Þú ert hér://Tag: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Ástin hefur … hendur sundurleitar

2019-05-27T11:37:02+00:0027. desember 2015|

Það má teljast djarft að setja upp Sporvagninn Girnd um miðjan ískaldan vetur í Þjóðleikhúsi Íslendinga, þetta heita og sveitta verk sem snýst um ástríður og gerist í þrúgandi hita Suðurríkja Bandaríkjanna. Stefán Baldursson leikstjóri er þó hvergi banginn og hefur með sér þétta sveit kvenna, aðstoðarmanninn Eddu Björgu Eyjólfsdóttur, leikmyndahönnuðinn Þórunni Sigríði Þorgrímsdóttur og [...]

Leiðin til Rómar

2019-05-27T13:01:24+00:0018. október 2014|

Ekki get ég neitað því að ég kveið ofurlítið fyrir að sjá á sviði leikgerðina af Karítas, tveggja binda skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Verkið er mikil epík, það segir svo langa sögu, teygir sig yfir heila öld, fer svo víða og segir frá svo mörgum persónum að það virtist óðs manns æði að gera því [...]

Salem í samtímanum

2019-06-04T08:04:55+00:0028. apríl 2014|

Mér er enn í furðu fersku minni uppsetning Stefans Metz á Krítarhringnum í Kákasus eftir Brecht í Þjóðleikhúsinu fyrir fimmtán árum og hlakkaði mikið til að sjá Eldraunina hans á sama sviði í ár. En Eldraunin er að sjálfsögðu allt öðruvísi verk og þar eru brellur leiksviðsins óþarfar og jafnvel til bölvunar. Sýningin er vissulega [...]

Mömmuleikur

2019-06-12T13:25:23+00:003. nóvember 2013|

Mikið getur maður verið þakklátur fólki sem kynnir fyrir manni nýja mannlífskima. Í gærkvöldi frumsýndi Lab Loki í Tjarnarbíói nýtt leikrit eftir Lilju Sigurðardóttur um infantílisma – það fyrirbæri þegar fullorðið fólk langar til að verða lítil börn á ný. Stóru börnin heitir verkið og það er Rúnar Guðbrandsson sem stýrir. Vel heppnaða leikmynd og [...]

Dagur í lífi Johnnys Roosters Byron

2019-06-18T11:59:19+00:0024. febrúar 2013|

Ég kom algerlega bláeygð á Fyrirheitna landið í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Af einhverjum ástæðum hafði ég ekkert heyrt og ekkert lesið um verkið, ekki einu sinni um öll verðlaunin og viðurkenningarnar sem það hefur fengið, bara séð auglýsingarmyndina af Hilmi Snæ á netbol, með lúmskt glott á fallegu andlitinu og sígarettu milli fingranna. Augljóst er [...]

Saga úr kreppunni

2019-08-08T16:06:31+00:0025. mars 2012|

Fátæka leikhúsið ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur frekar en venjulega heldur setur nú upp nýja þýðingu á tæplega sjötíu ára leikriti Tennessee Williams, Glerdýrunum, í Þjóðleikhúskjallaranum. Þýðandi og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason. Leikritið gerist í kreppunni miklu á fjórða áratugnum og segir frá einstæðri móður með tvö uppkomin börn. Verkið er [...]

Balalalalalalalallið – á Bessastöðum

2019-08-24T14:00:23+00:004. febrúar 2011|

Það hefur verið svolítið í tísku undanfarin ár að búa til þjóðhöfðingja í sviðsverkum eða sjónvarpi, ég minnist sérstaklega bandarísku seríunnar West Wing þar sem Martin Sheen bjó til nær fullkominn forseta handa Könum (og sem hafði áreiðanlega áhrif á síðustu forsetakosningar vestra) og dönsku seríunnar Borgen þar sem Sidse Babett Knudsen skapar Dönum nær [...]

Að gæta bróður síns

2020-01-24T16:24:24+00:002. maí 2010|

Það var virkilega gaman að koma í Norðurpólinn, nýja leikhúsið á Seltjarnarnesi í gær. Alltaf er gaman þegar leiklistin fær nýjan vettvang og ekki dregur úr ánægjunni þegar hann er eins aðlaðandi og Norðurpóllinn: Geysistór forsalur með bar, mjúkum sófum og gömlum Sunnudagsblöðum Tímans (!) til að kíkja í meðan beðið er sýningar, tveir miðlungsstórir [...]