Þú ert hér://Tag: Móeiður Helgadóttir

Öræfaferð á aðventunni

2023-12-12T13:44:29+00:008. desember 2023|

Leikhópurinn Rauði sófinn hefur lagt undir sig Nýja sviðið í Borgarleikhúsinu og sýnir þar nýstárlega leikgerð af Aðventu Gunnars Gunnarssonar. Eiginlega teiknimyndargerð af sögunni með örfáum lykilsetningum sem að vísu eru sagðar upphátt en ekki skrifaðar inn í málbólur. Ég sé skýr fingraför Egils Ingibergssonar, Móeiðar Helgadóttur og Þórarins Blöndal á sýningunni, minnist með ánægju [...]

Að missa vitið að mismiklu leyti

2022-02-06T14:32:17+00:005. febrúar 2022|

Það var sæluvíma yfir gestum Borgarleikhússins í gærkvöldi þegar frumsýnt var í báðum minni sölunum, dansverk á Nýja sviði, leikrit á Litla sviði; fólki fannst greinilega sem það hefði endurheimt dýrmætan hluta af lífi sínu. Þó voru allir með grímu og ekkert var í boði að drekka annað en kolsýrt te! Sýningin á Litla sviðinu [...]

„Týnd er æra, töpuð er sál“

2021-03-08T13:07:50+00:005. mars 2021|

  Dæmdar konur fyrri alda fá nú uppreist æru hver af annarri. Bubbi Morthens söng um þær í titillagi plötunnar 18 konur og nefndi þar sérstaklega Þórdísi Halldórsdóttur sem vígði Drekkingarhyl árið 1618. Þórdís fékk svo um sig heila skáldsögu síðastliðið haust þegar Þóra Karítas Árnadóttir gaf út Blóðberg. Og nú hefur leikflokkurinn Svipir tekið [...]

Einar klaufabárður

2019-05-03T16:02:45+00:0026. nóvember 2016|

Allir kannast við það að senda barn til að ná í eitthvað og bíða svo von úr viti af því barnið finnur eitthvað allt annað til að gera og gleymir sér gersamlega. Stundum er þetta prýðileg leið til að fá stundarfrið fyrir barninu án þess að það gruni að maður sé að reyna að losna [...]

Fjölbreytnin lifi

2019-05-08T10:07:33+00:0030. júní 2016|

Loksins í gær komst ég á nýjustu sýningu Leikhópsins Lottu, Litaland, sem var frumsýnd í lok maí. Í Reykjavík sýna þau í Ævintýraskógi Elliðaárdalsins, að venju, en þau fara líka beinlínis um allt land með sýninguna. Í þetta sinn semur Anna Bergljót Thorarensen sitt eigið ævintýri í stað þess að vinna út frá þekktum minnum [...]

Tvær konur á Akureyri

2019-05-22T11:59:37+00:0010. janúar 2015|

Lísa og Lísa Tjarnarbíó tekur vel á móti Lísu og Lísu frá Akureyri, endurraðar í salnum þannig að áhorfendur sitja allt í kringum þær. Þær eru umkringdar gestum sínum og fer vel á því. Á myndum frá Akureyrarsýningunni má sjá að þessi uppröðun breytir nokkru, hér hafa þær til dæmis enga veggi til [...]

Eyja glataðra sálna

2020-01-30T14:46:12+00:007. febrúar 2010|

Þeir eru sammála um það Sjón og breski hagfræðiprófessorinn Robert Wade, sem hélt fyrirlestur í Reykjavík fyrir helgi, að kreppan núna, þótt kröpp sé, hafi ekki drepið nýfrjálshyggjuna. Hún lifi og muni fara aftur á kreik þótt hún hafi kannski hægt um sig akkúrat núna. Þetta er auðvitað svartsýni, enda er leikrit Sjóns, Ufsagrýlur, sem [...]