Þú ert hér://Tag: Vignir Rafn Valþórsson

Myrkviði mannssálarinnar

2023-05-15T12:25:41+00:0024. apríl 2023|

  Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi um helgina Svartþröst eftir Skotann David Harrower á Litla sviði Borgarleikhússins. Vignir Rafn Valþórsson bæði þýðir og leikstýrir enda er hann kunnugur verkum af þessu tagi ­ – erfiðum, afhjúpandi verkum sem ganga nærri persónum sínum, leikurum og áhorfendum. Ég minnist sýninga hans á Munaðarlaus, Bláskjá, Hans Blæ, Illsku, Refnum og [...]

Lúserinn snýr aftur

2019-10-20T10:04:12+00:0020. október 2019|

Það er umtalsvert afrek sem Sveinn Ólafur Gunnarsson vinnur á sviði Tjarnarbíós í verkinu Rocky sem Óskabörn ógæfunnar frumsýndu þar á föstudagskvöldið undir stjórn Vignis Rafns Valþórssonar. Sveinn er einn á sviðinu í um það bil 80 mínútur, talar allan tímann, lendir í hörkubardaga við ósýnilegan andstæðing og sýnir sjálfum sér að lokum þá dýpstu [...]

„Glundroðamaskína í fjölkynja líkama“

2019-05-08T10:39:17+00:0015. mars 2018|

Óskabörn ógæfunnar frumsýndu í gærkvöldi leikritið Hans Blær eftir Eirík Örn Norðdahl, verk sem hefur verið kynnt á nýstárlegan hátt með eintómum neikvæðum (en einkar skemmtilega orðuðum) lýsingum. Maður kveið eiginlega fyrir að hlusta á textann af ótta við að hlustum manns yrði misboðið á hverri mínútu. Það gerðist ekki og þá er spurningin hvort [...]

Vísindin efla alla dáð

2019-05-03T13:38:05+00:0012. febrúar 2017|

Ef ég vissi ekki að Vilhelm Anton Jónsson hefur skrifað nokkrar afar vinsælar bækur fyrir börn um vísindi þá hefði mér dottið í hug að hann væri uppiskroppa með efni á sýningunni sinni, Vísindasýningu Villa, á litla sviði Borgarleikhússins. Hann var rétt svo byrjaður að fræða fullan sal af börnum um hugðarefni sín þegar Vala [...]

Meinvill í myrkrunum

2019-05-03T16:08:22+00:0027. nóvember 2016|

Stúdentaleikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er þægilega lágur að þessu sinni. Undir stjórn Vignis Rafns Valþórssonar vinna þau sýningu sem þau kalla því hnyttna nafni Meinvillt upp úr umdeildu leikriti Edwards Bond Saved. Þau stytta verkið mikið og fjarlægja úr því alla fullorðna, unglingarnir eru einir eftir og leika lausum hala. Saved [...]

„Sennilega eigum við öll brauð í magann skilið“

2019-05-16T17:15:14+00:005. ágúst 2015|

Ég er nærri því viss um að þið höfðuð ekki hugmynd um að í rauninni átti litla gula hænan heima í skýjahöllinni hjá risanum og að þar var það sem hún sáði fræinu, þreskti kornið og allt það. Og að í rauninni var það hún en ekki gæsin sem verpti gulleggjum handa risanum og Jói [...]

Við og Afríka – Afríka og við

2019-05-17T13:26:50+00:0024. apríl 2015|

„Það virðist ekki vera til nein fær leið til að sýna hörmulegar afleiðingar eyðni í Afríku á sviði,“ segir þýska leikskáldið Roland Schimmelpfennig í grein á netinu. „Ég er samt viss um að hún er til og ég reyndi að finna hana.“ Leið hans, Peggy Pickit sér andlit Guðs, var frumsýnd á litla sviði Borgarleikhússins [...]

Af Hróa hetti og Þyrnirós

2019-05-27T16:28:04+00:003. júlí 2014|

Það leit ekkert sérstaklega vel út fyrirfram með sýningu á Hróa hetti hjá Leikhópnum Lottu í gær. Hópurinn sýnir í Elliðaárdalnum, sem kunnugt er, og utan dyra. En stór hópur bjartsýnna foreldra og barna kom samt og allt fór vel, eins og ævintýrið á sviðinu. Undir sýningarlok fór að vísu að rigna pínulítið en hvorki [...]

Refaveiðar

2019-06-12T12:25:48+00:0017. nóvember 2013|

Dystópíur eru í tísku um þessar mundir – skáldverk þar sem lýst er illum heimi og engin eða lítil von framundan. Nægir að minna á Hungurleikana vinsælu og benda á að nokkrar bækur koma út á íslensku nú í haust, bæði innlendar og þýddar, sem gerast í slíkum vondum heimi. Kannski stafar þetta af umræðum [...]

Fokking fokk – sorrí

2020-01-30T15:29:01+00:009. janúar 2010|

Myndin á plakati leikritsins Munaðarlaus sem var frumsýnt í Norræna húsinu í gær (8.1.10) virðist við fyrstu sýn alveg út í hött, en hún öðlast mikinn merkingarauka þegar maður er búinn að sjá sýninguna. Á myndinni eru tvö lítil systkini, dálítið stærri stelpa, alvarleg og ábyrg á svip, og skælbrosandi yngri bróðir. Þau eru í [...]