Þú ert hér://Tag: Ilmur Stefánsdóttir

Amlóði fer enn á kreik

2019-06-12T11:34:40+00:0012. janúar 2014|

Þá er það opinbert: Ólafur Darri Ólafsson er kominn í röð þeirra stærstu í sínu fagi, að minnsta kosti hér á landi. Hann er einhver besti og mest sannfærandi Hamlet sem ég hef séð á sviði og sýning Jóns Páls Eyjólfssonar á verkinu sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi hefur alla burði [...]

„Út um trissur alls staðar eru tómir óvitar“

2019-06-12T14:50:15+00:0014. október 2013|

Barnaleikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í gær, landsins börnum til mikillar ánægju. Gunnar Helgason stýrir því af sínu alkunna fjöri og hugmyndaauðgi og Ilmur Stefánsdóttir gerir litríka leikmynd sem er heilt ævintýri fyrir unga áhorfendur. Leikarar eru geysimargir og allt á iði á sviðinu í senum sem gerast utanhúss. Innanhúss [...]

Kona, þekktu sjálfa þig

2019-06-12T15:56:05+00:0019. apríl 2013|

Það eru orðin rúm þrjátíu ár síðan ég sat í góðum hópi kvenna og þýddi og staðfærði danska fræðiritið Kvinde kend din krop. Hugsa sér að svona langur tími skuli vera liðinn! Danir hafa verið duglegri en við að halda þessari frábæru bók við; þar er hún uppfærð reglulega en hér hefur hún ekki komið [...]

Fangar hrunsins

2019-06-18T12:24:55+00:002. febrúar 2013|

Í leikritinu Nóttin nærist á deginum sem var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi notar höfundurinn, Jón Atli Jónasson, tvö ágeng fréttaefni frá síðustu árum og fléttar þau saman. Þetta eru annars vegar hrunið sem hefur skilið hjónin í verkinu eftir á eins konar eyðiey, í hálfkláruðu húsi í hverfi sem aldrei var byggt, [...]

Að gæta bróður síns

2019-06-18T17:31:31+00:0030. desember 2012|

Þær voru ólíkar eins og stundum áður jólasýningar stóru leikhúsanna í Reykjavík. Í Macbeth Þjóðleikhússins var stílfærsla í algleymingi með tilfærslu í tíma og allt; í Músum og mönnum Leikfélags Reykjavíkur á stóra sviði Borgarleikhússins ríkir hefðbundið raunsæi, svo rækilega útfært að jaðrar við ofurraunsæi. En mig langar til að segja það strax að eftirbragðið [...]

Saga tengdamömmu

2019-07-24T19:26:18+00:0030. mars 2012|

Leikhópurinn Common Nonsense frumsýndi heimildarleikinn Tengdó á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar, og ég verð að segja að langt er síðan leiksýning kom mér jafnmikið á óvart. Í fyrsta lagi er ekki algengt að verk fjalli opinskátt um eina raunverulega manneskju, ennþá óalgengara er að sú manneskja sé lifandi og [...]

Saga konunnar sem söng

2019-08-08T17:52:05+00:0027. janúar 2012|

Ég vissi ekkert um Eldhaf eftir Wajdi Mouawad áður en ég fór á frumsýninguna á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi og það reyndist vera svo áhrifamikið – að vita ekki neitt fyrirfram – að mér er skapi næst að segja ekkert um verkið eða höfund þess í þessum pistli. Láta duga að hvetja alla sem [...]

Þrjár konur

2019-08-22T16:48:16+00:0028. október 2011|

Í gærkvöld var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu leikritið Hreinsun eftir Sofi Oksanen undir stjórn Stefáns Jónssonar. Leikritið var fyrst sýnt í Finnska þjóðleikhúsinu 2007 og í framhaldi af því samdi höfundur skáldsögu með sama nafni um sömu persónur, og hún hefur farið eins og logi yfir evrópskan bókmenntaakur síðan. Sigurður Karlsson þýddi bæði leikverkið og skáldsöguna [...]

Hálf öld á Bessastöðum

2019-08-23T16:48:18+00:0028. apríl 2011|

Vesturport fylgir eftir Evrópsku leiklistarverðlaununum sem þau fengu fyrr í þessum mánuði með frumsýningu á Húsmóðurinni, farsakenndum gamanleik sem er sýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins. Salnum er alveg umbylt af þessu tilefni. Nærri salarbreitt sviðið er þar sem sæti áhorfenda eru venjulega og þaðan gengur pallur út og klýfur áhorfendasvæðið snyrtilega í tvennt. Á sviðinu [...]

Pössum börnin betur

2019-08-24T14:43:09+00:0014. janúar 2011|

Elsku barn eftir Dennis Kelly sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar er ekki venjulegt leikrit. Það er byggt upp á viðtölum og minnir mest á réttardrama – sem löngum hafa verið vinsæl, einkum í sjónvarpi. En þó að þetta þýði að verkið sé nokkurn veginn allt safn eintala er [...]