Þú ert hér://Tag: Þórhallur Sigurðsson

„Og borgin okkar best er gjörð af öllum borgum hér á jörð“

2020-09-28T21:20:44+00:0027. september 2020|

„Ég vildi að ég byggi í Kardimommubæ,“ stundi fullorðinn förunautur minn eftir frumsýninguna í Þjóðleikhúsinu í gær. Og hver vildi ekki búa í borg þar sem hvert tækifæri er notað til hátíðahalda, þar sem allir bæjarbúar hjálpast að þegar kviknar í og þar sem þjófum er ekki haldið í fangelsi heldur eru þeir endurhæfðir og [...]

Ástin og dauðinn á fjöllum

2019-05-20T10:20:57+00:0027. mars 2015|

Ég var bæði búin að kvíða fyrir og hlakka til að sjá Fjalla-Eyvind og Höllu í Þjóðleikhúsinu, rosalega spennt að vita hvernig Stefan Metz færi með þessa gömlu klassík okkar sem hver kynslóð verður að fá sína útgáfu af. Það voru útlendingar sem báru þetta verk fram og hófu það til vegs og virðingar upphaflega, [...]

Kuggur, Mosi, mæðgurnar og leikhúsvélin

2019-05-22T11:08:05+00:0021. febrúar 2015|

Hugmynd Sigrúnar Eldjárn að bókunum um Kugg eru eiginlega á heimsmælikvarða. Bara það að láta sér detta í hug vinahóp sem samanstendur af einum strákling, smáveru með ofurkraft, sprækri kerlingu og miðaldra dóttur hennar, sem líka er hugmyndaríkur uppfinningamaður, er svo galin að hún hlýtur að virka. Enda hefur hún virkað árum saman í bókaflokknum [...]

Salem í samtímanum

2019-06-04T08:04:55+00:0028. apríl 2014|

Mér er enn í furðu fersku minni uppsetning Stefans Metz á Krítarhringnum í Kákasus eftir Brecht í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum og hlakkaði mikið til að sjá Eldraunina hans á sama sviði í ár. En Eldraunin er að sjálfsögðu allt öðruvísi verk og þar eru brellur leiksviðsins óþarfar og jafnvel til bölvunar. Sýningin er vissulega [...]

Maður og náttúra

2019-06-19T12:08:22+00:0027. apríl 2012|

Brúðuheimar og Bernd Ogrodnik frumsýndu í gær í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu og í samvinnu við Listahátíð leikgerð hans af Gamla manninum og hafinu, frægri nóvellu Ernests Hemingway sem hefur komið út á íslensku í þýðingu Björns O. Björnssonar. Hvergi er getið á upplýsingablaði með sýningunni hvort það er hans þýðing sem notuð er eða hvort [...]

Enginn vill vin sem er frekja og fól

2019-08-13T14:01:29+00:0029. desember 2011|

Börnin fengu sína jólasýningu í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu í gærdag, Litla skrímslið og stóra skrímslið. Verkið er unnið upp úr bókum Áslaugar Jónsdóttur og félaga hennar Kalle Güettler frá Svíþjóð og Rakelar Helmsdal frá Færeyjum um þessar persónur, textann sér Áslaug um og sömuleiðis leikmyndina en búningana gerði Ásdís Guðný Guðmundsdóttir. Þórhallur Sigurðsson stýrir sýningunni. [...]

Hverjum var Guðrún verst?

2019-08-21T16:49:34+00:0030. október 2011|

Mæðgurnar Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds frumsýndu í gærdag leikgerð Hallveigar á Laxdælu, Kjartan eða Bolli?, í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu undir stjórn Þórhalls Sigurðssonar. Í sýningunni leika þær mæðgur sem eru að taka til í dánarbúi móður og ömmu en stýra síðan brúðum sem leika fyrir okkur söguna af Laxdælu eins og Guðrún Ósvífursdóttir gæti [...]

Er Valgerður betri María en Júlía?

2020-01-31T15:19:50+00:009. maí 2009|

Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi í gærkvöldi söngleikinn sígræna Söngvaseið á stóra sviði Borgarleikhússins í þýðingu Flosa Ólafssonar. Gersamlega óþarft er að tíunda efni og boðskap þessa verks sem allir þekkja, það eina sem spurt er um er hvernig tekst til með sviðsetninguna: Nær hún máli miðað við fyrri uppsetningar sem fólk hefur séð hérlendis og erlendis [...]

Leiklistin í haust

2020-01-31T16:04:50+00:0017. nóvember 2008|

Eftir Silju Aðalsteinsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2008   Fyrsta frumsýning vetrarins var í barnaleikhúsinu Kúlunni í Þjóðleikhúsinu á Klókur ertu, Einar Áskell, sem brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik samdi og setti upp í samstarfi við höfund þessara vinsælu bóka, Gunillu Bergström (hún valdi Bernd sjálf til verksins) og leikstjórann Kristján Ingimarsson. Þetta var klassískt brúðuleikhús [...]