Þú ert hér://Tag: Leikfélagið Hugleikur

Ó, þetta er indælt stríð

2019-12-02T16:57:17+00:001. desember 2019|

Í pistli sínum í leikskrá Gestagangs segir leikstjórinn, Þorgeir Tryggvason, að áhugaleikfélagið Hugleikur hafi verið stofnað til að „borgarbúum byðust loksins sömu tækifæri til listsköpunar og landsbyggðafólkið hafði notið eins lengi og elstu menn mundu“. Í nýju sýningunni má sjá þessa hugsjón í verki því alls taka þar þátt yfir þrjátíu manns, leikarar og hljómlistarmenn. [...]

Fjörugur og fyndinn hráskinnaleikur

2019-03-15T09:56:57+00:0021. apríl 2018|

Leikfélagið Hugleikur frumsýndi sína fyrstu sýningu í nýju Hugleikshúsi við Langholtsveg í gærkvöldi. Húsið er þekkt sem Fóstbræðraheimilið en gestir Hugleikara ganga inn baka til. Þetta er góður staður og fer vonandi vel um félagið þar. Nýja verkið heitir Hráskinna og er eftir þekkt Hugleiksskáld, Ármann Guðmundsson, Ástu Gísladóttur, Sigríði Báru Steinþórsdóttur og Þorgeir Tryggvason, [...]

Ekkert veit á gott

2019-05-08T11:39:13+00:0030. apríl 2016|

Ef það er til eitt íslenskt skáldverk sem ég hefði fullyrt að ekki væri nokkur leið að skopstæla þá er það Svartfugl Gunnars Gunnarssonar. Þetta gera þó Hugleikarar núna í nýju leikverki eftir Ljóta hálfvitann Ármann Guðmundsson, Feigð, sem sýnt er í Kartöflugeymslunum ofan við Elliðaár. Ármann leikstýrir líka. Í Skollakoti býr nirfillinn Greipur bóndi [...]

„Þar skall helvítis hurð nærri hælum“

2019-05-20T16:31:19+00:0016. mars 2015|

Það fór kannski ekki mjög hátt en í gærkvöldi var frumsýnd í Iðnó ný íslensk ópera, Sæmundur fróði eftir Þórunni Guðmundsdóttur. Hún er löngu þekkt meðal leikhúsáhugamanna – að minnsta kosti Hugleikhúsáhugamanna – fyrir leikrit sín, óperur og söngleiki, síðasta verk hennar af því tagi var Stund milli stríða sem var valin besta áhugaleikhússýningin í [...]

Sögulegur afmælissöngleikur

2019-05-28T00:09:45+00:0013. apríl 2014|

Áhugaleikfélagið Hugleikur er þrítugt í ár og setur nú upp sína fertugustu sýningu í fullri lengd í Tjarnarbíó. Þetta er söngleikurinn Stund milli stríða eftir Þórunni Guðmundsdóttur, ekta hugleiksk skemmtun undir stjórn Jóns St. Kristjánssonar. Óhætt er að hvetja alla sem unna góðum söngtextum, áheyrilegum og söngvænum lögum og hnyttnu, sögulegu spéi til að drífa [...]

Að skila eða ekki

2019-06-12T15:46:50+00:0029. apríl 2013|

Hugleikur frumsýndi í gærkvöldi nýtt leikrit eftir Ástu Gísladóttur, Spilaborgir, í húsnæði leikfélagsins við Eyjarslóð. Leikstjórar voru þeir gamalreyndu hugleikarar Sigurður H. Pálsson og Þorgeir Tryggvason en leikararnir voru nýir – í mínum augum að minnsta kosti. Það er greinilega enginn hörgull á fólki sem langar til að vera með í áhugaleikfélagi í Reykjavík. Aðalpersóna Spilaborga [...]

Vandinn að verða afi

2019-08-24T12:01:54+00:0016. apríl 2011|

Maður var farinn að halda að unga fólkið væri búið að taka Hugleik yfir en nú kemur gamla liðið aftur á vettvang og hefur aldrei verið betra. Í leikritinu Einkamál.is eftir Árna Hjartarson sem var frumsýnt í húsnæði Hugleiks á Eyjarslóð í gærkvöldi undir stjórn Þorgeirs Tryggvasonar og Huldu B. Hákonardóttur er Rúnar Lund í [...]

Vandamál unga fólksins

2019-08-24T14:12:19+00:0028. janúar 2011|

Hugleikur sýnir nú nýtt leikrit eftir Sigríði Láru Sigurjónsdóttur (sem samdi hinn minnisstæða sjónleik Unga menn á uppleið um árið) í húsnæði sínu við Eyjarslóð. Verkið heitir Helgi dauðans og lýsir viðburðaríkri helgi, frá föstudagskvöldi til sunnudags, í lífi hóps háskólanema. Unga fólkið virðist vera að mynda sig til að taka Hugleik yfir því síðasta [...]

Heimsfrægð eða dauði

2020-01-24T16:32:12+00:007. maí 2010|

Ég fór að sjá nýjasta Hugleikinn í gærkvöldi í nýju húsnæði þess ágæta áhugamannaleikfélags úti í Örfirisey, Rokk. Það var alveg þreföld ánægja. Í fyrsta lagi að þessi yndislegi hópur skuli vera kominn með “eigið” húsnæði (þó að stólarnir séu ekki góðir við gömul bök og rassa), í öðru lagi að ný kynslóð skuli vera [...]

Hláturinn lengi lifi

2020-01-31T15:01:35+00:0016. maí 2009|

Ég fékk góða útrás fyrir hláturþörfina í vikunni. Á fimmtudagskvöldið sá ég Kristján Ingimarsson leika listir sínar í Kassanum í sýningu sinni Creature - og hvílíkar listir! Og í gærkvöldi horfði ég á söguna gömlu um Sigríði og Indriða lifna við enn einn ganginn hjá Hugleik á Smíðaverkstæðinu í leikritinu Ó, þú aftur. Ég veit ekki hvort Jón [...]