Þú ert hér://Tag: Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir

Mútta fer í stríð

2023-11-08T12:48:24+00:005. nóvember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi á stóra sviðinu fyrir rúmri viku leikritið Múttu Courage og börnin eftir Bertolt Brecht og Margarete Steffin í nýrri þýðingu Bjarna Jónssonar. Verkið var sýnt áður á því sviði fyrir nærri því sextíu árum (1965) og hefur sú sýning orðið ein af goðsögnum íslensks leikhúss. Skemmra er síðan ég sá sýningu Mörtu Nordal [...]

„Búum til betri heim“

2023-03-06T11:53:38+00:006. mars 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu fjölskyldusöngleikinn Draumaþjófinn eftir Björk Jakobsdóttur sem byggður er á skáldsögu Gunnars Helgason með sama nafni frá 2019. Dillandi fjörug tónlistin er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson sem er líka tónlistarstjóri en söngtextana sömdu þau sundur og saman Björk, Gunnar og Hallgrímur Helgason. Ævintýraleg leikmyndin, dularfullur, margslunginn, sannfærandi og hrífandi [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]

Lækningamáttur játninga

2022-05-17T09:43:06+00:0023. apríl 2022|

Fyrir níu árum, í apríl 2013, skrifaði ég umsögn um fyrsta leikrit Tyrfings Tyrfingssonar, einþáttung sem var einn af þremur eftir ný leikskáld sem sýndir voru saman undir yfirskriftinni Núna í Borgarleikhúsinu. Þar segir: „Annaðhvort gat Skúrinn á sléttunni verið útdráttur úr löngu leikriti eða fyrsti þáttur í lengra verki. Það breytir þó ekki því að þetta [...]

Ást, hatur, þrá, ofbeldi

2022-03-23T13:15:59+00:0013. mars 2022|

Napolí-fjórleikur Elenu Ferrante opnar lesanda sýn inn í líf tveggja stúlkna sem eru fæddar undir lok seinna stríðs í fátækrahverfi í Napolí á suður Ítalíu og um leið á umhverfi þeirra, „hverfið“, borgina og smám saman landið allt, söguna, pólitíkina og ekki síst kvennapólitíkina, eftir því sem þær stöllur vaxa úr grasi. Þessari sýn reyna [...]

Hver er nashyrningur?

2021-04-27T13:27:43+00:0024. apríl 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær og fyrrakvöld Nashyrningana eftir Eugène Ionesco – frumsýningarnar voru tvær vegna þess að aðeins má hálffylla salinn vegna farsóttarinnar. Ný fantagóð þýðing er eftir Guðrúnu Vilmundardóttur og leikstjóri er Benedikt Erlingsson sem sjálfur vann leiksigur sem menntaskólanemi í hlutverki Róberts, sem Hilmir Snær Guðnason leikur nú.[1] Leikmynd er eftir Börk Jónsson, [...]

Erum við búin að fá nóg?

2020-02-24T13:50:47+00:0022. febrúar 2020|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær á stóra sviðinu leikritið Útsendingu sem Lee Hall vann upp úr handriti Paddys Chayefsky að kvikmyndinni Network frá 1976. Leikstjóri Útsendingar er Guðjón Davíð Karlsson, Kristján Þórður Hrafnsson þýðir en Egill Eðvarðsson á heiðurinn af viðamikilli og glæsilegri leikmyndinni sem sýnir okkur króka og kima sjónvarpsstöðvar auk einkaheimila. Helga I. Stefánsdóttir [...]

Að vera eða ekki vera – viss

2019-05-27T11:22:40+00:0015. janúar 2018|

Síðasta sýningin sem ég sá þessa mögnuðu leikhúshelgi var Efi – dæmisaga, nýlegt bandarískt verk eftir John Patrick Shanley, sem var frumsýnt í Kassanum á laugardagskvöldið undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Við sáum aðra sýningu í gærkvöldi. Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir gerir einfalda, skýra og markvissa leikmynd og prýðilega þýðingu gerir Kristján Þórður Hrafnsson. Leikritið kemur til [...]