Þú ert hér://Tag: Hjörtur Jóhann Jónsson

Amlóði fer enn á kreik

2019-06-12T11:34:40+00:0012. janúar 2014|

Þá er það opinbert: Ólafur Darri Ólafsson er kominn í röð þeirra stærstu í sínu fagi, að minnsta kosti hér á landi. Hann er einhver besti og mest sannfærandi Hamlet sem ég hef séð á sviði og sýning Jóns Páls Eyjólfssonar á verkinu sem frumsýnd var á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi hefur alla burði [...]

Önnur harmsaga

2019-06-12T13:40:59+00:0027. október 2013|

Í annað sinn á skömmum tíma fáum við að sjá ungt par í djúpum vanda á sviði reykvískra atvinnuleikhúsa. Tvíleikurinn Saumur eftir Anthony Neilson sem nú er sýndur á Litla sviði Borgarleikhússins undir stjórn Ríkharðs Hjartar Magnússonar er einkar svipaður verki Mikaels Torfasonar, Harmsögu, sem enn má sjá í Kassa Þjóðleikhússins. Bæði verkin skoða parsambönd [...]

Vogur vinnur, vínið tapar

2019-06-19T11:09:04+00:0020. október 2012|

Það skemmtilegasta við að blogga um leikhús er hvað maður fær að sjá fjölbreytta flóru. Uppgötva hvað fólk getur verið að fást við ótrúlega ólíka hluti eiginlega á sömu þúfunni. Kvöldið eftir há-fagurfræðilega upplifun í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu fylgdumst við hjónin með meinfyndinni og dónalegri konu á fimmtugsaldri frá Hafnarfirði upplifa tráma lífs síns og [...]

Órlendingar hafa orðið

2019-07-24T19:09:38+00:0021. apríl 2012|

Þau voru full af smitandi gleði og orku útskriftarnemarnir úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands á frumsýningu eigin leikverks í gærkvöldi. Enda kunna þau margt og fara vel með það sem þau hafa lært. Verkið heitir Óraland og er sett saman úr fjölmörgum atriðum eins og (gasalega langur) skemmtiþáttur í sjónvarpi. Umfjöllunarefnin eru ýmist tekin beint úr [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]

Hættu nú alveg …

2020-01-24T16:35:57+00:0018. maí 2010|

Það var frekar tónlistin en nafnið sem gerði að ég tengdi Tvo fátæka pólskumælandi Rúmena strax við bíómyndir Emirs Kusturica, til dæmis Svartan kött hvítan kött. En það var ekki svo galið, því sú tenging sendi mig rakleiðis inn í réttan heim fyrir þetta tryllta leikverk eftir pólska leikskáldið Dorotu Maslowsku sem nú er sýnt [...]

Átök á háaloftinu

2020-01-30T16:54:58+00:0026. ágúst 2009|

Það fylgdi því ekta sælutilfinning – auk ávænings af dejavu – að príla upp á háloft í Batteríinu í gær til að fara á leiksýningu. Minnti á góða gamla daga í London á áttunda áratugnum þegar maður staulaðist upp og niður margan hænsnastigann í leit að sannri upplifun. Oftar en ekki fannst hún. Og í [...]

Enginn er heill nema hann sé tveir

2020-01-31T16:59:48+00:0023. apríl 2008|

Sá líkamslausi og stúlkan hans (Haraldur og Unnur Birna). Spunaverkið Drottinn blessi blokkina sem Stúdentaleikhúsið sýnir núna í gamla Sjómannaskólanum (Fjöltækniskólanum við Háteigsveg) er þvottekta skólasýning: mannmörg, fjörug og passlega galin. Það er samið af þátttakendum undir stjórn Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Sveins Ólafs Gunnarssonar leikstjóra, sundurlaust og svo fullt af hugmyndum að út [...]