Þú ert hér://Tag: Sjón

Einu sinni var …

2023-04-13T14:17:52+00:0013. apríl 2023|

– hugleiðing um sögur, áheyrendur, lesendur, rithöfunda og sögumenn eftir Sjón Úr Tímariti Máls og menningar, 2. hefti 2010.   Ljósmynd: Wiktoria Bosc. „Einu sinni var …“ Hversu gamalkunnugt sem það verður og þvælt (eða margtuggið líkt og hápunktur týndrar Íslendingasögu á óslítandi pjötlu af kálfskinni sem velkist milli tanna ólæss vinnukarls á [...]

„Og nú lifir drengurinn í kvikmyndunum“

2022-12-30T12:33:18+00:0030. desember 2022|

Sigrún Margrét Guðmundsdóttir Kvikmyndalist og súrrealismi í Mánasteini eftir Sjón eftir Sigrúnu Margréti Guðmundsdóttur Úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2022       Að vera sá skuggi sem kemur aftur og aftur inn í sólskinsríka tilveru þína.[1]   Plágan um borð Þann 20. október 1918 birtust þrjár fréttir í röð í [...]

n æ t u r v e r k

2020-11-06T11:19:52+00:005. nóvember 2020|

eftir Sjón úr Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2015   þegar komið var inn yfir persaflóa fékk tunglið sér far með flugvélinni þaðan sem ég sat í gluggasætinu sá ég það speglast í hvítum vængnum augnabliki síðar var ljós bletturinn horfinn og punktaður málmurinn með *** þessi saga er ein af þúsund og einni [...]

Mánasteinn, Munch og expresSJÓNisminn

2020-04-01T17:24:16+00:001. apríl 2020|

eftir Ana Stanicevic úr Tímariti Máls og menningar, 1. 2015   1.0 Forleikur Mánasteinn – drengurinn sem aldrei var til eftir Sjón Sjón er einn af mest þýddu samtímahöfundum Íslands. Það er engin tilviljun. Honum tekst í verkum sínum að sameina fortíð og nútíð með tilþrifum og frásagnarástríðu. Sjón býður þjóðsögum á stefnumót [...]

Skrímsli verður (ekki) til

2020-02-18T09:34:21+00:0018. febrúar 2020|

Sjón. Korngult hár, grá augu. JPV útgáfa, 2019. Úr Tímariti Máls og menningar 1. hefti 2020. Titillinn Korngult hár, grá augu kallar umsvifalaust fram mynd af norrænni manneskju, ljósri yfirlitum. Það að hárið sé korngult en ekki bara ljóst býr til tengingar við sveitasælu, jafnvel sakleysi. Bókarkápan sýnir sömuleiðis ungan, brosandi dreng, myndin þó pixluð [...]

Samsteypa sagna, segulbandsupptökur og stökkbreytingar

2019-05-23T13:29:38+00:0019. júní 2017|

Sjón. Ég er sofandi hurð. JPV útgáfa, 2016. Úr Tímariti Máls og menningar 2. hefti 2017 „En fyrst og fremst er það formsins vegna að ég festi niður stund og stað, svo þér sé ljóst hvar við erum stödd og hvenær, og til þess að gefa þessum upphafskafla þá vigt og stöðu sem hæfir því [...]

„Það súgar milli heima“: Kvikar myndir, skuggar og sjóðheitur sýningarklefi

2019-06-14T11:45:25+00:002. október 2014|

Sjón. Mánasteinn: Drengurinn sem aldrei var til. Forlagið, 2013. Úr Tímariti Máls og menningar 3. hefti 2014 Hún er ekki mikil að umfangi, nóvellan Mánasteinn, sem ber undirtitilinn Drengurinn sem aldrei var til (2013). Innan hvítra spjaldanna rúmast þó ansi margt, kynvilla og framúrstefna, fullveldi og plága, kvikmyndir og heimsstyrjöld. Að auki eru ólík svið [...]

Á vettvangi glæpsins

2019-06-12T15:41:17+00:006. maí 2013|

Sýningin Hvörf sem Lab-Loki leikhópurinn sýnir nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið byggist á málskjölum Guðmundar- og Geirfinnsmálsins en beitir sér einkum að þróuninni í yfirheyrslum yfir helstu sakborningum. Merkilegt hefði líka verið að fá að heyra málsmeðferð fyrir hæstarétti  en á það var bara minnt rétt í lokin að þar var stærsti glæpurinn framinn. Allar [...]

Eyja glataðra sálna

2020-01-30T14:46:12+00:007. febrúar 2010|

Þeir eru sammála um það Sjón og breski hagfræðiprófessorinn Robert Wade, sem hélt fyrirlestur í Reykjavík fyrir helgi, að kreppan núna, þótt kröpp sé, hafi ekki drepið nýfrjálshyggjuna. Hún lifi og muni fara aftur á kreik þótt hún hafi kannski hægt um sig akkúrat núna. Þetta er auðvitað svartsýni, enda er leikrit Sjóns, Ufsagrýlur, sem [...]

Er Bella æt?

2020-01-31T15:35:46+00:0028. mars 2009|

Sædýrasafnið eftir Marie Darrieussecq var heimsfrumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi undir stjórn franska leikstjórans Arthurs Nauzyciel og í þýðingu Sjóns. Margt varð til að byggja upp spennu fyrir þessa sýningu. Það var samið sérstaklega fyrir íslenska Þjóðleikhúsið (soldið 2007, að vísu) og sýningin fer héðan – með sínum íslensku leikurum – til Orleans í [...]