Þú ert hér://Tag: Bjartur

Hlustað eftir andardrætti orðanna

2019-06-28T15:37:42+00:001. mars 2012|

Jón Kalman Stefánsson. Himnaríki og helvíti, Harmur englanna, Hjarta mannsins. Bjartur 2007, 2009, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Mitt í miklu andstreymi og mannraunum finnur strákurinn, aðalsöguhetjan í trílógíunni Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins, lífsþrótt sinn í knýjandi þörf fyrir orð. Ástin á skáldskapnum, þessum heimi innan spjalda [...]

Að grafa leynigöng milli veruleika og drauma

2019-06-28T12:08:20+00:001. mars 2012|

Eiríkur Guðmundsson. Sýrópsmáninn. Bjartur, 2010, 232 bls. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2012 Eiríkur Guðmundsson lýsti skáldsögu sinni Sýrópsmánanum sem „tilfinningalegri rannsóknarskýrslu“ í viðtali við Morgunblaðið 10. nóvember 2010. Lýsingin kallar fram ýmis konar hugrenningatengsl, en fyrst og fremst við hina frægu Rannsóknarskýrslu Alþingis eins og til var ætlast. Skýrslan sú var gefin [...]

Örlagaríkt ástleysi

2019-10-16T17:26:39+00:001. desember 2011|

Bergsveinn Birgisson. Svar við bréfi Helgu. Bjartur, 2010. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2011 Lesendum Bergsveins Birgissonar hefur orðið tíðrætt um stílinn í verkum hans, enda er hann óvenjulegur, styrkur Bergsveins og sérstaða sem höfundar. Þjóðlegur andi og kjarnyrt mál ræður ríkjum í öllum þeim þremur skáldsögum sem Bergsveinn hefur sent frá sér. [...]

Hveragerði eða Þórshöfn?

2019-10-21T14:49:37+00:007. júní 2011|

Huldar Breiðfjörð. Færeyskur dansur. Bjartur, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2011. Færeyskur dansur eftir Huldar Breiðfjörð ber undirtitilinn „ferðalýsing“ og við fyrstu sýn virðist óþarfi að bera brigður á það. Huldar lýsir komu sinni til Færeyja í febrúar 2009 og virðist helsti hvatinn að ferðinni hafa verið sá velvilji sem færeyska þjóðin [...]

Athafnaskáld í draumleiðslu

2019-10-24T17:00:28+00:0029. nóvember 2010|

Jón Karl Helgason. Mynd af Ragnari í Smára. Bjartur, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2010. Þessi bók er einkennileg í laginu. Æviágrip Ragnars í Smára eru dregin saman og þrædd á streng sem teygir sig yfir nokkra daga í desember árið 1955. Það er þá að Ragnar flýgur til Kaupmannahafnar og síðan [...]

Hermt frá guðsglímu

2020-01-24T14:09:35+00:0029. september 2010|

Árni Bergmann. Glíman við Guð. Bjartur, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2010. Glíman við Guð „Nú herm frá trúarbrögðum þínum mér.“ Þannig þýðir Bjarni frá Vogi eina þekktustu spurningu í þýskum bókmenntum, Grétuspurninguna, eða spurninguna sem Gréta ber upp við Fást („Nun sag, wie hast du’s mit der Religion?“ I. [...]

Fínstillum ó, næmiskerfið

2020-01-27T14:50:25+00:002. júní 2010|

Oddný Eir Ævarsdóttir. Heim til míns hjarta: Ilmskýrsla um árstíð á hæli. Bjartur, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2010. I Ung kona innritar sig á heilsuhæli í von um bót á meini sínu; hún er útbrunnin. Í upphafi frásagnarinnar segir: „Orsakir ástandsins eru ókunnar en ég held að leit mín að skilningi [...]

Brúðuheimili

2020-01-27T14:01:04+00:002. júní 2010|

Steinunn Sigurðardóttir. Góði elskhuginn. Bjartur, 2009. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2010. „Það er kunnara en frá þurfi að segja að piparsvein í góðum efnum hlýtur að vanta eiginkonu.“ Þannig hljóða upphafsorð einnar frægustu ástarsögu allra tíma, Hroka og hleypidóma eftir ensku skáldkonuna Jane Austen. [1] Öfugt við hið klassíska ástardrama enska leikskáldsins [...]

Þar sem kettir lifa og deyja

2020-03-11T10:28:40+00:0010. júní 2009|

Hermann Stefánsson. Algleymi. Bjartur, 2008. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2009. Rithöfundurinn Guðjón Ólafsson opnar augun eftir fjörutíu daga meðvitundarleysi og „hvít veröld hrynur inn í huga hans, samhengislaus og framandi“ (7). Hann er á sjúkrahúsi og hefur misst minnið og raunar málið líka. Hann veit ekki hvað kom fyrir hann og man [...]

Upplýsingamyrkrið

2020-03-11T15:11:47+00:0015. febrúar 2009|

Sjón. Rökkurbýsnir. Bjartur, 2008 Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2009. Hvert skeið á sér eigin hugarheim sem litar reynsluna, þekkinguna og sannleikann. Þegar endurreisnarmaður skrifaði lærða grein um ljón þurfti hann að lýsa fyrirbærinu, fjalla um kjörlendi og hvort það fæddi lifandi afkvæmi. Ekki sakaði að geta um innræti skepnunnar, glæsileika hennar eða [...]