Þú ert hér://Tag: Borgarleikhúsið

Puffin etketera

2019-05-03T16:45:59+00:0029. október 2016|

Ég veit ekki hvað forsvarsmenn stjórnarflokkanna segðu ef þeir hefðu séð leiksýninguna sem frumsýnd var kvöldið fyrir kjördag. Extravaganza eftir Sölku Guðmundsdóttur, sem Soðið svið og Borgarleikhúsið frumsýndu í gær á Nýja sviði, er kolsvartur söng- og gamanleikur sem segir eins skýrt og verða má að hér á landi á (eins og skáldið sagði) sé [...]

Kynusli á litla sviðinu

2019-05-06T14:59:23+00:008. október 2016|

Það var sérstæð blanda af rokktónleika- og árshátíðarstemningu á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi þegar Hannes og Smári héldu þar tónleika og sögðu sögu sína fyrir fullu húsi af æstum aðdáendum. Halldóra Geirharðsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir leika þessa heiðursmenn, þær spila líka á hljóðfæri og syngja. Auk þess sömdu þær verkið með leikstjóra sínum, [...]

Það er einn hnöttur og hann er blár

2019-05-06T16:20:19+00:0024. september 2016|

„Ég skil bara ekki hvernig þetta er hægt,“ sagði sessunautur minn, séra Ragnheiður, að lokinni frumsýningu á Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, Berg Þór Ingólfsson leikstjóra, Kristjönu Stefánsdóttur tónskáld og Chantelle Carey danshöfund á stóra sviði Borgarleikhússins. Hún átti við frammistöðu barnanna í sýningunni, hvernig þau, svona ung, gátu leikið, sungið, dansað, farið flikk [...]

Margt býr í skápunum

2019-05-06T17:09:13+00:0016. september 2016|

Fyrsta tilfinningin sem grípur mann á Sendingu, leikriti Bjarna Jónssonar sem Marta Nordal setur upp á Nýja sviði Borgarleikhússins, er að það sé þrengt að því. Sviðið virkar svo lítið. Og eintóna. Gólf og þrír veggir sem eru samfelldar hurðir á skápum og öðrum herbergjum. En séu hurðir þá er eitthvað fyrir innan þær og [...]

Niðurlæging mannsins

2019-05-08T15:08:10+00:0017. apríl 2016|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi Auglýsingu ársins, fjörugt og ógnvænlegt nýtt verk eftir Tyrfing Tyrfingsson, á nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson og margslungna, síbreytilega leikmynd gerði Eva Signý Berger. Leikritið gerist á auglýsingastofu sem má muna sinn fífil fegurri. Eigandinn (Theodór Júlíusson) er meðal annars frægur fyrir auglýsinguna á nýju símanúmeri Hreyfils [...]

Hvað sérðu?

2019-05-10T14:11:27+00:002. apríl 2016|

Þó að nýja leikritið sem frumsýnt var á litla sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi heiti Made in children get ég glatt ykkur með því að það er leikið á íslensku. Raunar vafðist mikið fyrir mér hvað þessi titill þýddi en eftir að hafa séð sýninguna reikna ég með að hann þýði að allt sem við hugsum [...]

„Mamma mía, enn og aftur …“

2019-05-08T15:57:36+00:0012. mars 2016|

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstjóri og hennar einvalalið frumsýndu söngleikinn Mamma mia á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi við nánast stöðug fagnaðarlæti. Hver manneskja í salnum nauðaþekkti auðvitað þetta verk, ef ekki af sviði þá úr bíó, auk þess sem lögin hafa hljómað áratugum saman í eyrum okkar. Þó verður maður aldrei leiður á þeim. Og [...]

Fortíðardraugar og framtíðarsýn

2019-05-08T16:13:01+00:005. mars 2016|

Eiríkur Örn Norðdahl hefur verið all áberandi í íslensku leikhúsi í vetur, rétt eins og hann ætli að gera það að sínum vettvangi, enda búinn að prófa að gefa út ljóð og sögur og pólitískar og bókmenntalegar greinar – hann var meira að segja að gefa út bók með plokkfiskuppskriftum. Ekki hefur þó enn verið [...]

Ég man … ég man … ég man

2019-05-08T17:48:54+00:0025. janúar 2016|

Kannski var það kvefið – en ég held að ég hafi aldrei skælt eins mikið á leiksýningu og í gærkvöldi. Það var Flóð á litla svið Borgarleikhússins sem hafði þessi áhrif, heimildaverkið um snjóflóðið á Flateyri fyrir rétt rúmum tuttugu árum, eftir Björn Thors og Hrafnhildi Hagalín sem Björn leikstýrir. Samt var umbúnaðurinn einfaldur hjá [...]

Georg og Marta – sorgarsaga

2019-05-10T12:28:14+00:0016. janúar 2016|

Það var beinlínis líkamlega erfitt að fylgjast með átökum þeirra Hilmis Snæs Guðnasonar og Margrétar Vilhjálmsdóttur á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi í fulla þrjá klukkutíma (með einu hléi), svo ekta hatrömm voru þau, þó nokkurn veginn alveg án líkamlegs ofbeldis. Í víðkunnu leikriti Edwards Albee Hver er hræddur við Virginíu Woolf? beita menn ofbeldi [...]