Þú ert hér://Tag: William Shakespeare

Ys og þys út af ástinni

2019-10-11T13:50:02+00:0011. október 2019|

Vegir hugverkanna eru margir og margvíslegir. Oftast fara þó skáldsögur upp á svið eða í bíó en líka kemur fyrir að bíómyndir fara upp (eða niður) á leiksvið. Shakespeare verður ástfanginn byrjaði með handriti eftir Marc Norman og Tom Stoppard í kvikmynd sem naut mikilla vinsælda og hlaut ótal verðlaun og viðurkenningar. Þessa bíómynd lagaði [...]

Búrleskur draumur á töfranótt

2019-03-18T13:40:23+00:002. mars 2019|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi eitt skemmtilegasta leikrit í heimi, Jónsmessunæturdraum eftir William Shakespeare. Þórarinn Eldjárn þýddi leikritið fyrir þessa uppsetningu og það fær nú að heita þessu munntama nafni. Þýðing Þórarins er eins og búast mátti við, nákvæm en þó leikandi létt og dillandi fyndin. Leikstjóri er Hilmar Jónsson, Eva Signý Berger gerir leikmyndina en [...]

Blekkingameistarinn Jagó og listir hans

2019-05-03T16:10:50+00:0023. desember 2016|

„Hrörnar þöll / sú er stendur þorpi á“ segir í Hávamálum. Upphafssviðið í Óþelló Shakespeares, sem frumsýndur var í gærkvöldi á stóra sviði Þjóðleikhússins, minnti á þessi orð. Á sviðinu stendur tré, beinvaxið og fagurt, í annars gróðurlausri urð. Við fáum að horfa á það drjúga stund og njóta þess að sjá ljósin leika í [...]

Hamlet light

2019-05-28T00:14:08+00:0012. apríl 2014|

Ég komst að því þegar ég var búin að bjóða föstum félaga mínum á barnsaldri á Hamlet litla í Borgarleikhúsinu að sýningin væri ætluð ellefu ára börnum og eldri. Félagi minn er sex ára. En ég gat ekki svikið hann, leikhús er hans líf og yndi, og ég sá ekki betur en hann héldi athygli [...]

Drauma-Smiðjan

2019-06-15T15:40:10+00:0024. mars 2013|

Ég fann fyrir tilfinningu eftir sýningu Nemendaleikhússins á Draumi á Jónsmessunótt í Smiðjunni í gærkvöldi sem sumt leikhúsfólk hefur fjölyrt um í ævisögum sínum: ég vildi að sýningin væri ekki búin heldur héldi áfram – eða byrjaði upp á nýtt! Mig langaði ekki til að rjúfa töfrana og fara út úr húsinu. Leikritið er auðvitað [...]

Kóngsríki sé mitt leiksvið

2019-08-23T14:26:06+00:004. október 2011|

Sigurður Skúlason frumsýndi í fyrrakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum einleik sinn og Benedikts Árnasonar leikstjóra, Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, með bútum úr höfundarverki Shakespeares í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Þeir félagar hafa valið glæsilegar einræður og samtöl úr mörgum þekktustu verkum leikskáldsins og þó að flestar persónurnar væru karlkyns hikaði Sigurður ekki við að bregða sér í kvenhlutverk, [...]

Draumur í dós

2019-08-24T13:25:36+00:009. mars 2011|

Herranótt MR tekur þátt í Shakespeareveislu vetrarins með uppsetningu á Draumi á Jónsmessunótt undir stjórn Gunnars Helgasonar. Sýningin er í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi og hefur verið afar vinsæl, jafnvel svo að fólk hefur orðið frá að hverfa. Það má tína til margt til að skýra vinsældirnar. Fyrst það að þetta er eitt alskemmtilegasta leikrit meistarans, [...]

Um ótryggt líf valdhafa

2019-08-24T14:47:48+00:008. janúar 2011|

Íslenska  hreyfiþróunarsamsteypan byrjar á endinum í Kandílandi, dansverkinu sem verið er að sýna í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Líklega hafa þau verið að hugsa um málsháttinn „í upphafi skyldi endinn skoða” því strax þá, í fjölbreyttum tilburðum leikara í framkalli, reyndu þau að toppa hvert annað, taka ný afbrigði af þakkarviðbrögðum að láni frá næsta manni [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

“Hörmungatímum við hljótum að gera skil”

2019-08-24T15:02:11+00:0027. desember 2010|

Eiginlega er Lér konungur ómögulegt leikrit, rosalega langt og flókið og snýst mest um óyndisleg efni eins og valdabaráttu, heimsku, svik, geðveiki og ofbeldi. Það byrjar á því að gamall kóngur útfærir einstaklega vonda hugmynd sína: að gefa dætrum sínum þremur landsvæði í hlutfalli við ástina sem þær segjast bera til hans. Svo er honum [...]