Þú ert hér://Tag: Orri Huginn Ágústsson

Raunasaga Víkingsins

2024-02-23T17:02:31+00:0023. febrúar 2024|

Mestu skrautsýningar leikhúsanna í heiminum eru iðulega söngleikir. Í þá er mikið lagt – í leikmyndir, ljós, fjölda leikara og söngvara, að ekki sé talað um búninga, og mætti nefna allnokkra bara í okkar húsum á undanförnum árum og áratugum þessu til staðfestingar. Flestir hafa þessir söngleikir líka verið margprófaðir á sviðum erlendis áður en [...]

Í skugga Shakespeares

2023-04-24T09:52:36+00:0022. apríl 2023|

Nemendur í Söngskóla Sigurðar Demetz frumsýndu í gær í Gaflaraleikhúsinu söngleikinn Something Rotten eftir sögu Johns O'Farrell og Kareys Kirkpatrick en tónlist og söngtextar eru eftir bræðurna Karey og Wayne Kirkpatrick. Þetta er svo til glænýr söngleikur, frumsýndur á Broadway vorið 2015 og sló í gegn þó að ekkert lag úr honum hafi orðið almenningseign. Sagan er óttalegt bull [...]

Leikur án orða

2022-10-24T12:06:05+00:0024. október 2022|

Leikhópurinn Baun í bala frumsýndi fyrir nokkru nýja algrímusýningu í Tjarnarbíó sem Ágústa Skúladóttir leikstýrir ásamt Orra Hugin Ágústssyni. Verkið heitir Hríma og segir frá fullorðinni einsetukonu, Hrímu (Aldís Davíðsdóttir) sem býr á afskekktum stað í heldur ótótlegu húsnæði gerðu mestmegnis úr teppum og lökum. Þar hefur hún lokað sig inni með gömlum minningum – [...]

Þegar orð eru óþörf

2022-05-17T10:21:13+00:008. apríl 2022|

Það eru rúm níu ár síðan ég sá Hjartaspaða í Gaflaraleikhúsinu, fyrstu leiksýninguna sem ég hafði séð þar sem leikið var með heilgrímur. Þó að afar vel tækist til hefur leikurinn ekki verið endurtekinn, svo ég viti til – fyrr en nú og þá af sömu aðilum, Skýjasmiðjunni. Hún frumsýndi um síðustu helgi verkið Hetju [...]

Þegar Hans klaufi hætti að vera klaufi

2020-01-20T13:10:20+00:0019. janúar 2020|

Leikhópurinn Lotta endurfrumsýndi í gær í Tjarnarbíó Hans klaufa eftir Snæbjörn Ragnarsson og leikhópinn undir stjórn Önnu Bergljótar Thorarensen og Þórunnar Lárusdóttur. Baldur Ragnarsson, Björn Thorarensen og Gunnar Ben tóku þátt í að semja lög og texta með leikhópnum en Þórður Gunnar Þorvaldsson sá um útsetningar. Einföld en þénug leikmyndin var í höndum leikaranna Andreu [...]

Lína lifir

2019-05-27T13:56:23+00:0014. september 2014|

Það er ekki dregið úr því í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á Línu Langsokk, sem var frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins í gær, hvað Lína er ósvífin stúlka. Og fer ákaflega vel á því að láta Ágústu Evu Erlendsdóttur leika hana því allir muna ennþá hvernig hún kom eins og sprengja inn í íslenskan samtíma sem [...]

Sléttfull matskeið af sykri

2019-06-18T12:08:47+00:0023. febrúar 2013|

Ofurbarnfóstran Mary Poppins sviptist með austanvindinum inn á sviðið í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi í skrautsýningu sem varla hefur áður sést slík og þvílík hér á landi. Söngleikurinn sem Richard og Robert Sherman sömdu ásamt Cameron Mackintosh upp úr kvikmyndinni frá 1964 og bókum P.L. Travers um söguhetjuna krefst margra sviðslistamanna og mikillar tækni og Borgarleikhúsmenn [...]

Grímur sem leika

2019-06-18T12:29:34+00:0027. janúar 2013|

Látbragðsleiknum Hjartaspöðum sem Skýjasmiðjan sýnir í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði hefur verið tekið mjög hlýlega. Aðstandendum hefur líklega ekki dottið í hug að orðalaust klukkutímaverk um vistmenn og starfsfólk á elliheimili myndi freista margra, alltént voru einungis áætlaðar fjórar sýningar í byrjun. En viðbrögð gagnrýnenda hafa verið einróma lof, aðrir gestir hafa lagt sitt af mörkum [...]

Segja vil ég sögu af sveinunum þeim …

2019-06-18T17:52:50+00:003. desember 2012|

Íslendingar eiga Jóhannesi úr Kötlum mikið að þakka að hann skyldi nota tíma sinn, orku og sköpunarkraft til að bræða saman gamlar sögur af Grýlu, Leppalúða og þeirra hyski, jólasveinum og jólaketti þar með töldum, og setja þær í aðgengilega, myndræna, fyndna og hæfilega grimma bragi handa fólki á öllum aldri. Sú góða bók Jólin koma er [...]

Vömb, keppur, laki, vinstur

2019-08-13T14:55:45+00:006. nóvember 2011|

Þær eru orðnar nokkrar kynslóðirnar sem hafa hlustað á Lög unga fólksins með Hrekkjusvínunum og sungið sig hásar með. Og ekki verður maður leiður á plötunni hvað sem hún er spiluð oft. Nú hefur hópur einlægra aðdáenda hennar spunnið sögu sem lögin eru fléttuð inn í og sett hana á svið. Stundum falla lögin eðlilega [...]