Þú ert hér://Tag: Kristín Eiríksdóttir

Vítahringur hefndarinnar

2025-12-27T16:51:27+00:0027. desember 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi í Kassanum endurgerð leikstjórans Benedicts Andrews á Óresteiu, þríleik gríska leikskáldsins Æskilosar (525 – 456 f.Kr). Kristín Eiríksdóttir hefur unnið vandaða þýðingu sem flæðir einstaklega vel og kemur skýrt til skila ólgandi og oft andstæðum tilfinningum og skilaboðum textans auk hnyttinna skírskotana til samtímans. Þó leiddist mér ákaflega klifun á blótsyrðinu [...]

Allt – sinnum hundrað þúsund

2024-05-10T11:55:58+00:004. maí 2024|

Leikhópurinn Svartur jakki frumsýndi í gærkvöldi í samstarfi við Þjóðleikhúsið Óperuna hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Kristínu Eiríksdóttur, í Kassa Þjóðleikhússins. Guðný Hrund Sigurðardóttir gerir fantalega spennandi búninga, Friðþjófur Þorsteinsson hannar vandaða lýsingu, Hákon Pálsson gerir myndbandið sem er bæði upplýsandi og smart en Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir heldur utan um allt saman og [...]

„Ég er fífl, ég er skúrkur“

2023-09-13T09:54:16+00:0010. september 2023|

Fyrsta frumsýning leikársins í Þjóðleikhúsinu var í gærkvöldi í Kassanum á Ást Fedru, vægðarlausu leikriti eftir breska leikskáldið Söruh Kane í prýðilegri þýðingu Kristínar Eiríksdóttur. Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir, Filippía I. Elísdóttir sér um leikmynd og búninga, Tumi Árnason um tónlist og Ásta Jónína Arnardóttir um ljós og myndbönd. Goðsagan forna um drottninguna sem girntist stjúpson [...]

Konur eru konum verstar

2023-02-20T13:13:32+00:0020. febrúar 2023|

Það er líf og fjör í Tjarnarbíó þetta misseri sem oftar og í gærkvöldi sá ég nýjustu sýninguna þar, Samdrætti eftir Mike Bartlett, tveggja kvenna verk undir stjórn Þóru Karítasar Árnadóttur. Kristín Eiríksdóttir þýðir, Sean Mackaout sér um leikmynd og búninga, lýsingin er á hendi Ólafs Ágústs Stefánssonar og Valgeir Sigurðsson sá um tónlist og [...]

Tól með sál

2023-02-16T10:00:59+00:0016. febrúar 2023|

Kristín Eiríksdóttir: Tól. JPV útgáfa, 2022. 349 bls. Úr Tímariti Máls og menningar, 1. hefti 2023. Í riti sínu Stjórnspekinni skrifaði forngríski heimspekingurinn Aristóteles fræga greiningu á stöðu þræla innan borgríkisins gríska. Þrællinn er, eins og hann orðaði það, organon empsykhon, þ.e. tæki, eða tól, með sál. Hann er þannig aðeins til á forsendum meistara [...]

Að missa vitið að mismiklu leyti

2022-02-06T14:32:17+00:005. febrúar 2022|

Það var sæluvíma yfir gestum Borgarleikhússins í gærkvöldi þegar frumsýnt var í báðum minni sölunum, dansverk á Nýja sviði, leikrit á Litla sviði; fólki fannst greinilega sem það hefði endurheimt dýrmætan hluta af lífi sínu. Þó voru allir með grímu og ekkert var í boði að drekka annað en kolsýrt te! Sýningin á Litla sviðinu [...]

Rita gengur aftur

2020-09-22T12:13:49+00:0019. september 2020|

Leikritið Oleanna eftir David Mamet sem var frumsýnt í gærkvöldi á Nýja sviði Borgarleikhússins í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur er ekki nýtt verk, það var frumsýnt í Bandaríkjunum árið 1992 og er því bráðum þrítugt. Þó að það beri aldurinn í vel af því að þetta er vel samið leikrit þá geri ég ráð fyrir að [...]

Hundrað og fimmtíu fermetrar á hundrað þúsund kall

2020-03-04T13:39:05+00:004. mars 2020|

Eftir Kristínu Eiríksdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013. Kristín Eiríksdóttir / Mynd: Saga Sig Þau gátu ekki annað en tekið íbúðina. Hundrað og fimmtíu fermetrar á hundrað þúsund kall var fáránlega vel sloppið. Vinir þeirra hírðust margir hverjir í gluggalausum kjallaraherbergjum og borguðu svipað. Staðsetningin var líka fín, ekki frábær, [...]

Jelena snýr aftur

2019-05-27T12:55:31+00:0013. apríl 2019|

Það er gaman að fara í leikhús og margra leiksýninga minnist ég með sérstakri ánægju. En þegar öllu er á botninn hvolft þá eru þær ekki margar sem standa upp úr, fá yfir sig einhverja áru í minningunni, verða jafnvel að goðsögn. Ein þessara örfáu sýninga er Kæra Jelena eftir Ljúdmílu Razúmovskaju sem Þjóðleikhúsið frumsýndi [...]

Efni og áferð manneskjunnar

2019-05-16T11:55:51+00:0031. maí 2018|

Kristín Eiríksdóttir. Elín, ýmislegt. JPV útgáfa, 2017. 182 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2018 Elín, ýmislegt er önnur skáldsaga Kristínar Eiríksdóttur og við fyrstu sýn nokkuð frábrugðin fyrri verkum hennar. Þó má finna kunnuglega þræði sem tengja verkin og raða þeim upp í heillega mynd sem sýnir kannski fyrst og fremst sársaukafullt [...]