Þú ert hér://Tag: Kristín Þóra Haraldsdóttir

Lífið er leiksvið

2019-08-24T13:42:11+00:007. janúar 2012|

Leikverkið Fanný og Alexander eftir sænska kvikmyndaskáldið Ingmar Bergman var frumsýnt í Borgarleikhúsinu í gær undir stjórn Stefáns Baldurssonar sem einnig vann leikgerðina. Fantagóð þýðingin reyndist vera gerð af Þórarni Eldjárn og töfrafullt sviðið gerði Vytautas Narbutas. Þá voru búningarnir ekki síðri, heiðurinn af þeim á Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Þetta er sannkölluð skrautsýning en afar [...]

Ljótar sögur af óþekkum krökkum

2019-08-24T12:24:40+00:0026. mars 2011|

Fyrsta sögubókin sem var gefin út handa íslenskum börnum hét Sumargjöf handa börnum og kom út 1795. Í henni voru margar móralskar sögur af óþekkum börnum sem hefndist grimmilega fyrir að hrekkja, heimta, vera matvönd eða frek, lygin, forvitin, fælin og þver. Bókin var þýdd úr þýsku og það er einmitt uppeldisfræði af hennar tagi [...]

Efnið sem draumar spinnast úr

2019-08-24T14:54:11+00:0030. desember 2010|

Þær eru ekki líkar Shakespeare-sýningarnar sem voru frumsýndar í stóru leikhúsunum milli jóla og nýjárs. Eiginlega eru þær algerar andstæður. Sú ástralska í Þjóðleikhúsinu er dökk og dimm með „ekta” ofsaveðri og stórrigningu, sú litháíska í Borgarleikhúsinu litrík og björt með gamaldags rokvélum á sviðinu til að framkalla ofviðrið sem hún heitir eftir. Í Þjóðleikhúsinu [...]

Að vera eða ekki vera – þar er efinn

2019-09-05T22:10:22+00:0013. október 2010|

Ekki hef ég lengi séð eins vel heppnaða leikgerð skáldsögu á sviði og Fólkið í kjallaranum sem Borgarleikhúsið frumsýndi um helgina. Það sem gerði útslagið í leiktexta Ólafs Egils Egilssonar var hve mikið af auði sögunnar komst upp á sviðið, hve mörg atvik og hve mikið af togstreitunni og þjáningu efans sem þjakar aðalpersónuna. Þetta [...]

Vandinn að vera unglingur

2020-01-30T11:46:32+00:0020. mars 2010|

Það vildi svo skemmtilega til í vikunni að ég sá tvo söngleiki um líf unglinga, sýningar sem gáfu mér óvænt tækifæri til að bera saman flutning framhaldsskólanema á verki um líf jafnaldra sinna og tilveru í samtímanum og lærðra leikara á þrítugs- og fertugsaldri sem freistuðu þess að flytja tveggja áratuga gamalt verk um reykvíska [...]

Hungur og gredda

2020-01-31T16:10:28+00:0031. janúar 2009|

Það greip mig óvænt tilfinning að lokinni sýningu á Rústað eftir Söruh Kane á Nýja sviði Borgarleikhússins í gærkvöldi: ég fann að ég var þakklát. Fyrir hvað? hugsaði ég hissa. Fyrir að horfa á manneskjur gera öðrum manneskjum mein? Nei, öllu heldur fyrir að sýna mér bakhliðina á fréttunum sem við lesum og heyrum á hverjum degi, [...]

Írsk óhamingja

2019-04-03T14:58:51+00:008. nóvember 2008|

Ég man ekki hvort ég las það eða heyrði einhvern segja að í nýju sýningunni í Borgarleikhúsinu á írska leikritinu Vestrinu eina sæjum við hvað væri hægt að sökkva djúpt, og við gætum ekki kvartað fyrr en við værum farin að pissa í fötu og hætt að borða mat. Víst er að Martin McDonagh hlífir [...]