Þú ert hér://Tag: Karl Ágúst Úlfsson

Lífið er, karl minn, kabarett

2026-04-20T12:00:02+00:0020. apríl 2026|

Leikhús ókunnuga fólksins sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið söngleikinn Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann var frumsýndur 20.mars en vegna þess að ég komst ekki þá þurfti ég að bíða þangað til í gær með að sjá sýninguna, svo gríðarlega vinsæl er hún. Verkið byggir á Berlínarsögum Christophers Isherwood sem urðu leikrit í höndum Johns van [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]

Ekkert heilagt

2022-09-30T14:17:44+00:004. september 2022|

Ég hef lengi vitað að þeir sem stunda þá atvinnu að gagnrýna það sem aðrir gera eru almennt álitnir asnar, einkum af þeim sem gagnrýndir eru. En ég vissi ekki fyrr en í gær að fyrstu gagnrýnendurnir í veraldarsögunni hefðu beinlínis verið hirðfífl valdhafanna – sem sé haft atvinnu af hvoru tveggja, að gagnrýna og [...]

Jólaplattarnir

2021-12-23T11:30:51+00:0023. desember 2021|

Eftir Karl Ágúst Úlfsson Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2018   Ég varð að fyrirgefa sjálfum mér. Annars yrði þetta óbærilegt alla tíð. Og það gerði ég. Mér tókst líka að fyrirgefa Þorvaldi. Ég á ekkert sökótt við þann mann lengur. Blessuð sé minning hans. En mér gengur seint að fyrirgefa Bing og [...]

Þroskasaga spýtustráks

2020-02-24T13:40:46+00:0023. febrúar 2020|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í dag á Litla sviði Borgarleikhússins leikgerð Ágústu Skúladóttur, Karls Ágústs Úlfssonar og leikhópsins á Ævintýrum spýtustráksins Gosa. Þessi lífseiga saga Ítalans Carlos Collodi, sem kom fyrst út sem framhaldssaga í ítölsku barnablaði á árunum 1881–82, er í eðli sínu afar vel útfærð siðræn uppeldisfræði, svo skýr og opinská að það má [...]

Vel heppnuð afmælisveisla

2019-03-13T16:28:00+00:0013. október 2018|

Leikfélag Selfoss heldur upp á sextugsafmæli sitt í ár og stóri viðburðurinn á afmælisárinu var frumsýndur í gærkvöldi í leikhúsinu í bænum, leiksýningin Á vit ævintýranna. Félagið var svo bráðheppið að fá til liðs við sig sérfræðing í ærslafengnum ævintýrasýningum, Ágústu Skúladóttur, og saman hafa þau unnið litríka sýningu úr þrenns konar efniviði: ævintýrinu um [...]

Óður til baktjaldamanna

2019-03-15T10:23:20+00:0025. mars 2018|

Það klikkaði allt sem klikkað gat á Sýningunni sem klikkar á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og mikið óskaplega var það gaman! Halldóra Geirharðsdóttir stýrir þessum dásamlega farsa eftir þá Henry Lewis, Jonathan Sayer og Henry Shields sem Karl Ágúst Úlfsson hefur þýtt af list og langt er síðan önnur eins hlátrasköll hafa heyrst í [...]

Ástin, óttinn og grínið

2019-03-18T09:30:34+00:004. febrúar 2018|

Alltaf gleður það mann, Gaflaraleikhúsið, nú síðast í dag með nýju verki eftir Karl Ágúst Úlfsson sem er byggt á Skugga-Sveini Matthíasar Jochumssonar: Í skugga Sveins. Þar gera þau sér lítið fyrir Karl Ágúst sjálfur og Kristjana Skúladóttir og segja okkur þessa gömlu sögu um útilegumanninn Svein og samskipti hans við fólkið niðri í byggðinni [...]

Fíll, fíll, burt með þig!

2019-05-06T17:03:51+00:0017. september 2016|

Brúðuheimar frumsýndu áðan splunkunýtt verk í upphæðum Þjóðleikhússins. Bernd Ogrodnik er þar allt í öllu að venju, leikritið Íslenski fíllinn er eftir hann og Hildi M. Jónsdóttur, hann hannar brúðurnar og leikmyndina, stjórnar brúðunum og semur tónlistina þar að auki. Kraftaverkamaður. Efnið sprettur út úr fréttum undanfarin ár af vegalausu fólki vegna náttúruhamfara af ýmsu [...]

„Tilkynni, herra höfuðsmaður …“

2019-05-08T15:26:31+00:0011. apríl 2016|

Gaflaraleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi nýtt íslenskt leikverk með söngvum eftir Karl Ágúst Úlfsson (texti) og Eyvind Karlsson (tónlist) um gamalkunnugt og ástsælt efni: Góði dátinn Svejk og Hasek vinur hans. Verkið byggir Karl Ágúst annars vegar á skáldsögu Haseks um Svejk sem hefur komið út margsinnis á íslensku í rómaðri þýðingu Karls Ísfeld og hins [...]