About Silja Aðalsteinsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Silja Aðalsteinsdóttir has created 267 blog entries.

Um vellíðan eða …?

2023-03-06T21:32:53+00:0026. febrúar 2023|

Fjórmenningarnir í uppistandshópnum VHS frumsýndu nýja sýningu í Tjarnarbíó í gærkvöldi undir heitinu VHS velur vellíðan. Boðorð tímans er að við eigum að stunda líkamsrækt og hugsa vel um líkamann og öll fjögur hefja þau atriðið sitt á stuttu vídeói til að minna á þetta boðorð. Vilhelm Neto fer í nudd, Hákon Örn í ræktina, [...]

Hera Nótt með allt á hreinu

2023-02-27T11:18:36+00:0023. febrúar 2023|

Herranótt (eða Hera Nótt eins og Herranæturstjórn kallar þetta afkvæmi sitt) Menntaskólans í Reykjavík frumsýndi í gærkvöldi sína útgáfu af söngleiknum/kvikmyndinni Með allt á hreinu í Gamla bíó undir stjórn Völu Fannell. Ég tek fram undir eins að ég sá ekki frumsýninguna, því miður, heldur aðalæfingu kvöldið áður og eins og allir vita er aðalæfing [...]

Konur eru konum verstar

2023-02-20T13:13:32+00:0020. febrúar 2023|

Það er líf og fjör í Tjarnarbíó þetta misseri sem oftar og í gærkvöldi sá ég nýjustu sýninguna þar, Samdrætti eftir Mike Bartlett, tveggja kvenna verk undir stjórn Þóru Karítasar Árnadóttur. Kristín Eiríksdóttir þýðir, Sean Mackaout sér um leikmynd og búninga, lýsingin er á hendi Ólafs Ágústs Stefánssonar og Valgeir Sigurðsson sá um tónlist og [...]

Að vera eða vera ekki pabbi

2023-02-15T14:02:02+00:0013. febrúar 2023|

Þjóðleikhúsið endurfrumsýndi um helgina leiksýningu Kára Viðarssonar og Maríu Reyndal Prinsinn á Litla sviðinu í samstarfi við Frystiklefann á Rifi. Þar var verkið einmitt heimsfrumsýnt síðastliðið vor og síðan hefur það ferðast um landið. Það er gott til þess að vita að margir hafi fengið tækifæri til að sjá það því að þetta er þörf [...]

Óður endurtekur leikinn

2023-02-15T14:01:28+00:0012. febrúar 2023|

Sviðslistahópurinn Óður frumsýndi í gærkvöldi í samstarfi við Þjóðleikhúsið gamanóperuna Don Pasquale eftir Gaetano Donizetti í Þjóðleikhúskjallaranum og rifjaði upp fyrir mér hve ljúft var á Ástardrykknum í hittifyrra á sama stað. Það voru líka að töluverðu leyti sömu kraftar sem dilluðu áhorfendum í gærkvöldi, sama tónskáld, sami hugkvæmi leikstjóri (Tómas Helgi Baldursson), sama fína [...]

Að fá að vera með, eiga líf og fá ást

2023-02-15T14:11:54+00:0010. febrúar 2023|

Eva Rún Snorradóttir skáld og leikstjóri brýtur á margan hátt blað í leiklistarsögu okkar með sýningunni Góða ferð inn í gömul sár sem var frumsýnd um síðustu helgi á Nýja sviði Borgarleikhússins. Ég man að ég hlustaði á hana á kynningarfundi í leikhúsinu fyrir mörgum mánuðum, þar reyndi hún að lýsa þessu verki fyrir gestum [...]

Sitthvað er Vanda og Wanda

2023-02-08T16:18:25+00:003. febrúar 2023|

Eiginlega er merkilegt að leikrit eftir David Ives skuli ekki hafa rekið á fjörur mínar fyrr en í gærkvöldi, svo vinsæll og verðlaunaður er hann í heimalandi sínu, Bandaríkjunum. Það er bæði snjallt og djarft af Eddu Björgu Eyjólfsdóttur að velja eitt hans umtalaðasta verk, Venus í feldi, til að setja upp hér á landi [...]

Allt – eða ekkert

2023-02-08T16:07:53+00:0029. janúar 2023|

Í gærkvöldi var frumsýndur miðleikur þríleiks Mariusar von Mayenburg á stóra sviði Þjóðleikhússins: Ex. Aðstandendur eru hinir sömu, þýðandi Bjarni Jónsson, leikstjóri Benedict Andrews og leikið er á sama sviði Ninu Wetzel en því þó líka breytt á ýmsa vegu. Björn Bergsteinn Guðmundsson stýrir vandaðri lýsingu og einstaklega viðeigandi áhrifstónlistin er eftir Gísla Galdur Þorgeirsson. [...]

Veslings Marat

2023-02-08T16:12:40+00:0027. janúar 2023|

Áhorfendum á Marat/Sade í Borgarleikhúsinu er boðið upp á tvær snilldarhugmyndir. Önnur er beinlínis leikritið sjálft, Marat/Sade eða ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn de Sade markgreifa eftir þýska leikskáldið Peter Weiss. Það er varla hægt að hugsa sér geggjaðri hugmynd en að horfa á frönsku [...]

„Love is all around“

2023-02-08T16:17:14+00:0021. janúar 2023|

Það fer einkar vel á því að dreifa brotum úr gömlum Bítlalögum um nýju Shakespeare-sýninguna þeirra Ágústu Skúladóttur leikstjóra og Karls Ágústs Úlfssonar þýðanda og skálds í Kassa Þjóðleikhússins: Hvað sem þið viljið. Ástarsöngvar Bítlanna hafa einmitt þennan ungæðislega brag sem aðstandendur vilja ná: að lífið sé leikur og um að gera að skemmta sér [...]