Þú ert hér://Tag: Stefán Baldursson

Að vera eða ekki vera – viss

2019-05-27T11:22:40+00:0015. janúar 2018|

Síðasta sýningin sem ég sá þessa mögnuðu leikhúshelgi var Efi – dæmisaga, nýlegt bandarískt verk eftir John Patrick Shanley, sem var frumsýnt í Kassanum á laugardagskvöldið undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Við sáum aðra sýningu í gærkvöldi. Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir gerir einfalda, skýra og markvissa leikmynd og prýðilega þýðingu gerir Kristján Þórður Hrafnsson. Leikritið kemur til [...]

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-27T11:37:02+00:0027. desember 2015|

Það má teljast djarft að setja upp Sporvagninn Girnd um miðjan ískaldan vetur í Þjóðleikhúsi Íslendinga, þetta heita og sveitta verk sem snýst um ástríður og gerist í þrúgandi hita Suðurríkja Bandaríkjanna. Stefán Baldursson leikstjóri er þó hvergi banginn og hefur með sér þétta sveit kvenna, aðstoðarmanninn Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikmyndahönnuðinn Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur og [...]

Mala domestica

2019-06-04T08:45:08+00:002. mars 2014|

Það var söguleg stund í gærkvöldi í margra huga þegar fagnað var innilega í fullum Eldborgarsal Hörpu frumsýningu íslenskrar óperu í fullri lengd um sögulegt íslenskt efni. Söngvurunum í Ragnheiði var tekið með kostum og kynjum í uppklappinu, einkum Elmari Gilbertssyni sem söng hlutverk Daða Halldórssonar, Þóru Einarsdóttur sem söng titilhlutverkið og Viðari Gunnarssyni sem [...]

Lífið er leiksvið

2019-08-24T13:42:11+00:007. janúar 2012|

Leikverkið Fanný og Alexander eftir sænska kvikmyndaskáldið Ingmar Bergman var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær undir stjórn Stefáns Baldurssonar sem einnig vann leikgerðina. Fantagóð þýðingin reyndist vera gerð af Þórarni Eldjárn og töfrafullt sviðið gerði Vytautas Narbutas. Þá voru búningarnir ekki síðri, heiðurinn af þeim á Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Þetta er sannkölluð skrautsýning en afar [...]

Að eiga son eða syni

2019-08-24T13:43:10+00:005. mars 2011|

Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi sjónleikinn Allir synir mínir eftir Arthur Miller í nýrri munntamri þýðingu Hrafnhildar Hagalín og undir stjórn Stefáns Baldurssonar. Þetta er ríflega sextugt leikverk, fyrst sýnt 1947. Það gerist árið áður og sprettur beint upp úr darraðardansi heimsstyrjaldarinnar sem þá var nýlokið. Joe Keller (Jóhann Sigurðarson) verksmiðjueigandi býr við góð efni í [...]

Sungið um ástir og hefnd

2019-09-05T22:03:12+00:0015. október 2010|

Sagan sem ópera Verdis Rigoletto segir er mögnuð og vel til fundið hjá leikstjóranum, Stefáni Baldurssyni, að flytja hana inn í undirheima Ítalíu í nútímanum. Með því minnir hann á að enn eru þeir feður til sem halda að þeir geti verndað dætur sínar með því að loka þær inni og enn er ungum stúlkum [...]

Börn götunnar

2020-01-29T12:16:19+00:0026. apríl 2010|

Þau eru geysilega flink, ungmennin sjö í útskriftarhópi Listaháskólans í leiklist, og í lokaverkefni sínu fá þau gott tækifæri til að sýna það. Í Stræti eftir Jim Cartwright eru ein tuttuguogfimm hlutverk sem þau skipta á milli sín, þó ekki jafnt. Hilmir Jensson leikur til dæmis bara Scullery, náungann sem kynnir okkur fyrir götunni sinni, [...]