Þú ert hér://Tag: Tyrfingur Tyrfingsson

Kvöldstund með Heiðari snyrti

2024-01-26T10:47:50+00:0020. janúar 2024|

  „Þú gætir kallað umsögnina þína Veislu undir grjótvegg,“ sagði fylgdarmaður minn þegar við vorum sest inn í Litla sal Borgarleikhússins í gærkvöldi og virtum fyrir okkur glæsilega sviðsmynd Barkar Jónssonar, háa, grófa og margbrotna Drápuhlíðargrjótvegginn sem húsbóndinn á heimilinu, Ingi (Sigurður Þór Óskarsson), skreytir með rauðum ljósaklösum meðan gestir á Lúnu eftir Tyrfing Tyrfingsson [...]

„Ég er fífl, ég er skúrkur“

2023-09-13T09:54:16+00:0010. september 2023|

Fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöldi í Kassanum á Ást Fedru, vægðarlausu leikriti eftir breska leikskáldið Söruh Kane í prýðilegri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir, Filippía I. Elísdóttir sér um leikmynd og búninga, Tumi Árnason um tónlist og Ásta Jónína Arnardóttir um ljós og myndbönd. Goðsagan forna um drottninguna sem girntist stjúpson [...]

Lækningamáttur játninga

2022-05-17T09:43:06+00:0023. apríl 2022|

Fyrir níu árum, í apríl 2013, skrifaði ég umsögn um fyrsta leikrit Tyrfings Tyrfingssonar, einþáttung sem var einn af þremur eftir ný leikskáld sem sýndir voru saman undir yfirskriftinni Núna í Borgarleikhúsinu. Þar segir: „Annaðhvort gat Skúrinn á sléttunni verið útdráttur úr löngu leikriti eða fyrsti þáttur í lengra verki. Það breytir þó ekki því að þetta [...]

Feður, synir og dætur

2020-01-18T18:13:05+00:0018. janúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson, Helgi Þór rofnar, á Nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Stefáns Jónssonar. Eins og Tyrfingur vísaði í grískar goðsögur um Fedru og Hyppólýtus í síðasta verki sínu, Kartöfluætunum, vísar hann hér í goðsögurnar um Kassöndru og fleiri grískar hetjur, lætur örlög guða og mikilmenna endurspeglast í [...]

Glæpurinn eða refsingin

2019-04-03T16:57:59+00:0022. september 2017|

Flókin fjölskyldumál eru viðfangsefni Tyrfings Tyrfingssonar í Kartöfluætunum sem voru frumsýndar á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir styrkri og hugmyndaríkri stjórn Ólafs Egils Egilssonar. Þetta er þriðja verk Tyrfings sem ég sé á sviði; síðast var það Auglýsing ársins en þar áður Bláskjár og einþáttungurinn Skúrinn á sléttunni. Að mínu mati – alla vega [...]

Niðurlæging mannsins

2019-05-08T15:08:10+00:0017. apríl 2016|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Auglýsingu ársins, fjörugt og ógnvænlegt nýtt verk eftir Tyrfing Tyrfingsson, á nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson og margslungna, síbreytilega leikmynd gerði Eva Signý Berger. Leikritið gerist á auglýsingastofu sem má muna sinn fífil fegurri. Eigandinn (Theodór Júlíusson) er meðal annars frægur fyrir auglýsinguna á nýju símanúmeri Hreyfils [...]

Í kjallaranum

2019-06-12T11:09:55+00:009. febrúar 2014|

Bláskjár var ein af mínum uppáhaldsbókum í bernsku og ekki síst þess vegna var tilhlökkunarefni að sjá samnefnt leikrit Tyrfings Tyrfingssonar sem frumsýnt var á vegum Óskabarna ógæfunnar á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Mér er líka í fersku minni morðfyndinn einþáttungur Tyrfings á sama sviði í fyrra, „Skúrinn á sléttunni“. Tyrfingur hefur greinilega mikinn [...]

Núna var gaman

2019-06-12T16:06:54+00:0013. apríl 2013|

Þrjú leikskáld frumsýndu nýja einþáttunga á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi við háværa ánægju gesta sem troðfylltu salinn. Yfirfyrirsögnin var Núna sem vísar bæði til þess að verkin eru flunkuný og eiga að segja okkur eitthvað um tímann sem við lifum núna. Salka Guðmundsdóttir átti Svona er það þá að vera þögnin í hópnum, Kristín Eiríksdóttir Skríddu og [...]