Þú ert hér://Tag: Jóhann Friðrik Ágústsson

Misgrip

2021-11-15T08:49:19+00:0011. nóvember 2021|

Hádegisleikhús Þjóðleikhússins frumsýndi í dag nýtt verk í Þjóðleikhúskjallaranum, Rauðu kápuna, eftir ungan og bráðefnilegan höfund, Sólveigu Eir Stewart. Hilmar Guðjónsson stýrði leikkonunum tveim, Eva Signý Berger sá um einfalda leikmynd og skemmtilega og vandlega úthugsaða búninga en Jóhann Friðrik Ágústsson lýsti upp sviðið. Sigrún (Edda Björgvinsdóttir) hefur átt rauðu kápuna sína í mörg ár, [...]

Ef þetta er síðasta nóttin …

2019-05-27T15:41:53+00:0018. maí 2019|

Sviðslistahópurinn Óþekkt frumsýndi í gærkvöldi tón- og leikverkið Iður eftir Gunnar Karel Másson í Tjarnarbíó. Höfundur leikstýrði sjálfur en tónlistarstjóri var Helgi Rafn Ingvarsson. Gunnar Karel vill segja sögu óvenjulegs manns og til þess þarf hann óvenjulegar aðferðir. Maðurinn er Mark Kennedy, breskur lögregluþjónn sem gekk í mótmælahópa í dulargervi, þóttist vera róttækur aðgerðasinni, notaði [...]

Að skammast sín – en fyrir hvað?

2019-04-30T12:28:35+00:0012. september 2017|

Í gærkvöldi var frumsýnt í Kúlu Þjóðleikhússins verk sem að efni og uppsetningu brýtur að ýmsu leyti blað í íslenskri leikhússögu. Verkið heitir Smán og er eftir Bandaríkjamanninn Ayad Akhtar sem hlaut Pulitzer-verðlaunin fyrir það árið 2013. Leikstjóri er Þorsteinn Bachmann en þýðendur eru Auður Jónsdóttir og Þórarinn Leifsson. Smán gerist í New York á [...]

Fátæktin var mín fylgikona

2019-05-27T11:27:16+00:009. apríl 2017|

Það verður ekki tekið frá honum Þorleifi Erni Arnarssyni, honum tekst að koma manni á óvart. Það tókst honum líka í gærkvöldi, þó nokkrum sinnum. Sýningin var Álfahöllin hin umrædda á stóra sviði Þjóðleikhússins, eins konar revía um leikhúsið – sjálft fyrirbærið Þjóðleikhús Íslendinga, bæði hús og stofnun – og samfélag okkar á þessari stundu. [...]

Illt er að binda ást við þann …

2019-05-03T15:35:54+00:007. janúar 2017|

Eins og sjálfsagt flestar konur hef ég reynslu af karlmönnum eins og Sölva (Stefán Hallur Stefánsson) í leikritinu Gott fólk sem frumsýnt var í Kassanum í gærkvöldi (ég sá aðalæfingu kvöldið áður). Þetta er gasalega sætur strákur, orðheppinn og skemmtilegur, heillandi við fyrstu kynni, en þessir kostir valda því að hann er tregur til að [...]