Þú ert hér://Tag: Ilmur Stefánsdóttir

Þegar gamli sorrý Gráni var felldur

2019-09-05T21:57:17+00:0016. október 2010|

Verið gæti að Finnski hesturinn eftir Sirkku Peltola sem Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær verði fremur við smekk sjálfstæðismanna og vinstri grænna en samfylkingarmanna því þar er ekki alltaf talað vel um Evrópusambandið. En húmorinn mun áreiðanlega höfða til allra jafnt, einkum þó óborganleg persóna ömmunnar sem Ólafía Hrönn skapar á sviðinu og fylgir manni út [...]

Að elska heimilistæki

2020-01-24T16:42:22+00:0021. maí 2010|

Ég ímynda mér að allt nútímafólk eigi sér sitt uppáhaldstæki. Mér þykir til dæmis ákaflega vænt um þvottavélina mína – enda hef ég gaman af að þvo þvott. Sjálfsagt er munur á körlum og konum í þessu eins og öðru, kannski halda fleiri konur en karlar upp á eldhústæki en karlarnir frekar upp á garðsláttuvélina [...]

Sleppa ekki héðan í bráð

2020-01-30T11:12:32+00:0011. apríl 2010|

Við göngum inn í glæsilega leikmynd á Nýja sviði Borgarleikhússins þegar við mætum á Dúfurnar, leikrit Davids Gieselmanns sem var frumsýnt í gærkvöldi. Ilmur Stefánsdóttir hefur skapað verkinu smart umgjörð með ferkílómetravís af hvítu gardínuefni, gráum og hvítum bekkjum, hvítum lömpum, hvítum leðursessum og einu glitrarndi gervijólatré innst í vinstra horni. Svo koma leikararnir inn, [...]

Völvan og Brennuvargarnir

2020-01-31T14:56:29+00:0024. október 2009|

Það var í óvænt gjöf að fá að sjá kvöld eftir kvöld nýjustu sýningar Þjóðleikhússins, einleikinn Völvu sem sýndur er í Kassanum og Brennuvargana eftir Max Frisch sem spóka sig á stóra sviðinu. Báðar eru sýningarnar vandaðar, einstaklega fallegar – og áhrifamiklar. Völva byggir á sjálfri Völuspá, eldfornu kvæði sem allir íslenskir framhaldsskólanemar kynnast enn [...]

Er virkilega best að vera heima?

2020-01-30T16:27:10+00:0028. september 2009|

Karli Marx varð einhvern tíma að orði að stórir atburðir mannkynssögunnar gerðust fyrst sem harmleikir en endurtækju sig svo sem farsi. Írska leikskáldið Enda Walsh fer með þessa kenningu alla leið og svolítið lengra í verkinu Heima er best (The Walworth Farce) sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöldið undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar. Þar segir [...]

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir [...]