Þú ert hér://Tag: Jóhann Friðrik Ágústsson

Rassaköst á Litla sviðinu

2026-10-16T14:13:53+00:003. október 2026|

Fjöllistahópurinn Visceral Abstraction frumsýndi séríslenska útfærslu á sýningu sinni Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir leikstjórn Juanitu Cardenas og Margrétar Erlu Maack. Juanita hannaði leikmynd og búninga með aðstoð Söru Magnúsdóttur. Jon Joni og hópurinn sömdu dansa en Sigurður „Gógó“ Starr hannaði hljóðmynd. Jóhann Friðrik Ágústsson hannaði lýsingu. [...]

Lífið er, karl minn, kabarett

2026-04-20T12:00:02+00:0020. apríl 2026|

Leikhús ókunnuga fólksins sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið söngleikinn Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann var frumsýndur 20.mars en vegna þess að ég komst ekki þá þurfti ég að bíða þangað til í gær með að sjá sýninguna, svo gríðarlega vinsæl er hún. Verkið byggir á Berlínarsögum Christophers Isherwood sem urðu leikrit í höndum Johns van [...]

„Svo kaldar, þessar hendur“

2025-12-07T13:34:08+00:007. desember 2025|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi á litla sviði Borgarleikhússins óperuna La bohème eftir Giacomo Puccini. Að venju hafa Sólveig Sigurðardóttir og Þórhallur Auður Helgason þýtt líbrettó Luigis Illica og Giuseppe Giacosa á þjála, fyndna og fallega íslensku. Leikstjóri er sem fyrr Tómas Helgi Baldursson og tónlistarstjóri er sem fyrr Sævar Helgi Jóhannsson en nú hefur [...]

Holdið er torvelt að temja

2025-02-07T14:31:09+00:007. febrúar 2025|

Það er óperuhátíð í Reykjavík. Þrjár óperur, tvær gamlar, ein ný, eru nú sýndar í þrem húsum í höfuðstaðnum. Svo skemmtilega vill til að þær fjalla allar meira og minna um sama fólkið og eins og það sé ekki nóg þá tengjast sýningarnar innbyrðis á hinn skondnasta máta: aðaldívan í einni er hljómsveitarstjóri í annarri, [...]

Ferðalag um harmaheima

2024-09-22T20:36:45+00:0022. september 2024|

Fyrir ári hóf Birnir Jón Sigurðsson leikárið í Tjarnarbíó með sínu bráðskemmtilega verki Sund sem raunar fær framhaldslíf í Þjóðleikhúsinu á þessu leikári. Og í gærkvöldi hófst nýtt leikár í Borgarleikhúsinu með nýju verki eftir hann, Sýslumanni Dauðans sem sýnt er á Nýja sviði. Leikstjóri er Stefán Jónsson. Mirek Kaczmarek hannar dularfullt og lengst af [...]

Svikuli tenórinn og snjalli sópraninn

2024-03-25T10:34:28+00:0024. mars 2024|

Þau eru gífurlega skemmtileg og líka feikna flink unga fólkið í Sviðslistahópnum Óði sem nú færir okkur í þriðja sinn gamanóperur í Þjóðleikhúskjallaranum. Í þetta sinn er það ópera sem aldrei hefur sést hér áður á sviði, Póst-Jón eða Le postillon de Lonjumeau eftir franska tónskáldið Adolphe Adam (1803–1856). Enn er það sópraninn í hópnum, [...]

… uns sekt er sönnuð

2023-11-22T09:21:43+00:0018. nóvember 2023|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær einleikinn Orð gegn orði eftir Suzie Miller í Kassanum undir stjórn Þóru Karítasar Árnadóttur. Magnaða leikmynd sem þjónaði vel ólíkum þörfum verksins fyrir opinber og einkaleg híbýli gerði Finnur Arnar Arnarson og hann klæddi leikkonuna líka í hvern viðeigandi búninginn af öðrum. Lýsinguna sem átti stóran þátt í áhrifum sýningarinnar, sá [...]

Að vera eða vera ekki pabbi

2023-02-15T14:02:02+00:0013. febrúar 2023|

Þjóðleikhúsið endurfrumsýndi um helgina leiksýningu Kára Viðarssonar og Maríu Reyndal Prinsinn á Litla sviðinu í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Þar var verkið einmitt heimsfrumsýnt síðastliðið vor og síðan hefur það ferðast um landið. Það er gott til þess að vita að margir hafi fengið tækifæri til að sjá það því að þetta er þörf [...]

Sitthvað er Vanda og Wanda

2023-02-08T16:18:25+00:003. febrúar 2023|

Eiginlega er merkilegt að leikrit eftir David Ives skuli ekki hafa rekið á fjörur mínar fyrr en í gærkvöldi, svo vinsæll og verðlaunaður er hann í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Það er bæði snjallt og djarft af Eddu Björgu Eyjólfsdóttur að velja eitt hans umtalaðasta verk, Venus í feldi, til að setja upp hér á landi [...]

Mannabörn, tröllabörn og ofurbörn

2022-03-23T12:58:00+00:0020. mars 2022|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær í kjallara Kassans barnaleikritið Umskipting eftir Sigrúnu Eldjárn undir stjórn Söru Martí Guðmundsdóttur. Þar hafði Snorri Freyr Hilmarsson leikmyndahönnuður snúið öllu á langveginn þannig að sviðið varð ógnarlangur klettaveggur með fosssprænum úr ljósi og hentugum mosagrónum syllum sem mátti leggjast í og klifra eftir. Þetta var bæði fallegt og bauð upp [...]