About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

Öld einstaklingsins

2021-07-30T11:05:08+00:009. júlí 2021|

Fyrir leikhúsrottu eins og mig var einna mestur spenningur fyrir því á Reykjavík Fringe Festival að sjá pólitíska einleikinn Egoland. Þetta er verðlaunaverk þýsk-sænsk-kýpverska leikhópsins SRSLYyours, samið af hópnum og leikstjóranum Achim Wieland sem fylgdi sýningunni hingað. Þau sýndu í Tjarnarbíó. Sviðið er einfalt: stór kassi teiknaður á gólfið með breiðu, hvítu striki sem varð [...]

Hver er tilgangur lífsins?

2021-06-24T14:13:21+00:0019. júní 2021|

Hákon Örn Helgason er meðal þeirra sem ljúka námi frá sviðshöfundabraut Listaháskólans núna í vor og hefur undanfarið sýnt útskriftarverkefni sitt, Jesú er til, hann spilar á banjó, á sviði skólans í Laugarnesi. Með honum er myndarlegur hópur, Magnús Thorlacius er dramatúrg, Rakel Andrésdóttir hannar leikmynd og með henni eru Helena Margrét Jónsdóttir og Egill [...]

Í amerískum ævintýraskógi

2021-06-14T20:13:29+00:0014. júní 2021|

Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz hefur undanfarið sýnt söngleikinn  Djúpt inn í skóg (Into the Woods) eftir Stephen Sondheim (tónlist) og James Lapine (handrit) í Gaflaraleikhúsinu við miklar vinsældir. Leikstjóri er Orri Huginn Ágústsson og tónlistarstjóri Ingvar Alfreðsson en prýðileg þýðingin á bráðskemmtilegum textanum er eftir Einar Aðalsteinsson, Orra leikstjóra og Þór Breiðfjörð deildarstjóra. Söngleikurinn var [...]

Besta veisla í heimi?

2021-05-19T11:35:25+00:0016. maí 2021|

Öll eigum við frá blautu barnsbeini og fram á þennan dag minningar um veislur, góðar og slæmar og allt þar á milli. Það er jafnmikill unaður að vakna morguninn eftir virkilega vel heppnaða veislu, hvort sem er á manns eigin vegum eða annarra, og það er ööömurlegt að vakna eftir misheppnaða veislu og neyðast til [...]

Hvernig er veðrið?

2021-05-19T10:57:42+00:0015. maí 2021|

Sirkuslistahópurinn Hringleikur frumsýndi í gær í Tjarnarbíó sirkuslistaverkið Allra veðra von í Tjarnarbíó í samstarfi við leikhópinn Miðnætti. Úr síðarnefnda hópnum koma m.a. leikstjórinn Agnes Wild, búninga- og sviðsmyndahöfundurinn Eva Björg Harðardóttir og tónlistarstjórinn Sigrún Harðardóttir, en höfundar verksins eru liðsmenn Hringleiks, Bryndís Torfadóttir, Eyrún Ævarsdóttir, Jóakim Meyvant Kvaran, Nick Candy og Thomas Burke. Eins [...]

Refillinn í Bayeux

2021-05-14T11:00:09+00:0014. maí 2021|

Landnámssetrið í Borgarnesi heldur upp á fimmtán ára afmæli og nýja opnun eftir langt „kóf“ með sögustund um óvenjulegt efni. Reynir Tómas Geirsson læknir stóð nýlega að útgáfu á bókinni Dvergurinn frá Normandí eftir Lars-Henrik Olsen sem kona hans, Steinunn Jóna Sveinsdóttir, þýddi og sem segir frá tilurð refilsins fræga sem saumaður var í Kent [...]

Hver er nashyrningur?

2021-04-27T13:27:43+00:0024. apríl 2021|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær og fyrrakvöld Nashyrningana eftir Eugène Ionesco – frumsýningarnar voru tvær vegna þess að aðeins má hálffylla salinn vegna farsóttarinnar. Ný fantagóð þýðing er eftir Guðrúnu Vilmundardóttur og leikstjóri er Benedikt Erlingsson sem sjálfur vann leiksigur sem menntaskólanemi í hlutverki Róberts, sem Hilmir Snær Guðnason leikur nú.[1] Leikmynd er eftir Börk Jónsson, [...]

Jónmundur og Kústur leysa morðmálin

2021-04-27T13:27:19+00:0023. apríl 2021|

Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð sýnir nú eigið sköpunarverk, Næsta morð á dagskrá – sagan af því hvernig Gréta hætti að gráta, undir stjórn Helga Gríms Hermannssonar og Tómasar Helga Baldurssonar. Unglingarnir vita að nútíminn hefur ekki áhuga á neinu öðru en glæpamálum og í þessu verki eru morðin þrjú! Upphaf sögu er að stúlkan Gréta [...]

Ævintýri í flundarlegum kafbát

2021-03-25T10:12:23+00:0021. mars 2021|

Barnasýningin Kafbátur eftir Gunnar Eiríksson sem var frumsýnd í Kúlu Þjóðleikhússins í gær (ég sá aðra sýningu sem var í dag) er listaverk hvar sem á hana er litið. Sagan er fjörug með fallegum boðskap, þýðing Bergsveins Birgissonar einkar liðleg, leikurinn góður og sviðið hans Finns Arnars Arnarsonar geggjað snilldarverk! Þetta er dystópía eins og [...]

„Orðspor never dies“

2021-03-25T10:18:54+00:0012. mars 2021|

Það verður ekki frýnilegt lífið eftir hrun siðmenningarinnar ef marka má verk Kolfinnu Nikulásdóttur, The last kvöldmáltíð. Það var frumsýnt í Tjarnarbíó í gærkvöldi á vegum leikhópsins Hamfara undir stjórn Önnu Maríu Tómasdóttur. Þar hittum við síðustu eftirlifendurna í óræðri framtíð, eins konar fjölskyldu, pabba, mömmu, stúlku og tvo drengi (skyldleikinn er óljós), sem hafa [...]