Þú ert hér://Tag: Filippía I. Elísdóttir

Þrjár konur í einum karli

2019-08-24T14:00:35+00:0020. febrúar 2011|

Það var mikið húrrað og bravóað í Tjarnarbíó í gærkvöldi að lokinni frumsýningu Árna Péturs Guðjónssonar á einleiknum Svikaranum undir stjórn Rúnars Guðbrandssonar enda sannarlega mikið sjónarspil sem áhorfendur höfðu orðið vitni að. Árni Pétur hafði þá sungið og dansað, æpt og stunið, skipað og skammað, hlegið og grátið samfellt í fimm korter, líka skipt [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

Sungið um ástir og hefnd

2019-09-05T22:03:12+00:0015. október 2010|

Sagan sem ópera Verdis Rigoletto segir er mögnuð og vel til fundið hjá leikstjóranum, Stefáni Baldurssyni, að flytja hana inn í undirheima Ítalíu í nútímanum. Með því minnir hann á að enn eru þeir feður til sem halda að þeir geti verndað dætur sínar með því að loka þær inni og enn er ungum stúlkum [...]

Fötin skapa manninn – eða hvað?

2020-01-24T15:54:54+00:0031. maí 2010|

Mér þykir leitt að játa fyrir lesendum mínum að mér finnst ég eiginlega vanhæf til að fjalla um tvo síðustu viðburði sem ég sá á sviði. Annar var dansverkið Bræður í Þjóðleikhúsinu sem var frumsýnt á fimmtudagskvöldið var, hitt var leikverkið Klæði sem var frumsýnt í gærkvöldi á Norðurpólnum. Ástæður til vanhæfi eru þó ólíkar [...]

Börn götunnar

2020-01-29T12:16:19+00:0026. apríl 2010|

Þau eru geysilega flink, ungmennin sjö í útskriftarhópi Listaháskólans í leiklist, og í lokaverkefni sínu fá þau gott tækifæri til að sýna það. Í Stræti eftir Jim Cartwright eru ein tuttuguogfimm hlutverk sem þau skipta á milli sín, þó ekki jafnt. Hilmir Jensson leikur til dæmis bara Scullery, náungann sem kynnir okkur fyrir götunni sinni, [...]

,,Þetta er teater”

2020-01-30T15:23:39+00:0016. janúar 2010|

Margt kom mér skemmtilega á óvart þegar ég fór að lesa mér til um Faust í tilefni af uppsetningu Vesturports á samnefndu verki á stóra sviði Borgarleikhússins. Til dæmis það að persóna þjóðsagna og bókmennta á sér raunverulega fyrirmynd ef marka má Salmonsens konversationsleksikon frá 1918, dr. Johann Faust, þekktan farandspámann og svartagaldramann sem fæddur [...]

Völvan og Brennuvargarnir

2020-01-31T14:56:29+00:0024. október 2009|

Það var í óvænt gjöf að fá að sjá kvöld eftir kvöld nýjustu sýningar Þjóðleikhússins, einleikinn Völvu sem sýndur er í Kassanum og Brennuvargana eftir Max Frisch sem spóka sig á stóra sviðinu. Báðar eru sýningarnar vandaðar, einstaklega fallegar – og áhrifamiklar. Völva byggir á sjálfri Völuspá, eldfornu kvæði sem allir íslenskir framhaldsskólanemar kynnast enn [...]

Frida, Harry og Heimir

2020-01-30T16:43:17+00:0013. september 2009|

Stóru leikhúsin opnuðu dyr sínar fyrir fyrstu gestum haustsins um helgina og hófu bæði vetrarstarfið á íslenskum verkum. Það var um það bil það eina sem þau áttu sameiginlegt. Á stóra sviði Þjóðleikhússins var okkur sögð saga mexíkóska myndlistarmannsins Fridu Kahlo á föstudagskvöldið, átakanleg ævisaga vörðuð slysum og svikum; á litla sviði Borgarleikhússins var á [...]