Þú ert hér://Tag: Katrín Halldóra Sigurðardóttir

Sjálfsfælin, myrkfælin og ofsahrædd við vindinn

2025-03-24T14:26:36+00:009. mars 2025|

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir frumsýndi í gærkvöldi eigin söngleik, Skíthrædd, í Þjóðleikhúskjallaranum. Hún semur sjálf texta, lög og dansa og sér líka um flutninginn. Leikstjóri er Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Halldór Eldjárn er tónlistarstjóri, Sigrún Jörgensen hannar skrautlega og glitrandi búningana, rauða fyrir Unni en hvíta fyrir bandið, en Sigurður Starr Guðjónsson sér um lýsingu. Með Unni [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]

„Já, ávinningur verður stór – ef ert‘ í kór“

2022-09-30T14:18:46+00:0018. september 2022|

Það var hátíðisdagur í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld þegar söngleikurinn Sem á himni eftir Carin Pollak og Kay Pollak (handrit) og Fredrik Kempe (tónlist) var frumsýndur á stóra sviðinu: Framundan spennandi leikhúsvetur eftir löng og leiðinleg covid-ár. Þórarinn Eldjárn á þýðinguna fínu, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir en tónlistarstjórn í höndum Jóns Ólafssonar. Sagan í Sem á [...]

Hlægilega sorglegur Tsjekhov

2020-01-12T12:13:31+00:0012. janúar 2020|

Nýjárs- og afmælissýning Leikfélags Reykjavíkur, Vanja frændi eftir Anton Tsjekhov, var frumsýnd í gærkvöldi á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Gunnar Þorri Pétursson þýddi verkið á tilgerðarlausa, auðskiljanlega og fallega íslensku og öll textavinna í sýningunni var aðdáunarverð. Sú einkunn átti sannarlega við fleira. Við erum stödd á sveitasetri Aleksanders Serebrjakovs prófessors í [...]

Ríkisbubbinn, eiginkonan, viðhaldið og kokkurinn

2019-10-12T18:20:22+00:0012. október 2019|

Sex í sveit í uppsetningu Borgarleikhússins er blessunarleg hlátursprengja nú sem fyrr. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri hefur valið vel í hlutverkin, þarna eru leikarar sem víla ekki fyrir sér að halda uppi sturluðu fjöri í hátt í þrjá klukkutíma en fá að vísu vel þeginn matartíma í miðju kafi. Verkið er eignað franska farsaskáldinu Marc [...]

„Við viljum sjá heiminn brenna“

2019-04-29T14:02:59+00:0029. apríl 2019|

Ærslaleikurinn Bæng! eftir þýska leikskáldið Marius von Mayenburg var frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins á föstudagskvöldið í prýðilegri þýðingu Hafliða Arngrímssonar, og ég sá aðra sýningu í gærkvöldi. Það sem ég hef áður séð eftir Marius hefur vissulega verið ærslakennt og fyndið en líka absúrd og vakið hugmyndir og hugrenningatengsl í allar áttir. En Bæng! [...]

Óður til baktjaldamanna

2019-03-15T10:23:20+00:0025. mars 2018|

Það klikkaði allt sem klikkað gat á Sýningunni sem klikkar á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og mikið óskaplega var það gaman! Halldóra Geirharðsdóttir stýrir þessum dásamlega farsa eftir þá Henry Lewis, Jonathan Sayer og Henry Shields sem Karl Ágúst Úlfsson hefur þýtt af list og langt er síðan önnur eins hlátrasköll hafa heyrst í [...]

Sunnudagskvöld með Elly

2019-05-03T11:31:33+00:0020. mars 2017|

Hvað á maður að segja um þessa stúlku? Þessa ungu leikkonu sem lætur Elly Vilhjálms lifna á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, andlit, líkama og rödd? Þessa Katrínu Halldóru Sigurðardóttur? Líklega er best að segja bara HÚRRA! Fyrir sýninguna Elly hefur Nýja sviði verið breytt í skemmtistað sem gæti minnt á dansstaðina í Reykjavík um 1960 [...]

Blekkingameistarinn Jagó og listir hans

2019-05-03T16:10:50+00:0023. desember 2016|

„Hrörnar þöll / sú er stendur þorpi á“ segir í Hávamálum. Upphafssviðið í Óþelló Shakespeares, sem frumsýndur var í gærkvöldi á stóra sviði Þjóðleikhússins, minnti á þessi orð. Á sviðinu stendur tré, beinvaxið og fagurt, í annars gróðurlausri urð. Við fáum að horfa á það drjúga stund og njóta þess að sjá ljósin leika í [...]

Föst á Djöflaeyjunni – engin huggun þar

2019-05-06T17:20:01+00:004. september 2016|

Það var annaðhvort rétt fyrir eða eftir áramótin áttatíu og þrjú og fjögur sem ég las fyrst um fólkið í Gamla húsinu og Thulekampinum, þá sendi Einar Kárason kaflann um daginn þegar Hreggviður reyndi að setja heimsmet í kúluvarpi til Tímarits Máls og menningar sem ég ritstýrði þá. En ég man ágætlega hvernig mér leið [...]