Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Kvöldstund með Gíslínu Martínu

2019-04-30T14:23:05+00:0019. maí 2017|

Þær eru níu, hver annarri glæsilegri, jafnvel í barnalegum innigöllum leynir sér ekki hvað þær eru flottar. Svo syngja þær og leika, sviðsvanar og öruggar, á Litla sviði Borgarleikhússins: RVKDTR – Reykjavíkurdætur. Þær eru allar höfundar verksins en ein þeirra tekur ábyrgð á útkomunni, Kolfinna Nikulásdóttir leikstjóri, sem líka er ein í hópnum á sviðinu. [...]

Flóttamaður segir frá

2019-04-30T14:45:41+00:0027. mars 2017|

Alltaf reynir maður eitthvað nýtt. Í gærkvöldi prikuðum við upp á þriðju hæð í Borgarleikhúsinu til að sjá þar sýninguna Aftur á bak frá Stokkhólmi, samvinnuverkefni leikhópsins Osynliga Teatern og Dramaten. Á þriðju hæðinni var tekið á móti okkur, þung sýndarveruleikagleraugu sett á höfuð okkar og heyrnartól þar yfir og síðan vorum við leidd blindandi [...]

Sunnudagskvöld með Elly

2019-05-03T11:31:33+00:0020. mars 2017|

Hvað á maður að segja um þessa stúlku? Þessa ungu leikkonu sem lætur Elly Vilhjálms lifna á nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu, andlit, líkama og rödd? Þessa Katrínu Halldóru Sigurðardóttur? Líklega er best að segja bara HÚRRA! Fyrir sýninguna Elly hefur Nýja sviði verið breytt í skemmtistað sem gæti minnt á dansstaðina í Reykjavík um 1960 [...]

Upp komast svik

2019-05-03T11:52:48+00:005. mars 2017|

Það var hamagangur á Hóli í gærkvöldi þegar Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi farsann Úti að aka eftir breska gamanleikjaskáldið Ray Cooney á stóra sviði Borgarleikhússins undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Gísli Rúnar Jónsson þýddi leikinn og staðfærði og eins og vænta má af þessum nöfnum var árangurinn sprenghlægilegur. Í sögumiðju er leigubílstjórinn Jón Jónsson (Hilmir Snær [...]

Vísindin efla alla dáð

2019-05-03T13:38:05+00:0012. febrúar 2017|

Ef ég vissi ekki að Vilhelm Anton Jónsson hefur skrifað nokkrar afar vinsælar bækur fyrir börn um vísindi þá hefði mér dottið í hug að hann væri uppiskroppa með efni á sýningunni sinni, Vísindasýningu Villa, á litla sviði Borgarleikhússins. Hann var rétt svo byrjaður að fræða fullan sal af börnum um hugðarefni sín þegar Vala [...]

Pabbi minn er kona

2019-05-03T15:09:46+00:0014. janúar 2017|

Hannes Óli Ágústsson sýnir dirfsku með því að stíga fram og segja sögu sína og föður síns á Litla sviði Borgarleikhússins í sýningunni Hún pabbi. Þetta er einlæg og lágstemmd sýning eins og hæfir því viðkvæma efni sem hún fjallar um. Hannes Óli var um tvítugt þegar hann sá óvart mynd í heimilistölvunni sem var [...]

Þegar bíóið er búið

2019-05-03T15:34:34+00:0012. janúar 2017|

Pulitzer-verðlaunaverkið Ræman eftir Annie Baker var frumsýnt í gær á Nýja sviði Borgarleikhússins undir stjórn Dóru Jóhannsdóttur. Það gerist í samnefndu kvikmyndahúsi, sem enn hefur ekki tekið stafrænni byltingu en notar ennþá gamaldags sýningarvél, og fjallar um þrjá illa launaða starfsmenn hússins og samskipti þeirra. Halldór Laxness Halldórsson (Dóri DNA) þýðir verkið og staðfærir. Þýðingin [...]

Skáldsaga verður kvikmynd verður leiksýning

2019-05-03T15:44:54+00:0031. desember 2016|

Fimmta leikgerðin af Sölku Völku Halldórs Laxness var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Ég hafði séð þær fjórar sem á undan fóru en þær eru misjafnlega minnisstæðar. Raunar man ég langbest eftir þeirri fyrstu, frá 1982, sem Stefán Baldursson leikstýrði. Guðrún S. Gísladóttir er ógleymanleg í titilhlutverkinu og ég get ennþá kallað lokasenuna [...]

Einar klaufabárður

2019-05-03T16:02:45+00:0026. nóvember 2016|

Allir kannast við það að senda barn til að ná í eitthvað og bíða svo von úr viti af því barnið finnur eitthvað allt annað til að gera og gleymir sér gersamlega. Stundum er þetta prýðileg leið til að fá stundarfrið fyrir barninu án þess að það gruni að maður sé að reyna að losna [...]

Uns dauðinn aðskilur?

2019-05-03T16:41:07+00:005. nóvember 2016|

Látið er af því að sænski kvikmyndahöfundurinn Ingmar Bergman hafi haft nokkra reynslu sjálfur af því efni sem hann skrifar um í Brotum úr hjónabandi, verkinu sem var frumsýnt á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Hann yfirgaf þó nokkrar konur um ævina og hefur eflaust þurft að segja einhverjum þeirra að hann væri orðinn ástfanginn [...]