Þú ert hér://Tag: Kristína R. Berman

Lotta komin aftur á kreik

2023-06-21T13:49:07+00:001. júní 2023|

Það var mikil gleði í Ævintýraskóginum í Elliðaárdalnum síðdegis í gær þegar Leikhópurinn Lotta reis úr covid-rotinu og skemmti stórum hópi barna og fullorðinna með leik, söng og dansi undir fyrirsögninni Gilitrutt. Ekki er hægt að segja einfaldlega að verkið sé um þessa lífseigu skessu því að inn í söguna af henni blandar höfundurinn sögunni [...]

„Sögurnar þær lifa ekki af sjálfu sér“

2020-07-20T18:12:18+00:0011. júní 2020|

Sólin skein aldeilis skært á leikendur og áhorfendur í Elliðaárdalnum í gær þegar Leikhópurinn Lotta sýndi Bakkabræður í annað sinn á höfuðborgarsvæðinu. Það lá við að hitinn yrði illbærilegur þarna á Lottutúni inn á milli trjánna og ég vorkenndi leikendunum svolítið í sínum hlýlegu búningum. Svið og búningar (Kristína R. Berman) segja okkur að leikritið [...]

Hlini kóngsson hittir litlu hafmeyjuna

2019-05-25T19:46:01+00:0025. maí 2019|

Leikhópurinn Lotta frumsýndi í dag ævintýraleikinn Litlu hafmeyjuna á Lottutúni í Elliðaárdal í yndislegu veðri. Þetta er þrettánda fjölskyldusýning leikhópsins og á næstu mánuðum mun hún ferðast um landið, börnum og fylgifiskum þeirra til gleði og fróðleiks. Höfundur er Anna Bergljót Thorarensen sem líka stýrir og yrkir lagatextana ásamt Baldri Ragnarssyni en lögin eru eftir [...]

Ekki er allt sem sýnist

2019-04-30T13:48:57+00:0015. júní 2017|

Við Arnmundur og Aðalsteinn fórum í Elliðaárdalinn í gær – öðru nafni Ævintýraskóginn – til að hitta Ljóta andarungann og fleiri ævintýrapersónur í nýjasta stykki Leikhópsins Lottu. Veðrið var himneskt og gleðin sönn hjá ungum og öldnum. Gamla ævintýrið hans Hans Christians Andersen um svanaunga sem fæðist í andahreiðri gefur tækifæri til að ræða ýmis [...]

Fjölbreytnin lifi

2019-05-08T10:07:33+00:0030. júní 2016|

Loksins í gær komst ég á nýjustu sýningu Leikhópsins Lottu, Litaland, sem var frumsýnd í lok maí. Í Reykjavík sýna þau í Ævintýraskógi Elliðaárdalsins, að venju, en þau fara líka beinlínis um allt land með sýninguna. Í þetta sinn semur Anna Bergljót Thorarensen sitt eigið ævintýri í stað þess að vinna út frá þekktum minnum [...]

Íslensk auðstétt í spéspegli

2019-05-10T15:01:56+00:007. nóvember 2015|

Það ríkir glannalegt fjör og meinleg kæti í nýrri sýningu Leikfélagsins Geirfugls, (90)210 Garðabær, sem nú er sýnd í Kassa Þjóðleikhússins. Höfundur og leikstjóri er Heiðar Sumarliðason og hann skoðar hér æskustöðvarnar í spéspegli. Eiginlega erum við stödd í heilum spéspeglasal þar sem speglarnir ýkja og afskræma á ýmsa vegu, toga og teygja, beygla og [...]

„Sennilega eigum við öll brauð í magann skilið“

2019-05-16T17:15:14+00:005. ágúst 2015|

Ég er nærri því viss um að þið höfðuð ekki hugmynd um að í rauninni átti litla gula hænan heima í skýjahöllinni hjá risanum og að þar var það sem hún sáði fræinu, þreskti kornið og allt það. Og að í rauninni var það hún en ekki gæsin sem verpti gulleggjum handa risanum og Jói [...]

Vormenn Íslands á 21. öld

2019-05-20T17:17:36+00:0010. mars 2015|

Herranótt Menntaskólans í Reykjavík setur nú upp leiksýningu í 170. sinn. Þau völdu 125 ára gamalt leikverk, Vorið vaknar eftir Frank Wedekind, þó ekki upprunalega leikritið heldur rokksöngleik sem Duncan Sheik og Steven Sater sömdu upp úr því á ensku laust fyrir aldamótin 2000. Tónlistin er kraftmikil og skemmtileg og flytur þetta tímalausa efni áreynslulaust [...]

Í afahúsi

2019-05-22T10:53:51+00:001. mars 2015|

Það var snilldarhugmynd hjá Elínu Gunnlaugsdóttur að búa til söngleik utan um ljóð Þórarins Eldjárn í bókinni Gælur, fælur og þvælur og útkoman er bæði skemmtileg og elskuleg eins og gestir í Tjarnarbíó fengu að sjá í gær á sýningunni Björt í sumarhúsi. Ágústa Skúladóttir leikstýrir, Kristína R. Berman sér um leikmynd og búninga og [...]

Af Hróa hetti og Þyrnirós

2019-05-27T16:28:04+00:003. júlí 2014|

Það leit ekkert sérstaklega vel út fyrirfram með sýningu á Hróa hetti hjá Leikhópnum Lottu í gær. Hópurinn sýnir í Elliðaárdalnum, sem kunnugt er, og utan dyra. En stór hópur bjartsýnna foreldra og barna kom samt og allt fór vel, eins og ævintýrið á sviðinu. Undir sýningarlok fór að vísu að rigna pínulítið en hvorki [...]