Þú ert hér://Tag: Davíð Þór Jónsson

Loftfimleikar og loftslagsvá

2024-06-21T14:05:04+00:0017. júní 2024|

Sviðslistahópurinn Common Nonsense tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík með verkinu Las Vegan eftir Ilmi Stefánsdóttur sem þau sýndu í portinu í Hafnarhúsi. Þetta mikla leiksvæði lögðu þau undir sig með flygil á öðrum endanum sem Davíð Þór Jónsson leikur á og loftfimleikatæki og tól á hinum endanum sem leikendur og sérstakir fimleikamenn (Justyna Micota [...]

Sannleikurinn er sagna verstur

2022-05-17T10:19:41+00:0010. apríl 2022|

Leikfélag Reykjavíkur og CommonNonsense frumsýndu í gær samtímafarsann Fyrrverandi eftir Val Frey Einarsson á Nýja sviði Borgarleikhússins. Breiða pallastofu með hringstiga innst upp á efri hæðir skapar Ilmur Stefánsdóttir og hún sér líka um í bland dálítið fríkaða búninga og leikgervi (með Elínu S. Gísladóttur); til dæmis þekkti ég ekki Þórunni Örnu Kristjánsdóttur fyrr en [...]

Hver er nashyrningur?

2021-04-27T13:27:43+00:0024. apríl 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær og fyrrakvöld Nashyrningana eftir Eugène Ionesco – frumsýningarnar voru tvær vegna þess að aðeins má hálffylla salinn vegna farsóttarinnar. Ný fantagóð þýðing er eftir Guðrúnu Vilmundardóttur og leikstjóri er Benedikt Erlingsson sem sjálfur vann leiksigur sem menntaskólanemi í hlutverki Róberts, sem Hilmir Snær Guðnason leikur nú.[1] Leikmynd er eftir Börk Jónsson, [...]

Hvað er auður og afl og hús …?

2019-05-27T11:28:46+00:0011. mars 2017|

Það var margt sem gladdi og nærði fortíðarþrána á frumsýningu Hússins eftir Guðmund Steinsson á stóra sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. Eitt var einfaldlega það að sjá eftir Guðmund leikrit sem aldrei hafði verið sett á svið áður; annað var að sjá hvað leikstjórinn, Benedikt Erlingsson, vísaði smekklega til þess í uppsetningu sinni að verkið hefði [...]

Fegurðin ríkir ein

2019-05-27T16:34:15+00:0030. maí 2014|

Ég hef beðið spennt eftir því að fá að sjá verk Ragnars Kjartanssonar og Kjartans Sveinssonar, Kraftbirtingarhljóm guðdómsins (Der Klang der Offenbarung des Göttlichen) alveg síðan ég las upphafna lýsingu Einars Fals Ingólfssonar á því í Morgunblaðinu í febrúar þegar verkið var frumsýnt í Berlín. Biðinni lauk í gærkvöldi í Borgarleikhúsinu. Þó að ég hefði [...]

Sagan af pabba

2019-06-04T08:26:16+00:0012. apríl 2014|

Valur Freyr Einarsson vill segja sögur á leiksviðinu, mikilvægar sögur, sögur sem skipta máli. Sagan hans um eina „svarta barnið“ á Suðurnesjum í verðlaunasýningunni Tengdó var bæði brýn og óvænt og hafði sterka skírskotun til samtímans. Sagan sem hann segir í Dagbók jazzsöngvarans, sem CommonNonsense frumsýndi á nýja sviði Borgarleikhússins í gær undir stjórn Jóns [...]

Saga tengdamömmu

2019-07-24T19:26:18+00:0030. mars 2012|

Leikhópurinn Common Nonsense frumsýndi heimildarleikinn Tengdó á Litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi undir stjórn Jóns Páls Eyjólfssonar, og ég verð að segja að langt er síðan leiksýning kom mér jafnmikið á óvart. Í fyrsta lagi er ekki algengt að verk fjalli opinskátt um eina raunverulega manneskju, ennþá óalgengara er að sú manneskja sé lifandi og [...]

Fjör á Hótel Volkswagen

2019-08-08T15:43:39+00:0025. mars 2012|

Gáta (eða brandari): Hvað komast margir fílar inn í Volkswagen bjöllu? Svar: Fimm. Þrír afturí og tveir frammí. Á Hótel Volkswagen í Borgarleikhúsinu eru líka fimm fílar – ég meina gestir – í skjóli hótelstjórans, Svenna (Hallgrímur Ólafsson). Einn gamall nasisti, Ludvig Rosencrantz (Þorsteinn Gunnarsson), hjónin Adrian Higgins (Halldór Gylfason) og Paul Jenkins (Jörundur Ragnarsson) [...]

Þetta má ekki hafa eftir þér, Dorrit

2020-01-29T12:20:35+00:0013. apríl 2010|

Mánudagsleikhúsið fór af stað með hvelli í Iðnó í gærkvöldi. Þá var fyrsta og eina sýningin á leikritinu Nei, Dorrit! sem Þórarinn Leifsson byggði á frægu viðtali Joshua Hammer við íslensku forsetahjónin frá því snemma árs 2009; Auður Jónsdóttir stýrði. Nú er viðtal eiginlega leikrit og þetta viðtal er nógu djúsí til að standa lítt [...]