Þú ert hér://Tag: Viðar Gunnarsson

Þegar menningarheimar rekast á

2023-03-06T09:10:10+00:005. mars 2023|

Íslenska óperan frumsýndi í gærkvöldi vinsæla óperu Puccinis frá 1904, Madama Butterfly, með kóresku sópransöngkonunni Hye-Youn Lee í aðalhlutverki. Leikstjórinn Michiel Dijkema gerði einnig leikmyndina sem var eins og klassísk smámynd frá Japan í gamla daga með hænsnastiga og bonsai-tré og allt. Hljómsveitarstjóri var Levente Török, Magnús Ragnarsson stjórnaði kórnum, María Th. Ólafsdóttir skapaði öllum [...]

Rakarinn leysir vandann

2019-05-16T12:15:09+00:0018. október 2015|

Uppsetning Ágústu Skúladóttur á Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini í Íslensku óperunni er ljómandi vel heppnuð, bæði falleg og skemmtileg. Ágústa segir sjálf í leikskrá að hún líti á söguna sem ævintýri og í stíl við ævintýrið er sýningin stílhrein og tær. Ekkert fer á milli mála. Litirnir í leikmynd Steffens Aarfing eru heitir, litsterkir [...]

Hvað er auður og afl …?

2019-05-22T14:08:47+00:0019. október 2014|

Maður mátti hafa sig allan við að fá ekki alvarlegt kast af þjóðernishroka undir frumsýningunni á Don Carlo í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Á snilldarlega hönnuðu sviði Þórunnar Sigríðar Þorgrímsdóttur, frumlega lýstu af Páli Ragnarssyni, steig fram hver glæsilegi söngvarinn af öðrum og lék og söng hlutverk sitt í einni mestu óperu Verdis undir styrkri [...]

Mala domestica

2019-06-04T08:45:08+00:002. mars 2014|

Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]

Bræður munu berjast …

2019-06-18T18:02:20+00:005. nóvember 2012|

Það er engu logið á uppsetningu Íslensku óperunnar á Il trovatore Verdis í Eldborgarsal Hörpu. Hljómsveitin leikur skínandi vel undir stjórn Carol I. Crawford, einsöngvararnir syngja hver öðrum betur og kórinn er flottur undir stjórn Halldórs E. Laxness. En eiginlega fannst mér sviðið hans Gretars Reynissonar stela senunni hvað eftir annað í göldróttri lýsingu Björns [...]

Fyrsta óperan í Hörpu

2019-08-23T14:09:47+00:0023. október 2011|

Það var gífurleg stemning í Hörpu á laugardagskvöldið: fullt í öllum sölum og þúsundir í húsinu. Þar að auki var verið að frumsýna fyrstu óperuna í Eldborg og mikil ánægja með þann áfanga. Menn óskuðu hver öðrum til hamingju með daginn eða buðu gleðilega hátíð. Óperan var sú gamalkunna Töfraflauta Mozarts, dýrlegt músíkstykki með nokkrum [...]