Leikdómar Silju Aðalsteinsdóttur eru ómissandi partur af menningarlífi Íslendinga.
Heimsókn í Hundraðekruskóg
Leikhópurinn Lotta er sestur að í Ævintýraskóginum í Elliðaárdal – nema hvað nú heitir hann Hundraðekruskógurinn og titilpersóna nýja söngleiksins er enginn annar en sjálfur Bangsímon. Höfundur og leikstjóri er Anna Bergljót Thorarensen sem líka semur ágæta söngtexta ásamt Baldri Ragnarssyni en höfundar fjörugra laga eru Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir og Þórður Gunnar Þorvaldsson. Danshöfundur er Sif Elíasdóttir Bachmann ... Lesa meira