Þú ert hér://Tag: Melkorka Gunborg Briansdóttir

Vítahringur hefndarinnar

2025-12-27T16:51:27+00:0027. desember 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum endurgerð leikstjórans Benedicts Andrews á Óresteiu, þríleik gríska leikskáldsins Æskilosar (525 – 456 f.Kr). Kristín Eiríksdóttir hefur unnið vandaða þýðingu sem flæðir einstaklega vel og kemur skýrt til skila ólgandi og oft andstæðum tilfinningum og skilaboðum textans auk hnyttinna skírskotana til samtímans. Þó leiddist mér ákaflega klifun á blótsyrðinu [...]

Piltur og stúlka endurvakin

2024-08-02T11:49:54+00:0028. júní 2024|

Hólmfríður Hafliðadóttir frumsýndi í gærkvöldi einleik sinn Þegar við erum ein í nýja sviðslistahúsinu Afturámóti í Háskólabíó. Meðhöfundur hennar er Melkorka Gunborg Briansdóttir sem einnig leikstýrir. Magnús Thorlacius er dramatúrg, Iðunn Gígja Kristjánsdóttir gerir leikmyndina sem er einföld en virkar vel og tónskáldið er Iðunn Einarsdóttir. Verkið fjallar um ástarsamband tveggja ungmenna en Hólmfríður leikur [...]

Tveggja leiksýninga kvöld

2024-06-26T21:14:41+00:0026. júní 2024|

Dúndurfréttir: Nýtt sviðslistahús hefur verið stofnsett í Reykjavík, Afturámóti. Það hefur aðsetur í Háskólabíó og þar í sal 2 sá ég tvö stutt leikverk í gærkvöldi. Hið fyrra, Hansel og Gretel eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur hafði ég séð áður á Ungleik í Tjarnarbíó í fyrra, hið síðara var Svar við bréfi Petru eftir Gígju Hilmarsdóttur [...]

„Nú er ekkert eins og fyr“

2024-05-10T11:53:48+00:009. maí 2024|

Það eru of margar mis-skyldar hugmyndir í verkinu Sveitabær í bæjarsveit eftir Melkorku Gunborgu Briansdóttur, sem hún frumsýndi í Listaháskólanum í kvöld, en þær mega eiga það að þær voru allar góðar út af fyrir sig! Það er afskaplega gaman að sjá og heyra hvað ungu sviðshöfundarnir okkar eru frjóir, hugkvæmir og vel skrifandi. Leiktexti [...]

Nýtt blóð (og aðrir vessar) í sviðslistum

2024-04-05T08:50:13+00:004. apríl 2024|

Ég var svo heppin að ná að sjá útskriftarsýningar tveggja nemenda á sviðshöfundabraut LHÍ núna kringum páskana; bæði lofa góðu um framtíðina. Það fyrra var Mergur eftir Katrínu Lóu Hafsteinsdóttur, tónverk frekar en leikverk þó að vissulega byggi hver þátttakandi til sína persónu eftir föngum. Þeir fengu dálítinn tíma til að móta persónu sína því [...]

Þetta er ungt og leikur sér

2023-11-08T22:57:46+00:008. nóvember 2023|

Ég hef alls ekki fylgst nógu vel með fyrirbærinu Ungleik gegnum tíðina, þó að þau fáu skipti séu verulega minnisstæð. Og í gær sá ég fjögur stutt verk undir þessari yfirskrift í Tjarnarbíó og það var vægast sagt hressandi upplifun. Auglýst er eftir handritum og getur fólk á aldrinum 16–25 ára sent inn í samkeppnina. [...]

Ha? Nei! Já, akkúrat!

2023-06-21T14:09:34+00:0019. maí 2023|

Frumsýningargestir Tjarnarbíós í gærkvöldi gengu inn í gufubað. Salargólfið var fljótandi í volgu vatni sem persónurnar, Rakel Ýr Stefánsdóttir, Jökull Smári Jakobsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir, böðuðu fætur sína í, skvettu hvert á annað og sulluðu svolítið. Enda heitir verkið Lónið og vísar til þess að nú er enginn staður á landinu eftirtektarverður eða heimsóknar [...]

Ekki fyrir viðkvæma

2023-05-15T12:32:40+00:0027. apríl 2023|

Sviðslistahópurinn Fullorðið fólk endurfrumsýndi verkið Stelpur og stráka eftir Bretann Dennis Kelly í Tjarnarbíó í gærkvöldi eftir leikferð um landið. Þetta er glænýtt leikrit, frumsýnt í London 2018, og hefur vakið mikla athygli enda svo ágengt að kalla má sjokkerandi. Matthías Tryggvi Haraldsson og Melkorka Gunborg Briansdóttir þýða textann, Annalísa Hermannsdóttir á snjalla leikmyndina og [...]

Veröld á röngunni

2023-03-31T14:17:05+00:001. apríl 2023|

Melkorka Gunborg Briansdóttir Eftir Melkorku Gunborg Briansdóttur Um markleysu sem kollvörpunartól í bókmenntum Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2023         Fyrir mér er enginn hlutur svo heilagur, að ég sjái ekki jafnframt eitthvað skoplegt við hann. En í því skoplega finn ég einnig návist guðs. Ef til vill [...]

„Í góðsemi vegur þar hver annan“

2022-12-30T10:36:38+00:002. desember 2022|

Myndlistarmaðurinn Sigurður Ámundason frumsýndi í gærkvöldi leikrit sitt Hið ósagða í Tjarnarbíó, svartan gamanleik sem afhjúpar af miskunnarleysi sjálfselska beiskju nútímafólks. Sjálfur leikur Sigurður eitt hlutverkið í leiknum auk þess sem hann bæði leikstýrir og framleiðir sýninguna. Kvikmyndin sem við sjáum á baktjaldi er eftir hann líka, óteljandi klipp héðan og þaðan í ógnarhraðri framrás [...]