Þú ert hér://Tag: Þórarinn Eldjárn

„Lína, það er ég“

2025-09-14T11:34:17+00:0014. september 2025|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær splunkunýja uppsetningu á Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren í leikgerð Staffans Götestam, þýðingu Þórarins Eldjárn og leikstjórn Agnesar Wild. Um þessar mundir eru áttatíu ár síðan þessi ástsæla persóna birtist fyrst á prenti i heimalandi höfundar, Svíþjóð, við misjafnar viðtökur fullorðinna en óskoraðan fögnuð barna, og nú er hún sennilega frægasta [...]

„Já, ávinningur verður stór – ef ert‘ í kór“

2022-09-30T14:18:46+00:0018. september 2022|

Það var hátíðisdagur í Þjóðleikhúsinu í fyrrakvöld þegar söngleikurinn Sem á himni eftir Carin Pollak og Kay Pollak (handrit) og Fredrik Kempe (tónlist) var frumsýndur á stóra sviðinu: Framundan spennandi leikhúsvetur eftir löng og leiðinleg covid-ár. Þórarinn Eldjárn á þýðinguna fínu, leikstjóri er Unnur Ösp Stefánsdóttir en tónlistarstjórn í höndum Jóns Ólafssonar. Sagan í Sem á [...]

Nostalgían lifnar við

2021-12-06T16:36:33+00:006. desember 2021|

Það dekrar við fortíðarþrána í manni að horfa á uppsetningu Leikfélags Reykjavíkur á Emil í Kattholti sem var frumsýnd um helgina á stóra sviði Borgarleikhússins. Ég sá aðra sýningu, í gær sunnudag, vegna þess að leikhúsfélagi minn tæplega fjögra ára var enn í smitgát á laugardaginn en sloppinn í gær. Sviðið hennar Evu Signýjar Berger [...]

Fékk hann samþykki? Eða sagði hún nei?

2019-05-27T11:18:12+00:0027. október 2018|

Eins og það er gaman að sjá stuttar og hnitmiðaðar leiksýningar og safnast saman á eftir yfir umræðum um þær þá er líka upplifun að sjá langar og íhugular leiksýningar, virkilegar „heils kvölds sýningar“ sem maður stingur sér beint í rúmið á eftir og dreymir þær alla nóttina. Þannig sýning er Samþykki, ársgamalt leikrit eftir [...]

„Mamma mía, enn og aftur …“

2019-05-08T15:57:36+00:0012. mars 2016|

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstjóri og hennar einvalalið frumsýndu söngleikinn Mamma mia á stóra sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi við nánast stöðug fagnaðarlæti. Hver manneskja í salnum nauðaþekkti auðvitað þetta verk, ef ekki af sviði þá úr bíó, auk þess sem lögin hafa hljómað áratugum saman í eyrum okkar. Þó verður maður aldrei leiður á þeim. Og [...]

Ubbi Bubbi kóngur

2019-05-17T15:50:39+00:0012. apríl 2015|

Jæja, aldrei fór það svo að maður fengi ekki að sjá leikritið um Ubba kóng áður en yfir lyki. Þetta ríflega aldargamla leikrit franska symbólistans Alfreds Jarry hefur verið „household word“ á Íslandi síðan Davíð Oddsson komst fyrst til valda á Íslandi en Davíð lék Ubba eða kónginn sem þá hét Bubbi í frægri uppsetningu [...]

Í afahúsi

2019-05-22T10:53:51+00:001. mars 2015|

Það var snilldarhugmynd hjá Elínu Gunnlaugsdóttur að búa til söngleik utan um ljóð Þórarins Eldjárn í bókinni Gælur, fælur og þvælur og útkoman er bæði skemmtileg og elskuleg eins og gestir í Tjarnarbíó fengu að sjá í gær á sýningunni Björt í sumarhúsi. Ágústa Skúladóttir leikstýrir, Kristína R. Berman sér um leikmynd og búninga og [...]

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Valdsmenn orðsins

2019-06-14T15:27:45+00:009. desember 2013|

Þórarinn Eldjárn. Hér liggur skáld. Vaka-Helgafell, 2012. Úr Tímariti Máls og menningar 4. hefti 2013 Við horfumst ekki alltaf í augu við að Íslendingasögurnar eru misvel saman settar. Sumar jafnvel svo þvælnar að þær hafa aldrei komist í almennan lestur og umræðu. Það á ekki síst við um hinar svokölluðu Eyfirðingasögur – sem bíða þess [...]

„Við erum rétt að byrja“

2019-06-18T17:38:03+00:0027. desember 2012|

Á undanförnum árum og áratugum hafa ótal ritgerðir og bækur verið skrifaðar um hegðun einræðisherra og harðstjóra út frá karakterum eins og Adolf Hitler, Jósep Stalín og Maó. Því væri eðlilegt að samtímaleikskáld okkar gæti samið gott verk um fyrirbærið. En það kemur á óvart að Shakespeare (f. 1564, d. 1616) skuli hafa vitað nákvæmlega [...]