lífi saman og tekur frásögnin rúmlega tvo tíma með hléi. Steinunn flytur mál sitt blaðalaust, talar ... Lesa meira

Arfur fortíðar

2019-05-17T16:08:34+00:0028. mars 2015|

Sokkabandið frumsýndi nýtt leikrit eftir Kristínu Eiríksdóttur í gærkvöldi á Litla sviði Borgarleikhússins, Hystory, undir stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Titillinn er væntanlega leikur að gríska orðinu „huster“, sem þýðir leg og er stofninn í hinu vinsæla orði hystería yfir sefasýki eða móðursýki, og svo enska orðinu „history“ eða sagnfræði. Titillinn er markviss: þetta er geðveik ... Lesa meira

Ástin og dauðinn á fjöllum

2019-05-20T10:20:57+00:0027. mars 2015|

Ég var bæði búin að kvíða fyrir og hlakka til að sjá Fjalla-Eyvind og Höllu í Þjóðleikhúsinu, rosalega spennt að vita hvernig Stefan Metz færi með þessa gömlu klassík okkar sem hver kynslóð verður að fá sína útgáfu af. Það voru útlendingar sem báru þetta verk fram og hófu það til vegs og virðingar upphaflega, ... Lesa meira

„Nóttin er til þess að gráta í“

2019-05-20T13:36:43+00:0023. mars 2015|

Við sáum loksins Segulsvið Sigurðar Pálssonar í gærkvöldi í Kassa Þjóðleikhússins, undrafagra sýningu þar sem hvað styður annað: margslungið leiksvið Gretars Reynissonar, táknvísir búningar Þórunnar Maríu Jónsdóttur, snjöll lýsing og ævintýraleg myndbandshönnun Halldórs Arnar Óskarssonar og Magnúsar Arnars Sigurðarsonar og skemmtileg hljóðmynd Úlfs Eldjárn og Kristjáns Sigmundar Einarssonar. Öllu haldið saman af óbrigðulum smekk leikstjórans, ... Lesa meira

Út yfir gröf og dauða

2019-05-20T16:19:04+00:0021. mars 2015|

Í gærkvöldi frumsýndi Leikfélag Reykjavíkur nýtt leikrit, Er ekki nóg að elska, eftir eitt helsta núlifandi leikskáld okkar, Birgi Sigurðsson, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri var Hilmir Snær Guðnason sem lék aðalhlutverkið í síðasta sviðsverki Birgis, Dínamíti, og leikstýrði síðustu uppsetningu á Degi vonar, þekktasta verki hans. Vytautas Narbutas gerir leikmyndina sem er stórglæsileg og ... Lesa meira

„Þar skall helvítis hurð nærri hælum“

2019-05-20T16:31:19+00:0016. mars 2015|

Það fór kannski ekki mjög hátt en í gærkvöldi var frumsýnd í Iðnó ný íslensk ópera, Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Hún er löngu þekkt meðal leikhúsáhugamanna – að minnsta kosti Hugleikhúsáhugamanna – fyrir leikrit sín, óperur og söngleiki, síðasta verk hennar af því tagi var Stund milli stríða sem var valin besta áhugaleikhússýningin í ... Lesa meira

… en maður verður að rækta garðinn sinn

2019-05-20T17:29:16+00:0015. mars 2015|

Birtíngur eftir franska heimspekinginn Voltaire (útg. 1759) er eitt frægasta verk franskra bókmennta og við vorum svo heppin hér á landi að Halldór Laxness eyddi tólf dögum af lífi sínu árið 1945 í að snara henni. Þýðingin ber þessum vinnuhraða nokkurt vitni en sennilega græðir verkið fremur en það tapar á hraðanum. Það er eitthvert ... Lesa meira

Sjónarspilið samtíminn

2019-05-20T17:22:37+00:0014. mars 2015|

Minnisvarði 16 elskenda í Tjarnarbíó er skrautlegur gjörningur með fallegu fólki en sýningin hefur ekki eins skýrt afmarkað efni og tilgang og fyrri sýningar hópsins sem ég hef séð. Satt að segja datt mér í hug í gærkvöldi að ég væri orðin of gömul fyrir þau. Sýningin hefur fengið talsvert mikið hól frá gagnrýnendum, enda ... Lesa meira