Þú ert hér://Leikdómar

Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.

Ég elska hana, hún elskar annan mann

2020-01-31T15:44:55+00:0015. mars 2009|

Þrettándakvöld er eitt alskemmtilegasta leikrit Vilhjálms Shakespeare, hryllilega fyndið og fyndnin þar að auki af mörgum tegundum. Þar ber erótíska fyndni hæst en líka er meinleg fyndni áberandi, misskilningsfyndni, kynusli eins og hann gerist fyndnastur hjá þessum yndislega höfundi og svona mætti lengi halda áfram að telja. Þetta verk hefur maður séð í mörgum uppsetningum og ... Lesa meira

Afturgengin ást

2019-06-12T12:12:23+00:0028. febrúar 2009|

Leikrit Friedrichs Dürrenmatts um milljónamæringinn sem snýr aftur heim í fæðingarbæ sinn sem hún var hrakin frá, ung, örbirg og ólétt, áratugum fyrr, er eitthvert miskunnarlausasta verk sem ég hef séð. Það á sameiginlegt með verki Shakespeares um Ríkharð þriðja að verða bara óhugnanlegra og andstyggilegra því lengra sem líður á það. Ný leikgerð af ... Lesa meira

Já, skyldi maður ekki hafa nóg?

2020-01-31T15:50:46+00:0024. febrúar 2009|

Þjóðleikhúsið frumsýndi Kardemommubæinn á sunnudaginn, fullu húsi af fallegum börnum til mikillar kátínu. Selma Björnsdóttir leikstýrði og setti að ýmsu leyti sitt mark á sýninguna, til dæmis voru leikarar ungir, ljónið var póstmódern og las blöðin og dansarnir (sem Birna og Guðfinna Björnsdætur sáu um) krakkalega eróbikklegir. Sviðið hans Brians Pilkingtons er litríkt og fallegt og búningarnir ... Lesa meira

Hungur og gredda

2020-01-31T16:10:28+00:0031. janúar 2009|

Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, ... Lesa meira

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús ... Lesa meira

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir ... Lesa meira

Hinn eiflífi maður

2019-04-03T15:10:15+00:002. nóvember 2008|

Nýtt verk Sigurðar Pálssonar, Utan gátta, sem er sýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu, hefur fengið virkilega fín viðbrögð gagnrýnenda eins og það á skilið. Þetta er dásamlegt verk, fyndið og furðulegt en sýnir okkur samt ofan í regindjúp mannlegrar reynslu, án þess að rembast nokkurn tíma. Að óreyndu hefði ég ekki ímyndað mér að hægt væri ... Lesa meira

Villtum manni bent á rétta veginn

2020-01-31T16:19:32+00:0011. maí 2008|

Það er ekki ónýtt að láta segja sér allt um handanheiminn á einu kvöldi, eins og gert er í spunaverkinu Dauðasyndunum í Borgarleikhúsinu núna undir stjórn Ítalans Rafaels Bianciotto. Trúðarnir Barbara, Gjóla, Úlfar og Za-ra hafa kynnt sér kvæðið Gleðileikinn guðdómlega eftir Dante Alighieri og gera sitt besta til að endursegja okkur ófróðum þessa miklu sögu sem ... Lesa meira

Var Hollywood í Ármúlanum?

2020-01-31T16:42:33+00:002. maí 2008|

Ég vaknaði í morgun með lokasönginn í hausnum: “Ástin er diskó – lífið er pönk”. Kannski verður það smellur. En hápunktur kvöldsins fyrir mig var síðasta lag fyrir hlé, “Hiroshima” eftir Bubba Morthens, sem Nonni rokk (Þórir Sæmundsson) flutti af miklum krafti og reyndar frábærlega vel. Jafnaðist ekki á við höfundinn (hver gerir það?) en ... Lesa meira

Enginn er heill nema hann sé tveir

2020-01-31T16:59:48+00:0023. apríl 2008|

Sá líkamslausi og stúlkan hans (Haraldur og Unnur Birna). Spunaverkið Drottinn blessi blokkina sem Stúdentaleikhúsið sýnir núna í gamla Sjómannaskólanum (Fjöltækniskólanum við Háteigsveg) er þvottekta skólasýning: mannmörg, fjörug og passlega galin. Það er samið af þátttakendum undir stjórn Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Sveins Ólafs Gunnarssonar leikstjóra, sundurlaust og svo fullt af hugmyndum að út ... Lesa meira